Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Page 35
Ferðalok 27. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ Litla trésmiðjan, líkkistu­vinnustofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar árið 2010. Flestar kisturnar eru seldar í gegnum Útfararstofu Kirkjugarða Akureyrar, en einnig selur Litla trésmiðjan út fyrir Akureyri. Fólk kemur til Litlu tré­ smiðjunnar til að skoða og segir eigandi hennar það alltaf góða tilfinningu. „Ég er aðallega að smíða líkkistur,“ segir Sigurður Óli Þórisson, trésmiður og eigandi Litlu trésmiðjunnar. „Einnig smíða ég glugga og opnanleg fög í eldra húsnæði og stund­ um hurðir. Svo eru húsgagnaviðgerðir hluti af starfseminni, bæði á nýjum og svo eldri húsgögnum.“ Sigurður Óli flutti 17 ára til Akur­ eyrar, lærði húsasmíði og fékk meistararéttindi og hefur unnið við trésmíðar meira og minna allt sitt líf, eins og hann segir sjálfur. Eftir hrun hannaði hann, ásamt Sæmundi Friðfinnssyni, líkkistuna sem fyrst var framleidd hjá Tréborg á Akureyri. Árið 2010 ákvað Sigurður Óli að halda einn áfram með líkkistusmíðina og hefur hann starfað við það síðan. Umræðan um andlát opnari en áður „Það er opnari umræða í dag, andlát og útfarir voru lítið rædd á almanna­ færi áður fyrr. Nú er fólk opnara fyrir þessum hlutum. Það er betra að það sé þannig. Eftir fæðingu verður dauðinn ekki umflúinn. Hins vegar eru endalokin ekki alltaf tímabær því miður.“ Íslensk hönnun smíðuð af kostgæfni Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar úr MDF­plötum og sprautaðar hvítar. „Í gamla daga voru líkkisturnar svartar, þá voru þær bikaðar. Síðan urðu þær hvítar, en ég hef einnig sprautað þær í lit eftir óskum hverju sinni. Við hönnun fórum við aftur í tímann með formið og fólki finnst vel hafa til tekist. Maður er ánægður og stoltur,“ segir Sigurður Óli. „Maður er einn að vinna við smíðina, þannig að hún er íslenskt handverk og hönnun, ekki verksmiðju­ framleiðsla. Ég vinn hverja kistu alveg frá upphafi til enda, ég smíða krossa, alla fylgihluti og bólstra kistuna. Gæðaeftirlitið er þannig, að þegar ég er orðinn ánægður með hand­ verkið má afhenda kistuna. Ein kista er gott dagsverk. Stærri kistur eru meiri vinna og því aðeins dýrari. Samt stenst Litla trésmiðjan allan verð­ samanburð. Innflutningur er stærsti keppinauturinn.“ Litla trésmiðjan er að Austursíðu 2, Akureyri. Síminn er 898-7686 og heimasíðan er kistur.is. LITLA TrÉSMIðjAN: „Hverri kistu fylgir ákveðin tilfinning“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.