Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Síða 8
8 27. apríl 2018fréttir
Á
gúst Guðmundsson er ekki
velkomin aftur til Asíu.
Svo mikið er víst. Líkt og
hefur verið greint frá flúði
hann á ótrúlegan hátt frá Taílandi
á dögunum en þar stóð hann
frammi fyrir áratuga fangelsisvist.
Ágúst var handtekinn í fyrrasum-
ar í borginni Pattaya á suðurströnd
Taílands vegna vopnaðs ráns. At-
vikið náðist á myndband og voru
fluttar fréttir af málinu í bæði taí-
lenskum og alþjóðlegum fjölmiðl-
um svo sem Daily Mail.
Margt hefur þó ekki enn kom-
ið fram, fyrr en nú. Ágúst legg-
ur spilin á borðið og segir frá því
þegar hann var pyntaður í fang-
elsinu, allar tennurnar barðar úr
honum, allt um aðdraganda ráns-
ins, hvernig hann þurfti að stinga
mann eftir að hafa sloppið úr fang-
elsinu, íslenska bjargvætti og nú
lífið á götunni í Reykjavík.
Edrú í níu ár
Ágúst starfaði lengst af sem mál-
arameistari á Íslandi og á ekki að
baki neinn alvarlegan brotaferil.
Hann átti í vanda með alkóhól-
isma en var lengi edrú, níu ár. Fyrir
um tveimur árum fluttist hann til
Taílands og þótt hann hafi til að
byrja með haldið áfram í edrúm-
ennsku þar og stundað vaxtarrækt,
þá féll hann fyrir um ári.
Þar átti hann „kærustu“ og má
raunar segja að svik hennar hafi
hrint af stað atburðarás sem varð
til þess að Ágúst endaði í fangels-
inu. „Já, hún var komin með tvo
kærasta í viðbót, einn frá Englandi
og einn frá Þýskalandi. Sagði mér
að þetta væri bara vani í Taílandi
og ég ætti að fá mér aðra kærustu
ef ég vildi. Ekkert mál. En ég sætti
mig ekki alveg við það. Þannig
að ég sagði henni bara að fara,
en hún fór ekki alveg. Hún tók
öll kortin mín, passann, og sím-
ann og lét sig hverfa. Ég vaknaði
þarna og hún var farin. Það tek-
ur um þrjár vikur að fá nýtt kort
sent, alveg ógurlegan tíma. Og ég
í örvæntingu minni tók ég þessa
snilldar ákvörðun, að ganga út í
búð og reyna að ná mér í áfengi,“
segir Ágúst.
Reiður sjálfum sér
Ágúst segist lítið muna eftir rán-
inu. Það eina sem hann átti var
hálf viskíflaska og hana drakk
hann áður en hann fór í búðina.
„Ég fór þarna út í búð og gerði
þetta. Ég man ekki eftir því en mig
rámar eitthvað í þetta. Eina sem ég
man er að ég vaknaði þarna um
nóttina og hugsaði „hver djöfull-
inn, það er búið að taka allt“. Og
ég horfði fram á niðurtúr sem er
óendanlegur og mjög slæmur, en
ég átti þarna smá viskílögg, eða
meira svona hálfa flösku.
Ég drakk hana og fór svo út
í búð, átti piparúða og fór svo
og gerði þetta. Og vaknaði svo í
fangaklefa þegar farið var að berja
á dyrnar. Þeir gáfu mér engar upp-
lýsingar. Daginn eftir sýndu þeir
mér myndbandið og ég hugsaði:
„Sjitt, er þetta virkilega ég? Get-
ur það verið?“ Jú, jú, það var ekki
vafamál. Ég var mest reiður mér
fyrir að hafa gert þetta, þetta var
svo „out of character“. Gjörsam-
lega. Ég er ekki týpan sem fer og
rænir fólk, ég fer bara löglegu
leiðina og vinn. En þetta var gjör-
samlega út í hött,“ segir Ágúst.
Það kom fljótt í ljós Ágúst
hefði getað sloppið við alla refs-
ingu ef rétta fólkið fengi sitt. En
aur átti hann ekki eftir þjófnað
kærustunnar. „Ef þú ert með pen-
ing er það ekkert mál. Þarft að
borga 200 til 300 þúsund baht [um
600 til 900 þúsund krónur, innsk.
blm.]. Ég átti það alveg en var ekki
með kortin og komst ekki í bank-
ann og löggan meira að segja
þegar hún tók mig, á leið á lög-
reglustöðina, var alltaf að spyrja
mig hvað ég ætti mikinn pening,
við fórum á rúntinn að leita að
kortunum. Og þeir sögðu við mig:
„Ef þú átt pening þá getum við
sleppt þér hér og nú.“ Ég reyndi að
finna passann en hann var farinn,
hún var með þetta. Þannig að ég
var fastur þarna inni. Þetta snýst
allt um pening,“ segir Ágúst.
Haldið vakandi í tólf daga
Fyrst hann gat ekki mútað lög-
reglumönnunum var honum
hent í steininn. Við tók hörmu-
leg fangelsisvist þar sem engin
mannréttindi voru til staðar. „Ég
Ótrúlegur
flÓtti
Ágústs úr
viðbjÓðslegu
fangelsi
n Pyntingar beint úr miðöldum,
tennurnar á klósettinu og
ráðabrugg í bjúgnapartí
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Úr upptökunni
Uppákoman hafði alvarlegar afleiðingar fyrir Ágúst.