Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 2
27. apríl 2018fréttir
einstaklingar sem kunna að meta Karlalistann
Stjórn mála sam tökin Karla listinn
voru stofnuð form lega í vikunni.
Fyrstu fregnir herma að flokkurinn
muni helst berjast gegn femín-
isma. Sú stefna gæti höfðað til
neðangreindra karlmanna.
Engin Ipekoglu
Tyrkneski landsliðs-
markvörðurinn Engin
naut mikillar hylli hér-
lendis á sínum tíma,
þökk sé stórbrotnum
lýsingum Bjarna Fel.
Heimildir DV herma að
Engin kunni að meta
Karlaflokkinn.
Halim Al
Ef við höldum okkur
í Tyrklandi þá er ekki
ólíklegt að þekktasti
sonur landsins á
Íslandi kunni að meta
tilhugsunina um Karla-
lista. Reyndar þangað
til í ljós kæmi að flokk-
urinn ætlaði að berjast
gegn foreldratálmun.
Donald Trump
Donald á erfitt val fyrir
höndum því hann kann
vel að meta áherslur
Höfuðborgarlistans
um að láta Kópa-
vog borga fyrir brú
til Reykjavíkur. Að
lokum mun þó andúð
hans á femínisma ná
yfirhöndinni.
Gunnar
Hjartarson
Það þykir með
hreinum ólíkindum
að pistlahöfundurinn
víðkunni sé ekki í fram-
boði fyrir listann enda
er skoðanabróðir hans,
Gunnar Waage, í eld-
línunni. Ef Hjartarson
væri til þá væri þarna
gulltryggt atkvæði.
Jónas
Kristjánsson
Samkvæmt Google
frænda skrifaði
ritstjórinn aldni pistil
með yfirskriftinni: „Við
þurfum Karlalistann“.
Pistillinn birtist árið
1988 og því hefur
Jónas þurft að bíða í
40 ár eftir að kallinu
væri loksins svarað.
V
íngerðin hófst sem áhuga-
mál en hefur síðan undið
upp á sig. Ég ætlaði að
dunda við þetta þegar ég
væri kominn á ellilífeyri en þegar
ég gekk í gegnum breytingar í
vinnunni minni í fyrra þá ákvað
ég að söðla um og taka þetta alla
leið. Þarna liggur ástríða mín,“
segir bóndinn og víngerðarmað-
urinn Höskuldur Hauksson í sam-
tali við DV.
Höskuldur flutti til Sviss ásamt
fjölskyldu sinni fyrir áratug. Hann
hafði alltaf haft áhuga á víngerð og
ytra kynntist hann fólki sem starf-
aði á þeim vettvangi. Fljótlega fjár-
festi hann í litlum skika, fjórðungi
úr hektara að stærð, í suðurhluta
Sviss og fór að prófa sig áfram. Í
dag framleiðir Höskuldur vín í um
22 þúsund flöskur af léttvíni á ári
og gerir ráð fyrir því að stórauka
framleiðsluna á næsta ári. „Ég setti
á 12 þúsund flöskur í ár en ég ætla
að leyfa því sem eftir er að þrosk-
ast í eitt ár í viðbót í eikartunnum,“
segir Höskuldur.
Hann er staddur á Íslandi
þessa dagana til þess að kynna
framleiðslu sína fyrir íslenskum
veitingastöðum og almenningi.
Stefnir á 40 þúsund flöskur á
næsta ári
Höskuldur er með vínframleiðslu
á tveimur vínekrum í Sviss. Litla
skikanum í suðurhlutanum, nán-
ar tiltekið við bæinn Gordemo,
og síðan um tveggja hektara vín-
ekru við Remigen, sem er í norð-
urhluta Sviss. „Ég mun aldrei
sleppa hendinni af vínekrunni í
suðurhlutanum. Þetta er yndis-
legur reitur sem er í snarbrattri
brekku með útsýni yfir Lago
Maggiore-vatn. Það ilmar allt af
villtri bergmyntu og blómum.
Það er eins og að fara í frí í hvert
skipti sem ég heimsæki staðinn,“
segir Höskuldur. Hann sér al-
farið um ræktun og framleiðslu
á þeim skika en er síðan með
nokkra starfsmenn í hlutastarfi í
að aðstoða hann við starfsemina
í norðurhlutanum.
Næsta vor mun Höskuldur
síðan taka við þriðju vínekr-
unni sem er einnig í norð-
urhluta Sviss, skammt
frá þeirri sem hann á nú
þegar. „Þá verð ég kom-
inn með um sex hektara
lands undir framleiðsl-
una og reikna með að
framleiðslan verði um
35.000–40.000 flöskur,“
segir Höskuldur.
Eins og áður segir
er Höskuldur staddur
hér á landi og er að
kynna framleiðslu
sína fyrir almenningi
og veitingamönnum.
„Ég hef fengið góð-
ar viðtökur síðustu
daga og veitingamenn
virðast ánægðir með
gæðin á framleiðsl-
unni,“ segir Höskuldur.
Þá mun hann bjóða
áhugasömum einstak-
lingum upp á vín-
smökkun um helgina,
nánar tiltekið á vínbarn-
um Port 9 klukkan 14–16
á föstudag og laugardag.
Þar geta gestir skráð sig á
póstlista og pantað vín hjá
Höskuldi sem sent verður
beint upp að dyrum.
Íslenskt heiti á tveimur vínum
„Ég er að bjóða upp á sex tegund-
ir af rauðvíni, hvítvíni og rósavíni,“
segir Höskuldur. Að hans mati er
flaggskip framleiðslunnar Ciliego
sem framleitt er úr Merlot-þrúg-
unni sem kemur frá litla skikan-
um í suðurhlutanum. „Vínið er
gerjað með villtum víngerlum
ekrunnar og liggur svo á skinnum
berjanna í sex vikur áður en það er
pressað frá og þroskað í tunnum
úr franskri eik og kastaníuvið í 17
mánuði,“ segir Höskuldur.
Þá bera tvö vín íslenskt heiti,
annars vegar hvítvínið Tunglskin,
sem framleitt er úr Müller-Thur-
gau-þrúgunni, og rauðvínið Sól-
skin, sem framleitt er úr Gara-
noir- og Pinot Noir-þrúgunum.
Aðspurður segir Höskuldur ekki
þekkja til þess að rauðvín eða
hvítvín sem framleidd eru erlend-
is beri íslensk heiti. „Ef þú fullyrðir
það samt í greininni þá er viðbúið
að einhver verði reiður og leiðrétti
þig,“ segir hann og hlær.
Hann á ekki von á að vínfram-
leiðsla hans verði til sölu hjá ÁTVR
á næstunni. „Ég get ekki enn keppt
við stærri framleiðendur í verði
enda tekur ríkið stóran hluta af
verðinu. Fyrst um sinn mun ég því
selja framleiðslu mína milliliða-
laust hérlendis,“ segir Höskuldur.
Fimm tegundir sem hann fram-
leiðir selur hann á 1.950–2.900
krónur en flaggskipið, Ciliego,
kostar 4.800 krónur flaskan. n
2
Lof & Last
– Þórarinn Þórarinsson, blaða-
maður á Fréttablaðinu, á lof og
last vikunnar:
Eins og mér leiðast fjöldasamkom-
ur og sérstaklega tónleikar þá get
ég ekki annað en hrósað Secret
Solstice-liðinu fyrir að drösla
gömlu rónunum í Guns N’ Roses
til landsins. Þetta gleður sjálfsagt
haug af miðaldra smáborgurum
sem rámar lauslega í að þau
hafi kunnað að njóta lífsins
fyrir þrjátíu árum. Fallegt
að búa miðaldra eitt
áhyggjulaust ævikvöld.
Löggan og samskipti hennar við
fjölmiðla. Hrokinn, þvermóðsk-
an og almenn leiðindi meintra
„þjóna“ laga og reglu í garð okkar
blaðamanna lýsir vitaskuld fyrst
og fremst lítilsvirðingu fyrir
almenningi. Ég hélt að með Grími
Grímssyni væri lögreglan að
taka þroskakipp í þessum
samskiptum en ég held ég
sé að átta mig á því hvers
vegna sá maður síðasta árs
var sendur úr landi.
Á þessum degi,
27. apríl
711 – Hersveitir
mára, undir forystu
Tariq ibn Ziyad,
ganga á land á Gí-
braltar og hefst þar
með innrás þeirra á
Iberíuskagann.
1667 – John
Milton, þá blindur
og sárafátækur,
selur höfundarréttinn
að Paradise Lost,
Paradísarmissi, fyrir
10 sterlingspund.
1909 – Abdul Hamid II, soldán
Ottómanveldisins, er steypt af stóli.
Bróðir hans, Mehmed V tekur við stjórn-
artaumunum.
1945 – Benító Mússólíní, leiðtogi
ítalska fasistaflokksins og síðar
einræðisherra á Ítalíu, er handtekinn
á flótta af þarlendum skæruliðum í
Dongo. Mússólíní hafði klætt sig upp
sem þýskur hermaður í von um að
komast undan.
1993 – Allir liðsmenn sambíska lands-
liðsins í knattspyrnu farast í flugslysi
í Gabon, þá á leið til Senegal þar sem
berjast skyldi um rétt til þátttöku á
heimsmeistaramótinu 1994.
Hinstu orðin
„Mozart!“ – Sagan segir
að tónsmiðurinn Gustav
Mahler hafi dáið með nafn
Mozarts á vörum sínum
og stjórnað ímyndaðri
sinfóníuhljómsveit á bana-
beðinum.
„Víngerðin hófst
sem áhugamál“
Vínbóndinn Höskuldur framleiðir rúmlega 20.000 vínflöskur á ári:
Selur vínið „beint frá bónda“ til Íslands„Það ilmar allt af
villtri bergmyntu
og blómum.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Höskuldur
Hauksson
Víngerðin byrjaði
sem áhugamál
en er núna
orðið hans
aðalstarf.