Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Qupperneq 33
Ferðalok 27. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ
Bergsteinar er nýtt fyrirtæki sem sérhæf-ir sig í sölu á legsteinum og tengdum munum. Eigendur eru Lárus Einarsson
og Matthildur Þórðardóttir. Þau hafa langa
reynslu úr faginu en þau ráku áður fyrr leg-
steinagerðina Englasteina sem þau síðan
seldu árið 2008. Hjá Bergsteinum eru seldir
eingöngu sérhannaðir granítsteinar sem koma
frá ýmsum löndum.
„Við erum eingöngu með granítsteina. Sumir
eru með grófum, tilhöggnum köntum, en aðrir
með slípuðum, póleruðum og sléttum köntum.
Sumir eru með blómaskrauti sem er höggvið
er í steininn. Það er ljósara en hinn eiginlegi
litur granítsins þar sem það finnst í náttúrunni.
Liturinn á steininum kemur hins vegar fram
þegar hann er slípaður og póleraður,“ segir
Matthildur.
„Svörtu steinarnir eru allir í sama svarta
litnum en litbrigði hinna steinanna eru mjög
margvísleg því þetta er náttúrugrjót, hver og
einn steinn er frábrugðinn öðrum. Fólk fær
nákvæmlega þann stein sem það velur í sýn-
ingarsal hjá okkur, ekki svipaðan eða sambæri-
legan steinn, því engir tveir steinar eru eins.“
Legsteinarnir eru til í nokkrum stærðum
og auk þess er sérstök lögbundin stærð fyrir
steina fyrir duftleiði. Auk steinanna selja Berg-
steinar ljósker, vasa, postulínsmyndir í ramma
og blómaramma.
„Áletrunin er síðan innifalin í verði á öllum
legsteinum hjá okkur. Við útbúum tillögur að
leturgerð og uppsetningu á áletruninni og ber-
um undir viðskiptavininn, áður en byrjað er að
vinna legsteininn“ segir Matthildur.
Verð á legsteinum kemur fram á heimasíð-
unni www.bergsteinar.is.
Bergsteinar eru til húsa að Auðbrekku 4
Kópavogi. Opið er mánudaga til föstudaga frá
10 til 17 en einnig er hægt hringja 537-1029 á
opnunartíma og fá að koma á öðrum tímum.
„Sumir þurfa góðan tíma og vilja vera í einrúmi
á meðan skoðað er,“ segir Matthildur og bætir
við að þetta starf sé mjög gefandi.
Auk höfuðborgarsvæðisins keyra Bergstein-
ar út legsteina til nágrannabyggða þess, eins
og til dæmis á Suðurnesin, austur fyrir fjall og
á Akranes. Þarf þá að greiða sérstaklega fyrir
aksturinn en uppsetning á legsteininum er inni-
falin í verði. Viðskiptavinir lengra úti á landi fá
steinana senda til sín án flutningsgjalds.
Sími á afgreiðslutíma verslunarinnar er 537-
1029 og netfang er bergsteinar@bergsteinar.
is. Gott er að skoða úrvalið á vefsíðunni www.
bergsteinar.is.
BErGStEinAr:
Hver og einn
legsteinn er einstakur