Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Side 52
52 menning 27. apríl 2018 Remote Control Sódóma Reykjavík Sódóma Reykjavík er hornsteinn íslenskra farsa (jæja, á eftir Stellu í orlofi) en titillinn er óþjáll og klaufalegur á enskri tungu. Þýð- ingin sleppir öllum flækjum. Öll myndin snýst í grunninn um æv- intýralega leit einnar manneskju að sjónvarpsfjarstýringu móður sinnar: best að kalla hana bara Remote Control. Heppilega hefur þetta heiti fleira en eina merkingu á enska málinu sem á prýðilega við. Life in a Fishbowl Vonarstræti Lífið í fiskabúrinu er nafn bókarinnar sem persóna Þor- steins Bachmanns í myndinni skrifar. Titillinn er því langt frá því að vera fjarstæðukenndur og rammar líka vel inn ákveðna sögupunkta, til dæmis því hvernig líkja má litla Ís- landi við fiskabúr. Við rekumst öll á hvert annað reglulega og oft fyrir slysni. En hvort titillinn sé sölu- vænlegur er önnur saga. Ef velja á milli þessara tveggja titla verður að segjast eins og er að Vonarstræti er einfaldlega snyrtilegri og flottari. Illegal Traffic Reykjavík-Rotterdam Eins og kemur fram hér að fram- an er oft best að koma sér beint að efninu. Þótt Reykjavík-Rotterdam sé ekki beinlínis óaðgengilegur tit- ill á heimsvísu, þá var Illegal Traffic talinn betri í sumum Evrópulönd- um. Leikstjórinn Baltasar Kormák- ur, sem fór með aðalhlutverkið í íslensku útgáfunni en leikstýrði þeirri erlendu, tókst vel upp með því að nefna endurgerðina Contra- band. Það flæðir betur. Virgin Mountain Fúsi Þessi titill slær örlítið fyrir neðan beltisstað, en gengur upp. Dorks & Damsels Astrópía Astrópía er ein- falt, við- eigandi, grípandi og alþjóð- legt, eða svo mætti ætla. Nei, hér hefur verið lögð meiri áhersla á niðrandi merkingu nörda. Ætli myndin hefði náð að sópa til sín rúmlega 50 þúsund áhorfendum ef hún hefði heitið „Lúðar og dömur“? Cool Jazz & Coconuts Hvítir mávar Þennan titil er erfitt að slá út og vel að verki staðið. Sá sem heyrir þenn- an hljómfagra grípandi titil á ensku í stað þess upprunalegra sem vísar í íslenskt dægurlag, byrjar strax að poppa og hella kók í glas. Hressari verða titlarnir ekki. Dramarama Villiljós Við fyrstu sýn virðist þessi titill fárán- legur og líkastur hreinum farsa. En þegar titilinn er skoðaður betur er niðurstaðan önnur. Orðið „rama“ er dregið af „orama“ og er undir áhrifum af gríska orðinu yfir út- sýni eða sjónarhorn. Villiljós má segja að bjóði upp á ágætis útsýni yfir drama í íslensku samfélagi, eða nokkur dæmi um slíkt. Spooks and Spirits Ófeigur gengur aftur „Draugar og andar“. Þennan titil mætti taka í sátt ef fleiri vofur væru í myndinni. Eða myndin betri. No Network Dugguholufólkið Einfaldur titill en ekki beint barn- vænn eða líklegur til að tala til barna. Hins vegar hljómar „The Dugg Pit People“ ekkert heldur neitt ofsalega vel. The Icelandic Shock Station Stella í orlofi Ótrúlegt en satt, Stella í orlofi er stundum kölluð þessu merki- lega heiti á ensku. Þetta kem- ur til dæmis fram á heimasíðu Icelandic Film Centre. Oftar en ekki eru heiti á íslenskum kvikmyndum þýdd beint þegar ætlunin er að herja á erlenda markaði. Það er þó ekki alltaf svo og stundum hafa íslenskir framleiðendur reynt að búa til sérstaka titla sem eflaust eiga að skerpa á sölupunktinum sem innlenda heitið gerði ekki. Stundum eru erlendu titlarnir svalir og viðeigandi, en stundum missa þeir marks og verða stórfurðulegir. Skoðum blöndu af hvoru tveggja. tomas@dv.is „The IcelandIc Shock STaTIon“ Erlend heiti á íslenskum kvikmyndum Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is Dan Wiium Hdl, lögg. fasteignasali, Sími 896-4013 Ólafur Guðmundsson Sölustjóri, sími 896-4090 Þórarinn Friðriksson Lögg. fasteignasali, sími 844-6353 Rakel Salóme Eydal Skjalagerð Sigurbjörn Skarphéðinsson Lögg. fasteignasali, skjalagerð Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár Ásta María Benónýsdóttir Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.