Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Síða 35
Ferðalok 27. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ
Litla trésmiðjan, líkkistuvinnustofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar
árið 2010. Flestar kisturnar eru
seldar í gegnum Útfararstofu
Kirkjugarða Akureyrar, en einnig
selur Litla trésmiðjan út fyrir
Akureyri. Fólk kemur til Litlu tré
smiðjunnar til að skoða og segir
eigandi hennar það alltaf góða
tilfinningu.
„Ég er aðallega að smíða
líkkistur,“ segir Sigurður Óli
Þórisson, trésmiður og eigandi
Litlu trésmiðjunnar. „Einnig
smíða ég glugga og opnanleg
fög í eldra húsnæði og stund
um hurðir. Svo eru húsgagnaviðgerðir
hluti af starfseminni, bæði á nýjum
og svo eldri húsgögnum.“
Sigurður Óli flutti 17 ára til Akur
eyrar, lærði húsasmíði og fékk
meistararéttindi og hefur unnið við
trésmíðar meira og minna allt sitt
líf, eins og hann segir sjálfur. Eftir
hrun hannaði hann, ásamt Sæmundi
Friðfinnssyni, líkkistuna sem fyrst var
framleidd hjá Tréborg á Akureyri. Árið
2010 ákvað Sigurður Óli að halda
einn áfram með líkkistusmíðina og
hefur hann starfað við það síðan.
Umræðan um andlát opnari
en áður
„Það er opnari umræða í dag, andlát
og útfarir voru lítið rædd á almanna
færi áður fyrr. Nú er fólk opnara fyrir
þessum hlutum. Það er betra að
það sé þannig. Eftir fæðingu verður
dauðinn ekki umflúinn. Hins vegar
eru endalokin ekki alltaf tímabær því
miður.“
Íslensk hönnun smíðuð af kostgæfni
Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar úr
MDFplötum og sprautaðar hvítar. „Í
gamla daga voru líkkisturnar svartar,
þá voru þær bikaðar. Síðan urðu
þær hvítar, en ég hef einnig sprautað
þær í lit eftir óskum hverju sinni. Við
hönnun fórum við aftur í tímann með
formið og fólki finnst vel hafa til tekist.
Maður er ánægður og stoltur,“ segir
Sigurður Óli. „Maður er einn að vinna
við smíðina, þannig að hún er íslenskt
handverk og hönnun, ekki verksmiðju
framleiðsla. Ég vinn hverja kistu alveg
frá upphafi til enda, ég smíða krossa,
alla fylgihluti og bólstra kistuna.
Gæðaeftirlitið er þannig, að þegar
ég er orðinn ánægður með hand
verkið má afhenda kistuna. Ein kista
er gott dagsverk. Stærri kistur eru
meiri vinna og því aðeins dýrari. Samt
stenst Litla trésmiðjan allan verð
samanburð. Innflutningur er stærsti
keppinauturinn.“
Litla trésmiðjan er að Austursíðu 2,
Akureyri. Síminn er 898-7686
og heimasíðan er kistur.is.
LITLA TrÉSMIðjAN:
„Hverri kistu fylgir
ákveðin tilfinning“