Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2018, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 17.03.2018, Qupperneq 90
Opið: Virka daga kl. 10-18 Laugardaga kl. 11-16 LAGERHREINSUN AFSLÁTTURALLT AÐ Rýmingarútsala - lokadagar Verið velkomin í heim sókn! 70%60% Dýnur í mörgum stærðum Hvíldarsófar Náttborð Rúmgaflar Dýnur Tungusófar Svefnsófar Hvíldarstólar LÚR Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is www.lur.is Heilsurúm, heilsu dýnur, rúmgafla r, hliðarborð, ná ttborð, hvíldarstó lar, hvíldarsófar, tun gusófar, stakir s ófar og stólar, d únsængur, vatns koddar, skammel, kollar , heilsukoddar, s ófaborð dýnur í stillanleg rúm og margt fleira. Gerið góð kaup og spákonur, án vísinda. En þetta hefur gjörbreyst síðustu tíu ár.“ Unnur: „Á heimsvísu eru rann- sóknir um áhrif áfalla á heilsu frek- ar ung vísindagrein. Frá því að við vorum í doktorsnáminu og vorum að kynna niðurstöður okkar fyrir heilbrigðisstarfsfólki, hef ég skynj- að  ofboðslega breytingu á hugar- fari þeirra gagnvart þessum armi vísindanna, sérstaklega síðustu tíu ár, á milli þess hvernig þér líður og heilsufarsins. Og það er margt sem hefur breytt því. Rannsóknarað- ferðirnar eru betri og grundvallast á lífeðlisfræði og stærri hópum. Þannig að fólk er farið að sjá að þessi tengsl eru raunveruleg. En það eru ákveðnir vendipunktar, eins og til dæmis þegar Elizabeth Blackburn fékk Nóbelsverðlaunin í læknis- fræði 2009 fyrir rannsóknir sínar á litningaendum. Hún hefur síðan helgað sig að mörgu leyti áhrifum streitu og áfalla á hrörnun þessara litningaenda. Og einmitt það, að fá svona harð- kjarna vísindamanneskju á heims- mælikvarða  fram á sjónarsviðið sem brennur fyrir þessum pæling- um  skiptir máli. Hennar atorka hefur breytt skilningi fólks og gert það móttækilegra fyrir því að líðan hefur áhrif á heilsufar. Til þess að sýna fram á tengslin, þarf mjög sterk gögn. Það höfum við Arna verið að gera síðustu tuttugu ár.“ Þið eruð nánast alltaf saman? Í vinnunni en líka í einkalífinu? Arna: „Já, við erum mjög mikið saman í vinnunni og deilum skrif- stofu. Höfum gert það í tíu ár. Við þekkjum vel tengda -og stórfjöl- skyldur hvor annarrar, förum í frí og upplifum mjög margt saman. Mér finnst við vera eins og aðskildar systur sem hittust þarna fyrir til- viljun í háskólanum. Svo er líka svo- lítið fyndið að við fæddumst nánast á sama sólarhring, sama árið. Hún fyrir norðan og ég hér í Reykjavík.“ Unnur: „Mér finnst ótrúleg for- réttindi að fá að vinna með vinkonu minni. Akademískt starf er náttúru- lega mikil vinna og krefjandi. En henni fylgir frelsi. Þú ræður hvað þú rannsakar, í hvað þú eyðir tíma þínum og þú hefur líka ákveðið frelsi með hverjum þú vinnur og eitt af því sem ég hef lært að meta í gegnum tíðina er að fá að vinna með vinum mínum. Við bætum hvor aðra upp. Erum mjög ólíkar og erum meðvitaðar um það.“ Arna: „Það hefur áhrif á afrakst- urinn. Okkur gengur betur. Svo eru samvistirnar mjög miklar. Oft erum við að spjalla um vinnuna hvert sem við förum. Í matarboðum, barnaaf- mæli, sundi og göngutúrum  til dæmis. Er þetta karllægur bransi? Arna: „Já, hann hefur verið það lengi. Hér á Íslandi og alls staðar í heiminum. Í töluvert mörg ár hafa jafnmargir eða fleiri kvendoktorar útskrifast en karlar. Samt komast þær síður áfram í akademíunni, í að verða dósentar og prófessorar. Þannig hefur þetta verið í mörg ár. Hlutfall kvenprófessora við háskól- ann er lágt og mjög mismunandi eftir deildum og það væri sannar- lega takmark að sjá það aukast meira í takt við hlutfall menntunar kvenna.“ Unnur: „Doktorsprófið helst oft í hendur við barneignatíma kvenna. Það er álagstími. Þessi tími eftir doktorspróf er því mikill álagstími og er einnig krítískur um það hvort þú nærð spretti í þínum frama. Þess vegna er jöfn skipting for- eldraorlofs svo mikilvæg. Á meðan það detta út ár vegna barneigna hjá konum þá halda karlar áfram og fá framgang.“ Unnur, hverjir eru styrkleikar Örnu? „Arna er rosalega vösk og vel vakandi manneskja. Góður grein- andi bæði á fólk og málefni. Hún hefur einstaklega góða tilfinningu fyrir fólki í kringum sig. Og sjálfri sér. Mér finnst hún hafa aðdáunar- verða innsýn, góða sjálfsþekkingu, sem ég sakna algjörlega í eigin fari. Þetta endurspeglast bæði í einka- lífi og vinnu. Fólk treystir Örnu vel. Trúir henni og treystir fyrir sínum hjartans málum. Arna er tenging mín við raun- veruleikann. Mér hættir til að úti- loka hann algjörlega þegar ég sekk of djúpt í eigin verkefni. Ef ég þarf að fá að vita hvað er í gangi í kringum mig, öðru en nákvæmlega í því verk- efni sem ég er að einbeita mér að, þá þarf ég ekki annað en að spyrja og leita til Örnu. Það er mér mjög mikilvægt og hjálplegt.“ En Arna, hvað með Unni? Er hún svona utan við sig? „Hún er það ekki jafnoft og hún heldur. Ég myndi segja að hún sé gífurlega gáfuð manneskja, ein af okkar fremsta vísindafólki. Ég held að um það verði ekki deilt. Það er líka sjúklega gott að vinna með henni og hún er góð fyrirmynd í vísindum.  En það allra besta við hana er hvað hún er gríðarlega góð vinkona. Ef það kemur eitthvað upp á, þá kemur hún. Hún hættir ekki fyrr en hún er viss um að það sé í lagi með mig. Fylgist vel með og gætir manns. Hún passar jafn vel upp á mig og sitt fólk og er trygg sínu fólki. Hún hefur sterk tilfinningatengsl við sína nán- ustu sem hún vinnur vel með.“ Unnur: „Arna er einn mesti þjark- ur sem ég þekki. Einu sinni kom hún til mín til Bretlands og hjálpaði mér að pakka saman heilli búslóð. Hún gerði það eiginlega allt alveg ein. Á meðan var ég að bara skemmta henni við verkið, sýna henni myndir og lesa upp úr bókum og gömlum bréfum. Hún er sleggja!“ Hvaða væntingar hafið þið til verkefnisins? Arna: „Núna standa vonir okkar til þess að konur sýni rannsókninni áhuga og vilji taka þátt. Nú þegar hafa fjölmargar konur tekið þátt og við höfum fengið mjög jákvæð við- brögð, jafnvel þakklæti, frá þeim sem við höfum heyrt í. En ég hef miklar væntingar. Við Unnur gerum okkur þó grein fyrir því að þetta er langtímaverkefni. Við erum rétt að byrja.“ Unnur: „Við viljum skapa sterka þekkingu sem hefur burði til að breyta heiminum og fyrst og fremst kemur þolendum áfalla til góða í framtíðinni. En það tekur tíma, þetta er langhlaup.“ „Mér finnst ótrúleg forréttindi að fá að vinna með vinkonu minni, segir Unnur. Fréttablaðið/SteFán ArnA er tenging mín við rAunveruleikAnn. mér hættir til Að útilokA hAnn AlgjörlegA þegAr ég sekk of djúpt í eigin verkefni. ↣ 1 7 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 7 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 3 8 -8 6 6 C 1 F 3 8 -8 5 3 0 1 F 3 8 -8 3 F 4 1 F 3 8 -8 2 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 1 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.