Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 20
20 fólk - viðtal 27. apríl 2018
S
vava S. Steinarsdóttir
er 46 ára gömul, móðir
tveggja barna, Hildu Mar
grétar, sem er fædd 1993,
og Stefáns Sölva, sem er fæddur
2011. Eftir fæðingu dótturinnar
langaði hana alltaf í fleiri börn,
en rétti maðurinn lét bíða eftir
sér og að lokum valdi hún að
fara í tæknisæðingu.
„Ég var í ferli árin 2010–
2011 hjá Art Medica, fór í fimm
tæknisæðingar sem ekki lukk
uðust og fór þá í glasafrjóvgun,“
segir Svava. „Fyrsta uppsetning
tókst ekki, en næst voru settir
upp tveir fósturvísar sem ég átti
í frosti og þá kom sonurinn.“
Svava kemur úr stórri fjöl
skyldu og eignaðist Hildu Mar
gréti þegar hún var 21 árs göm
ul. „Mig langaði alltaf að eignast
fleiri börn. Því miður fann ég
aldrei rétta manninn, árunum
fjölgaði og ég taldi mig ekki geta
beðið lengur og valdi því þessa
leið.“
Hafði heyrt hryllingssögur,
en fór í gegnum ferlið með
jákvæðu hugarfari
„Ég var afar bjartsýn þegar ég
hóf ferlið. Ég sagði ekki öllum frá
þessu strax, aðeins nánustu vin
um og einni systur. Þegar hver
meðferðin á fætur annarri bar
ekki árangur leið mér ekki vel
en hóf þá næstu með jákvæðu
hugarfari. Það var ótrúleg gleði
stund þegar ég fékk jákvætt út úr
blóðprufunni. Mér fannst erfið
ast að þurfa að mæta í margar
skoðanir til að meta hvenær
rétti tíminn væri fyrir meðferð.
Þegar kom að glasafrjóvgun
inni kom mér á óvart hversu allt
gekk vel, lyfjagjöf og eggheimta.
Ég hafði heyrt margar hryllings
sögur og mér létti því verulega
þegar upplifunin var allt önnur,“
segir Svava og bætir við að hún
hefði viljað betri upplýsingagjöf
og ráðgjöf, þrátt fyrir að hún hafi
mætt góðu viðmóti alla leið.
Svava segist ekki hafa lent í
fordómum, þvert á móti hafi fólk
tekið þessu vel og stutt ákvörðun
hennar. „Fólk er vissulega mjög
forvitið um þetta. Það vill heyra
um ferlið, hvernig sé að vera ein
með barn og hvað ég viti um
gjafann.“
Myndirðu mæla með þessari
aðferð við aðra?
„Já, ég myndi mæla með því
að fara þessa leið, en aðeins að
vel ígrunduðu máli,“ segir Svava,
en segist sjálf orðin of gömul til
að eignast fleiri, aðspurð hvort
hún myndi gera þetta aftur.
Sæðisgjafinn er lokaður gjafi
með víkkaðan prófíl. Þannig er
hægt að fá upplýsingar um fjöl
skyldu hans, áhugamál, hægt að
sjá niðurstöður persónuleika
prófs, viðtal við gjafann, myndir
frá barnsaldri og fleira. Hins
vegar getur Stefán Sölvi ekki
fengið nafn gjafans og getur
þannig ekki haft upp á honum
þegar hann nær 18 ára aldri.
Svava fékk númer sæðisgjaf
ans hjá Art Medica og skráði það
á vefsíðuna Donor Sibling Reg
istry. „Ég vissi að sonur minn
gæti aldrei hitt föður sinn, en
hann gæti fundið hálfsystkini ef
þau væru til,“ segir Svava.
Svava hefur haft samband við
mæður barna með sama gjafa,
og hún og Stefán Sölvi hafa hitt
hluta hópsins, sem nú telur 30
börn.
„Stefán Sölvi veit að hann
er gjafabarn, ég hef alltaf verið
hreinskilin við hann með það.“
Það getur verið lýjandi að
vera bara ein
Hvernig er að vera eina foreldr-
ið og sinna báðum hlutverkum,
að fá aldrei pásu frá því að vera
foreldri?
„Það getur stundum ver
ið lýjandi að vera bara ein. Sér
staklega þegar kemur að því að
púsla saman fríum, svo sem
vegna veikinda, skólafría og
starfsdaga. Það er þó ekki óyfir
stíganlegt en þarfnast meiri
skipulagningar. Það er líka hægt
að koma að smá mömmutíma
á kvöldin þar sem maður getur
slakað á og gert eitthvað fyrir sig.
Og ég er afar heppin að eiga
fjórar systur sem hafa reynst
mér afskaplega vel og fjölda
vina sem hafa stutt mig og að
stoðað,“ svarar Svava aðspurð
hvort hún fái stuðning frá vinum
eða ættingjum. „Ég er með stórt
stuðningsnet.“
Einstakar mæður veita
stuðning
Svava vill benda konum í þessum
hugleiðingum, og eins þeim sem
hafa eignast börn á þennan hátt,
á Félag einstakra mæðra. „Í þeim
hópi er öflugt félagsstarf og hægt
að fá svör við öllum spurningum
sem kynnu að kvikna í ferlinu og
þegar barnið er komið í heiminn.
Heimasíðan er einstakarmaedur.
wordpress.com.“ n
Svava S. Steinarsdóttir„Stefán Sölvi veit
að hann er gjafa-
barn, ég hef alltaf ver-
ið hreinskilin við hann
með það.
H
eidi Pétursdóttir er 42 ára sölumaður sem á fimm ára gamlan
son. Hún valdi þessa leið eftir ábendingu og hvatningu frá systur
sinni, sem á þrjú börn með manni sínum. Heidi segir að sonur
hennar sé það besta sem hún hefur gert í sínu lífi.
„Hjá mér er þetta ekkert leyndarmál, en ég hef heldur ekki básúnað
það,“segir Heidi Pétursdóttir. „Þegar hefur borist í tal hvort hann eigi ekki
pabba, þá hef ég sagt fólki hvernig í pottinn er búið. Sonur minn er mjög
vel heppnaður.“
Heidi fór fjórum sinnum í tæknisæðingu og varð ófrísk í janúar 2012.
„Systir mín, sem er í sambúð og á þrjú börn sjálf, hvatti mig til að fara þessa
leið og studdi mig heils hugar. Hennar börn eru getin með hefðbundnu
aðferðinni,“ segir Heidi. „Þegar ég fór var þetta ekki algengt og ég velti fyrir
mér hvað fólk myndi segja. Ég man reyndar ekki hvenær það varð leyfilegt
að einhleypar konur færu í tæknisæðingu, en það eru ekki mörg ár síðan.
Mér finnst í þessu tilfelli konur njóta forréttinda því það er örugglega
fjöldi karlmanna sem eru einir en myndu vilja eignast börn, en geta það
ekki.“
Númerakerfi vanvirðing við tíma og friðhelgi fólks
„Það sem mér fannst ótrúlega skrítið var að maður fékk ekki tíma, held
ur mætti bara og dró númer eins og í banka, þannig að maður vissi aldrei
hvað maður yrði lengi í hvert skipti. Kannski sat maður í tvo tíma og með
öllum öðrum sem voru að bíða, fólk fer að spjalla og maður heyrði þá allt
sem öðrum fór á milli. Maður var ofan í öllum og mér fannst þetta van
virðing við tíma og friðhelgi fólks. Þetta var stór mínus að mínu mati, en
hins vegar var ein kona þarna sem sá um einstæðu konurnar og hún var
alveg yndisleg að öllu leyti.“
Heidi kynnti sér málin fyrir aðgerð og talaði við eina hér á landi sem var
búin að fara. Hins vegar var enginn félagsráðgjafi til staðar til að ræða við
og segist Heidi því hafa farið aðeins blint út í aðgerðina. Hún þurfti ekki í
neinar rannsóknir og fyllti ekki út neina spurningalista áður.
„Nei, mér hefur alls ekki fundist það,“ segir Heidi aðspurð hvort hún
mæti einhverjum fordómum. „Fólk spáir helst í hvort ég sé með opinn eða
lokaðan gjafa, opinn þýðir að þegar sonur minn verður 18 ára þá má hann
leita uppruna síns, en ég má ekkert koma nálægt því. Ég ákvað að hafa það
þannig, því ég tel að það sé í mannlegu eðli að leita uppruna síns.
Ég myndi ekki gera þetta aftur í dag, ég er orðin of gömul. Ég hef það fínt
í dag, hann er mjög vel heppnaður drengurinn minn.“
En mælir þú með þessari leið fyrir aðrar einhleypar konur?
„Ekki spurning, ef konur eru að pæla í þessu.“
Vinkonur Heidi eru í sambúð og einnig systur hennar tvær, þannig að
hún hefur ekki getað borið sig saman við vinkonur sem eiga pabbahelgar
aðra hverja helgi.
En hvernig er að vera alltaf eina foreldrið og þurfa að sinna báðum hlut-
verkum?
„Það er einfaldlega innprentað í mig að ég þarf að gera þetta ein, ég veit
að ég þarf að gera allt ein og er ekki að bíða eftir að aðrir geri hlutina. Ég
er með góðan stuðning frá fjölskyldu minni; systrum mínum og mömmu.
Auðvitað verð ég stundum þreytt og þarf pásu, en þetta er ekki eins erfitt
og ég hefði haldið.“ n
Heidi Pétursdóttir
Svava S. Steinarsdóttir og sonurinn Stefán Sölvi, 6 ára.