Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Síða 39
lífsstíll - tækni 3927. apríl 2018
Nýjustu tækNiuNdriN
Skráir niður svefn þinn
Með sínum tveimur litlu skynjurum fylgist Philips
SmartSleep með svefni þínum. Ef tækið skynjar að
svefnbylgjur þínar verða of hægar grípur það inn í með
hljóðmerkjum sem örva djúpan svefn og lengri. Tækið
sker sig úr frá öðrum álíka tækjum sem fylgjast ein-
göngu með svefnmynstrinu en grípa ekki inn í eins og
SmartSleep. Tækið skráir allan svefninn niður og kemur
með ráðleggingar um hvernig er hægt að bæta hann.
Ein með öllu
Vuzix Blade-snjallgleraugu
eru bráðnauðsynleg eign
sem kemur að góðu gagni. Nú
þarftu ekki lengur að hrópa
til að gefa tölvubúnaði þínum
fyrirskipanir. Gleraugun eru með
innbyggðan hljóðnema og myndavél
og snertimús á hliðinni. En ekki nóg með það, því
þessi „venjulega“ útlítandi sólgleraugu geta einnig tengst
við síma og þú getur svarað í símann með gleraugunum.
Snjall ísskápur Samsung er ekki
bara með nýjungar í sjónvörpum þessa dagana
því nýr snjallísskápur ætti að vekja áhuga
margra. Ísskápurinn kemur með hugmyndir að
mataruppskriftum byggðar á því sem er í honum
hverju sinni en myndavélar eru í ísskápnum. En ís-
skápurinn snjalli kemur ekki bara með uppskriftir
byggðar á hvað er í honum hverju sinni því hann
tekur einnig með í reikninginn hvað heimilisfólk
vill helst borða, hugsanlegt ofnæmi heimilisfólks
og þess utan er hann með smáforrit sem safnar
upplýsingum um tilboð matvöruverslana og
setur á innkaupalistann.
Félaginn passar afa þinn
Vina vélmennið Buddy robot er ekki aðeins sætur
hlutur til að leika sér að heldur til ýmissa hluta
nytsamlegt. Það er með innbyggt raddstjórnunar-
kerfi, getur séð um myndsímtöl og er forritað til að
geta gert ýmislegt á tæknivæddu heimili. Buddy
getur passað afa þinn og ömmu, kennt börnunum og
jafnvel gómað innbrotsþjófa. Buddy kemur fljótlega
á markað en mun kosta skildinginn, væntanlega ekki
undir 200.000 krónum hingað kominn.Varað við sólinni
Snyrtivörufyrirtækið L’Oreal hefur þróað tæki sem
mælir hversu sterkir útfjólubláir geislar sólarinnar
eru hverju sinni. Þetta er auðvitað skyldueign tækn-
inördsins sem leggur stund á útiveru. Skynjarinn
er aðeins 2 millimetra þykkur og 9 millimetrar í
þvermál. Það er ekki hægt að tengja hann með Blu-
etooth eða þráðlausu netsambandi við síma. Aftur
á móti er hægt að skanna hann með símanum til að
sækja þau gögn sem skynjarinn hefur safnað. Það er
einfalt að vera með hann á nögl eða á sólgleraugun-
um. Skynjarinn sendir síðan viðvörun, ef þörf er á, í
símann þinn í gegnum smáforrit.
Taska sem eltir þig Þegar kemur að ferðalögum er auð-
vitað ekki hægt að láta sjá sig með neitt annað en allra nýjustu og tækni-
legustu ferðatöskurnar, að minnsta kosti ef maður vill standa undir nafni
sem tækninörd. ForwardX CX-1-ferðataskan er tæknilegasta ferðataskan
sem er á markaðnum í dag. Hún ekur á eftir þér á allt að 10 kílómetra hraða
á klukkustund og sér sjálf um aksturinn. Þú þarft ekki einu sinni að halda í
hana. Taskan er með 170 gráða breiðlinsu og raddgreiningarbúnað sem ger-
ir henni kleift að elta þig um flugvöllinn og sneiða hjá hindrunum á leiðinni.
Með töskunni fylgir armband sem lætur þig vita ef þið verðið viðskila.
Skyldueign
tækninördsins
Samsung-einingaveggsjónvarpið er
auðvitað skyldueign tækninördsins.
Samsung slær hvað eftir annað í gegn með
framleiðslu sinni og ætla má að þetta nýja 146 tomma veggsjónvarp verði
engin undantekning þar á. Það er örLED-tækni sem leggur grunninn að
þessu ótrúlega sjónvarpi sem samanstendur af mörgum litlum einingum
sem er hægt að raða saman eftir eigin smekk.
sem þú
verður að
eignast
Stuttur flugtími en myndbönd í háskerpu
AirSelfie 2-vasaflygildið er álíka stórt og iPhone og því auðvelt að hafa það í vasan-
um. Þegar taka á sjálfu er ekki annað að gera en draga AirSelfie 2 upp úr vasanum og
setja á loft og með sína 12 megapixla myndavél tekur flygildið síðan myndir og mynd-
bönd í háskerpu. Það er með 16 Gb minni og með því fylgir smáforrit til að tengjast
iOS- og Android-símum. Flugtíminn er þó aðeins fjórar og hálf mínúta.