Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Page 30
30 fólk - viðtal 27. apríl 2018 skólunum og foreldrar geta sungið með börnunum sínum.“ Hefur þú spilað mikið fyrir börn? „Ég hef alltaf gert það, já. Í mörg ár spilaði ég fyrir þroskaheftu börnin á Selfossi, á vinnuheim- ilinu þeirra. Þau voru svo glöð að syngja og þakklát.“ Það er ekki laust við að Árni klökkni örlítið á þessum stað í samtalinu. „Það er svo margt sem undirstrikar í smá- atriðum hvað er mest virði. Þarna var drengur sem hafði lamast ung- ur og var eiginlega út úr myndinni. En hann hafði fallegasta bros sem ég hafði séð. Sá bjargarlausasti af öllum en með fallegasta brosið. Þetta sest í mann.“ Utangarðs í flokknum Viðbrögð stjórnvalda, eða skortur á þeim réttara sagt, urðu til þess að Árni bauð sig fram til Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 1983 og náði kjöri. Alls sat hann á þingi frá 1983 til 2013 með hléum 1987 til 1991, þegar hann náði ekki kjöri, og árin 2001 til 2007 þegar hann sagði af sér þingmennsku vegna misferlis með reikninga og hlaut tveggja ára fangelsisdóm. Árni var alla tíð hávær og um- deildur þingmaður, ekki síst inn- an eigin flokks. En engum duld- ist að hann barðist dyggilega fyrir sína heimabyggð. „Mér fannst Eyjamenn fara svo illa út úr kerfinu. Þeim var ekki hjálpað eins og til stóð eftir gosið en það hefur verið þannig alla tíð. Eyjamönnum hefur alla tíð verið gert að bjarga sér sjálfir. Áður fyrr voru Eyjarnar séreign konungs og kallaðar gullkista Íslands. Nýhöfn- in, Konunglega leikhúsið og allt þetta var byggt fyrir peninga héð- an. Við áttum að vinna fyrir öllu en fá ekkert í staðinn. Þess vegna fór ég út í pólitík.“ Árni segir að honum hafi geng- ið vel á þingi og hann náð ýmsum þjóðþrifamálum í gegn með setu í fjárlaganefnd. Hann sótti mál hart og fékk margt í gegn með frekju og eftirfylgni að eigin sögn. Krabba- meinsdeildin, fjarkennsla og til- kynningarskylda sjómanna eru mál sem nefnd eru sérstaklega. Hann gerði sér þó grein fyrir því að samvinna við aðra þingmenn, sama í hvaða flokki þeir stóðu, var mikilvæg. Það kemur hik á Árna þegar hann er spurður hvort honum hafi alltaf gengið vel að vinna í flokknum. „Ég var eiginlega ekkert í flokkn- um,“ segir hann loks. „Þetta er eins og með tónlistina. Ég hef gefið út fleiri hundruð lög, en Andrea Jóns hefur aldrei spilað þau í útvarpinu. Mér hefur heldur aldrei verið boð- ið að flytja ræðu í Valhöll, jafnvel þó að ég hafi verið einn af helstu ræðumönnum Sjálfstæðisflokks- ins í mörg ár. Þetta er bara svona, maður passaði ekki alls staðar inn. Ég var ekki venjulegur stjórn- málamaður, ég var byltingarmað- ur. Sennilega sá eini sem hefur setið á Alþingi Íslendinga. Ég tók af skarið og keyrði hlutina í gegn. Þess vegna var ég líka alveg djöful- lega umdeildur og margir biðu eft- ir tækifæri til að sparka í mig. En skítt með það, ég hef sterk bein,“ segir hann ákveðinn. Árni viðurkennir að í athafna- semi sinni hafi hann gert mistök. En hann hafi þá reynt að leiðrétta þau, klára og gera upp. Hann flettir í símanum og sýn- ir mér svo langa og innilega af- mæliskveðju sem hann fékk senda frá Sigmundi Davíð Gunnlaugs- syni, fyrrverandi forsætisráðherra. Það fer ekki á milli mála að hon- um þótti mjög vænt um kveðjuna og segir að þeir Sigmundur þekkist ekki einu sinni vel. „Ég hef ekki fengið svona kveðju frá mínum eigin sam- flokksmönnum.“ Árni hefur blendnar tilfinningar gagnvart stjórnmálunum í dag. Inni á Alþingi sé upp til hópa „nám- skeiðs- og skýrslufólk“ sem komi hlutum sjaldnast í verk. „Ég vil ekki vera að dæma einstaklinga en það er margt fólk í stjórnmálunum í dag sem hefur enga reynslu og ekk- ert verkvit. Gráður frá skólum og stofnunum skipta ekki máli. Stjórn- málin í dag ráðast að miklu leyti af dægurflugum og uppþotum. Hlutir eins og naglalakk geta hleypt öllu í bál og brand.“ Er hann þar mögu- lega að vísa í naglalakkstilraun Þor- steins V. Einars sonar, frambjóð- anda Vinstri grænna. Honum líst hins vegar ágætlega á þessa ríkisstjórn sem nú situr. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að Sjálfstæðismenn og kommarnir ættu að vinna saman. Það er svo margt líkt með þeim, þeir taka af skarið og standa við það sem þeir segja. Loksins þorðu gömlu allaballarnir að mæta til samstarfs við íhaldið,“ segir hann kátur. „Mér fannst mikilvægt að fá Framsókn með því þeir eru mjög stabílir. Því miður er það með apparat eins og Samfylkinguna, allt ágætisfólk og indælt, en þetta er eins og viðbrenndur bíxímatur. Þokkalegt á pönnunni framan af en skilar ekki árangri. Það var alltaf sagt að Jóhanna Sigurðar hefði gert svo mikið fyrir fólk. Kjaftæði. Ég skora á þig að finna eitthvað sem hún gerði, þetta var meira og minna blaður.“ Missti tvo syni í vetur Nú víkur talinu að öðrum og sorglegri hlutum. Því það er ekki hægt að skauta fram hjá því að síð- asta ár hefur verið örlagaríkt í lífi Árna, Halldóru og fjölskyldunn- ar allrar. Þann 30. nóvember varð Haukur A. Clausen, sonur Hall- dóru, bráðkvaddur á heimili sínu aðeins 58 ára gamall og 20. mars lést svo Breki Johnsen, sonur þeirra beggja, í slysi aðeins fer- tugur að aldri. Breki hafði barist við fíknivandamál í einhvern tíma og Árni lýsti því í minningargrein hversu sorglegt það hafi verið að tapa syninum í slíkri orrustu. „Allt var reynt sem hægt var til þess að fá hann til að þiggja þá aðstoð sem bauðst í baráttunni gegn Bakkusi, en hann þáði hana ekki.“ Þetta er búinn að vera erfiður vetur hjá þér Árni? „Já, veturinn er búinn að vera erfiður, svakalegur. Fyrst dó Hauk- ur, fóstursonurinn, og svo hann Breki minn. Það er ekkert til sem er eins sárt og sorgarsársauki, ekk- ert. Þetta er það alversta sem ég hef lent í og hef ég lent í mörgu. Hitt er allt saman smámunir og hjóm, alveg sama hvað það hefur verið þungbært á hverjum tíma. Ég get líkt þessu við að vera hent undir skriðjökul. Þá verður maður að reyna að standa á fótunum.“ Það er erfitt að heyra þessi þungu orð og auðséð hversu djúpt sorgin ristir. Of erfitt er að ræða þá baráttu sem Breki háði á sinni allt of stuttu ævi. „Það eiga allir sinn djöful að draga. Það er ekki hægt að komast undan því,“ segir Árni. Hvernig persóna var Breki? „Hann var magnaður. Ofboðs- lega fær og einnig blíður, góður og viðkvæmur. Hann sagði að við ætt- um að passa að misnota ekki stóru orðin því þau væru svo sár fyrir sál- ina. Maður verður að passa sig á að tala ekki af sér. Skólasystkini hans héldu minningarathöfn í Hóla- kirkju í Reykjavík þar sem mættu um 100 manns. Einn skólabróðir hans sagði: Það var alveg sama hvað Breki gerði, hann hafði ekk- ert hátt en hann var alltaf bestur. Sama hvort það var sem plötu- snúður, að spreyja, hjólabretti, snjóbretti eða hvað sem var. Hann tók flugpróf á breiðþotu í Flórída með hæstu einkunn og hann var einn af aðalmarkaskorurum Vals sem peyi. Hann var perla.“ Á veggnum fyrir ofan okkur í Höfðabóli hangir ein af graffití- myndum Breka, falleg mynd af rauð- leitum höndum og á eldhúsborðinu eru innrammaðar minningamyndir af honum og kerti. Breki gekk undir listamannsnafninu STARZ og vakti eftirtekt út fyrir landsteinana. Hann starfaði hins vegar aðeins sem flug- maður í skamma stund því hann átti við bakmeiðsli að stríða. Fylgdist þú vel með honum og þessari nýmóðins list og íþróttum sem hann stundaði? „Já. Við vorum afskaplega nán- ir. En hann hafði nú líka gaman af eldri tónlist. Mamma hans neit- aði einu lagi sem ég ætlaði að láta spila í útförinni hans. Kántrílaginu All my ex’s live in Texas,“ og nú lifnar aðeins yfir Eyjajarlinum. „Það var alveg í stíl Breka.“ Voruð þið líkir persónuleikar? „Já, og það er kannski eitt af því sem er erfitt. En ég hugsa að hann hafi verið heilsteyptari en ég.“ Getur þú sagt mér frá Hauki? „Haukur var mjög sérstakur og flottur, en sérvitur og fór sínar eig- in leiðir. Tölvugrúskari mikill og bjó til sína eigin veröld. Hann varð bráðkvaddur en hafði áður veikst alvarlega af krabbameini í læri.“ Voruð þið nánir? „Ekki eins og við Breki. Haukur vildi svo mikið vera einn, svona sérsinna. Hann var einfari. En yndislegur drengur.“ Auk sonanna sem Árni og Hall- dóra misstu eiga þau tvær dætur. Breki átti 15 ára son, Eldar Mána, sem Árni segir ákaflega líkan pabba sínum. Stutt í eilífðina Að lenda í svona áföllum, hvað þá tveimur á skömmum tíma, hlýtur að vera nærri óyfirstíganlegt. Haf- ið þið leitað hjálpar? „Við höfum fundið fyrir alveg ótrúlegri umhyggju og vinarþeli frá hundruðum manna úr Eyjum og af öllu landinu. Fólk hlúir að og notar hjarta sitt til að slá fyrir þá sem eiga um sárt að binda og það skiptir máli. Síðan höfum við mjög fína presta hérna sem hafa hjálpað. Þannig er styrkurinn í mörgum byggðarlögum, að fólki er ekki á sama hvernig hlutirnir æxlast.“ Hefur trúin hjálpað þér? „Já, hún gerir það og skiptir mig máli. Kristnin á Íslandi byrj- aði á þessum stað með byggingu stafkirkjunnar árið 1000, sem var síðan endurbyggð á Skansin- um. Mormónar voru hérna fyrst, hvítasunnumenn, aðventistar. Eina trúarhreyfingin sem ekki hef- ur átt upptök sín í Vestmannaeyj- um eru Vottar Jehóva.“ Árni segist ekki vita fyrir víst af hverju trúin er svona sterk í Eyjum en hann hefur sínar kenningar um það. Tengslin við náttúruna, ná- lægðin við hafið og mannskaðarnir. „Fimm hundruð sjómenn hafa farist á síðustu hundrað árum við Vestmannaeyjar, það eru fimm á ári. Ég tel að þetta valdi meiri ná- lægð samfélagsins við það sem heitir trúarlíf. Hér er allt smátt og stutt í eilífðina. Ég segi alltaf að það smæsta sé næst guði.“ Árni og Halldóra eru gest- risið og hlýtt fólk þó að sorgin og erfið leikarnir grúfi yfir þessa stundina. Árni sýnir okkur verkin sín fyrir utan Smiðjuna og Hall- dóra býður upp á heita og ljúf- fenga brauðtertu. Pistilinn fæ ég að skrifa í torfbænum sem er eins og nýmóðins sumarhús að innan. Hér er þessi ekta hlýja sem mað- ur finnur svo sterkt fyrir á lands- byggðinni. Við tökum smá rúnt fram hjá Stafkirkjunni á Skansin- um sem Árni lét byggja á sínum tíma. Síðan kveðjum við þau með virktum áður en haldið er upp í Herjólf. n „Það eiga allir sinn djöful að draga. Það er ekki hægt að komast undan því. „Þarna var drengur sem hafði lamast ungur og var eiginlega út úr myndinni. En hann hafði fallegasta bros sem ég hafði séð“ Mydn hanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.