Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Page 37
Ferðalok 27. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ
Útfararskreytingar og samúðarskreytingar eru alltaf að aukast
hjá okkur, enda leggjum
við mikið upp úr því að
veita persónulega þjón-
ustu og viljum láta persónu
hins látna endurspeglast í
skreytingunum. Þá er ég að
meina litaval og blómin sem
fara í skreytingarnar. Þetta
er hinsta kveðjustund og mér
finnst að þetta eigi að vera
eins fallegt og hugsast get-
ur því blómin veita svo mikla
heilun og hugarró fyrir þá
sem eftir standa. Þess vegna
spara ég aldrei blómin sem
fara í þessar skreytingar,“ segir
Þóra Guðrún Grímsdóttir hjá
Reykjavíkurblómum.
Reykjavíkurblóm hafa verið
starfandi í rúmlega fimm ár en
Þóra og eiginmaður hennar, Sigur-
steinn Steinþórsson, tóku við rekstrin-
um fyrir þremur árum. Megináherslan
er á blóm og blómaskreytingar, sem
og ýmsa gjafavöru.
„Að vinna með blóm er eins og
hver önnur listgrein, maður er alltaf
að skapa og gera nýja hluti með
blómunum, því engin blóm eru eins
og því verða engar tvær skreytingar
eins. Hvíti liturinn hefur verið al-
gengastur ásamt rauðu í þessum
skreytingum, en það er samt alltaf að
aukast að aðrir litir séu notaðir með,
því ef við notum uppáhaldsliti þess
látna þá verður þetta mikið persónu-
legra og ekki eins einsleitt.
Aðstandendur sem hafa misst
sína nánustu og fá eingöngu hvít
blóm segja það mjög yfirþyrm-
andi og hefðu gjarnan viljað fá
aðra liti með. Þeim skilaboðum
vil ég gjarnan koma á framfæri
hér,“ segir Þóra.
Reykjavíkurblóm eru til húsa
að Borgartúni 23. Símanúmer
er 5611300. Nánari upplýsingar
og myndir af skreytingum er
að finna á heimasíðunni www.
reykjavikurblom.is og Face-
book-síðunni www.facebook.
com/Reykjavikurblom.
ReykjAvíkuRBlóM:
Hver skreyting er einstök
Reykjavikurblóm
blómabúð.
Erfidrykkjan er í góðum
höndum hjá Veislulist
Veislulist er öflugt fjölskyldufyrir-tæki sem sinnir veislum af öllum stærðum og gerðum. veislulist
er í eigu þriggja bræðra en þeir eru
Birgir Arnar, Sigurpáll Örn og ómar
Már Birgissynir.
Meðal þess sem veislulist býður
upp á er fjölbreyttur pinnamatur,
tapas, smurbrauð, kökuhlaðborð og
steikarhlaðborð. Fyrirtækið veitir mjög
sérhæfða veitingaþjónustu fyrir þá
sem það kjósa en býður einnig upp á
staðlaða og vel tilgreinda kosti sem
margir nýta sér óbreytta.
veislulist sér meðal annars um
veitingar fyrir erfidrykkjur af öllum
stærðum, í heimahúsum eða veislu-
sölum, hvort sem er kaffihlaðborð eða
léttar veitingar sem henta í stand-
andi veislur. Á heimasíðu fyrirtæk-
isins, veislulist.is, má finna ítarlegar
upplýsingar um úrval veisluborða og
verð. Meðal rétta eru marsípantertur,
rjómatertur, heimabökuð gulrótarterta,
súkkulaðiterta, marengsterta, epla-
terta, kaffisnittur, flatkökur, heitir
brauðréttir, pönnukökur, brauðtertur
og margt fleira.
einnig er í boði pinnamatur, léttur
hádegisverður og matarmiklar súpur.
Slíkum réttum geta síðan fylgt tertur í
eftirrétti, ávaxtabakkar og margt fleira.
Þeir bræður sýna mikinn sveigj-
anleika varðandi það ef veislur eru
pantaðar með mjög litlum fyrirvara
og reyna alltaf að uppfylla óskir fólks.
Þeir mæla samt með því að fólk hafi
samband með góðum fyrirvara en
algengast er að veislur séu pantaðar
með nokkurra daga fyrirvara.
„Fólk ætlar oft að sjá um
veitingarnar sjálft en brennur síðan
inni á tíma vegna anna og áttar sig
á því að það mun ekki ráða við þetta
tímanlega. Þá hefur það samband við
okkur og við reynum alltaf að bjarga
málunum,“ segir Sigurpáll. Hann bæt-
ir hins vegar við að oft geri fólk hluta
af veitingunum sjálft en veislulist komi
með það sem upp á vantar og jafnan
gengur sú samvinna með ágætum:
„Þá förum við gjarnan yfir það
hvað fólk ætlar að vera með svo við
getum leiðbeint því með hvað hent-
ar og hvað hentar ekki, hvað fer vel
saman og svo framvegis.“
Allar nánari upplýsingar eru veittar
í síma 555-1810, á vefsíðunni veislu-
list.is og einnig hægt að senda fyrir-
spurnir á netfangið info@veislulist.is.