Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 36
Ferðalok 27. apríl 2018KYNNINGARBLAÐ
SmurbrauðSStofa Sylvíu:
Ekta danskt smurbrauð
upp á gamla mátann
Guðrún Pétursdóttir, mat-reiðslumeistari með diplóma í danskri smurbrauðsgerð,
rekur Smurbrauðsstofu Sylvíu að
laugavegi 170. Hér er um að ræða
veisluþjónustu og sinnir Guðrún jöfn-
um höndum alls konar veislum, stór-
um og smáum. Guðrún keypti fyrir-
tækið af tengdamóður sinni, Sylvíu,
fyrir um tveimur árum, en Sylvía,
sem er lærð smurbrauðsjómfrú frá
Danmörku, rak Smurbrauðsstofu
Sylvíu í aldarfjórðung. Þetta er því
fyrirtæki sem stendur á gömlum og
traustum grunni og sérhæfir sig í
sinni kunnáttu og færni.
Guðrún lærði matreiðslu og út-
skrifaðist sem meistari. Smurbrauðs-
gerð lærði hún af tengdamóður sinni
og lauk diplóma með lokaprófi að
viðstöddum prófdómara, en fagið er
ekki kennt á íslandi.
Smurbrauðsgerð er þungamiðjan í
starfseminni en auk þess býður Guð-
rún upp á ýmislegt annað, til dæmis
tapasrétti, kökuhlaðborð og skraut-
legar og afar girnilegar brauðtertur.
Smurbrauðið hentar mjög vel í erfi-
drykkjur
að sögn Guðrúnar er smurbrauð
mjög heppilegur kostur í erfidrykkjur
þar sem oft eru standandi veitingar.
„við bjóðum upp á heildstætt kaffi-
borð fyrir þá sem vilja, þar sem eru
snittur, brauðtertur, sætar kökur og
flatkökur.“
Danska smurbrauðið er grunnur
sem á við ákaflega mörg tilefni:
„fyrirtæki leita mikið til mín og
panta fundarbrauð, við erum líka
mjög oft með veitingar í erfidrykkjum
og einnig í fleiri tegundum af veislum,
til dæmis útskriftum,“ segir Guðrún.
Hún afgreiðir pantanir um helgar
ef pantað er fyrir helgi og er sú þjón-
usta mikið notuð. aðspurð viðurkennir
Guðrún að hún sé alltaf vinnandi
en hún hefur líka afar gaman af
vinnunni.
veisluþjónustan Smurbrauðsstofa
Sylvíu er til húsa að laugavegi 170.
Guðrún er mjög sveigjanleg hvað
varðar tímasetningar en tekið er á
móti pöntunum ýmist í gegnum síma,
552-4825, eða í skilaboðum á face-
book-síðunni www.facebook.com/
smurbraudsstofa/. Það er líka gagn-
legt og gaman að skoða facebook-
síðuna því þar gefur að líta myndir af
fallegum og skrautlegum réttum og
og reglulega eru í gangi skemmtilegir
verðlaunaleikir.