Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Side 58
58 fólk 27. apríl 2018
Heyrst hefur...
Árshátíð starfsmanna Bláa lóns-
ins var haldin með pomp og prakt í
Laugardalshöll síðastliðinn laugar-
dag.
Emmsjé Gauti, Salka Sól, Jói
P og Króli, Ragga Gísla, Frið-
rik Dór, Pálmi Sigurhjartar,
Albatros, karlakór og dansarar
sáu um að skemmta gestum og
var ekkert til sparað til að árshátíð-
in væri sem glæsilegust.
Hagnaður Bláa lónsins var 2,6 millj-
arðar árið 2016 og líkur á að hann hafi auk-
ist í fyrra. Það var því ærin ástæða fyrir starfsmenn að fagna og
skála fyrir góðum árangri.
Sýningin Rocky Horror sem sýnd er
í Borgarleikhúsinu hefur svo sannar-
lega slegið í gegn. Þar fer Páll Óskar
í hlutverki Frank-N-Furter fremstur
í flokki leikara og dansara í sýn-
ingu sem einkennist af söng, gleði
og litum.
Í lok sýningarinnar býðst áhorf-
endum að stíga upp á svið og dansa
með í lokalaginu. Á meðal þeirra sem
stigu upp á svið síðastliðinn sunnudag
var parið Ágúst Bent rappari og Dóra Jó-
hannsdóttir, leikkona og einn höfunda áramótaskaupsins í fyrra.
Íris Björk Tanya
Jónsdóttir
sleikti sólina
á Tenerife
með ný-
fermdum
tvíbura-
dætrum
sínum á
meðan iðnað-
armenn unnu að
því að koma nýju heimili
þeirra í Garðabæ í stand.
Íris Björk hefur getið sér
gott orð fyrir skartgripi
sína, bæði heima og erlendis, sem hún selur undir nafninu Vera
Design.
„Sváfum eins og englar í nýju hálfkláruðu íbúðinni okkar fyrstu
nóttina,“ sagði Íris Björk um fyrstu nóttina á nýja heimilinu.
Eyfi býðst til að sjá um mark-
aðsmál í Leifsstöð.
Tónlistarmanninn Eyjólf
Kristjánsson rak í rogastans eins
og fleiri ferðalanga þegar hann
átti leið um Leifsstöð nýlega á leið í frí
þegar hann kom að öllum stöðum lok-
uðum.
Bauðst hann til þess í stöðufærslu á Face-
book að taka að sér markaðsmálin. Það væri ekki amalegt að setj-
ast niður með mat og einn drykk undir gítarspili og söng frá Eyfa í
Leifsstöð, kannski það gerist ef yfirmenn girða sig ekki í brók með
opnunartímann.
„Hver stjórnar eiginlega markaðsmálum í Flugstöð Leifs? Kl. er
18.40, fullt af fólki hér, barinn er lokaður, Nord matsölustaður er
lokaður, þeir auglýsa: Breakfast-Lunch-Dinner!!! Hvenær er dinner
hjá þeim??? Skal taka að mér markaðsmál fyrir veitingastaðina, sá
sem sér um þau mál hlýtur að verða rekinn brátt“
Kristborg Bóel Steindórs-
dóttir, blaðamaður hjá Austur-
glugganum og sjálfstæð móðir
fjögurra barna, fagnaði stórum
áfanga á fimmtudag þegar hún
fékk nýjasta barn sitt í hendur,
bókina 261 dagur.
Bókarheitið 261 lýsir því
tímabili sem leið frá því að kær-
asti hennar og barnsfaðir gekk
út úr lífi hennar og heimur-
inn hrundi. Hún ákvað að deila
sögu sinni enda taldi hún skorta
skilning á því hversu erfið sam-
bandsslit geta orðið.
„Langri og strangri meðgöngu og fæðingu lokið. Móður og barni
heilsast vel. Þyngd: 371 grömm. Lengd: 21 cm. Blaðsíður: 416. 261
dagur – kemur í verslanir 4. maí.“
Það er af sem áður var að fólk fari aðeins út að borða á
föstudegi eða laugardegi. Fjöldi matsölustaða á höfuð-
borgarsvæðinu er mikill og hægt að finna alla flóruna, eft-
ir því hvaða matur manni finnst bestur.
Á Von mathúsi og bar við Strandgötu í Hafnarfirði mátti
sjá söngkonuna Selmu Björnsdóttur, sem innan skamms
stígur á svið í ABBA í Hörpu, hjónin Sollu Eiríksdóttur og
Elías Guðmundsson, sem reka Gló með glæsibrag, og Ísleif
Þórhallsson, framkvæmdastjóra Senu Live. Við treystum á
að hann hafi verið að semja við einhverjar stórsveitir um að
heimsækja Ísland á næstunni.
Ingibjörg vill 189 milljónir
fyrir glæsilegt einbýli í 101
Ingibjörg Þórðardóttir, fasteignasali hjá
Híbýli í Kringlunni, hefur sett fasteign sína í sölu
hjá Fasteignamarkaðinum.
Um er að ræða glæsilegt einbýlishús á þremur hæðum
við Fjölnisveg í miðbæ Reykjavíkur. Fasteignin er samtals
um 330 fermetrar, parket og marmaraflísar eru á gólfum, á
neðri hæðunum tveimur eru samliggjandi stofur. Svefnher-
bergin eru í risi hússins. Í bílskúrnum, sem er tvöfaldur, er
möguleiki á að útbúa stúdíóíbúð.
Það er ekki oft sem jafn glæsilegar eignir í 101 koma í sölu.
Borðuðu á leyndasta
veitingastað landsins
Sumac á Laugaveginum
hefur slegið í gegn og fullt er
þar öll kvöld, en litríkir og
ljúffengir réttir undir áhrif-
um frá Líbanon og Marokkó
eru töfraðir þar fram úr
eldhúsinu, sem er opið svo
gestir geta fylgst með elda-
mennskunni.
Í vikunni mátti sjá þá félaga Vil-
hjálm H. Vilhjálmsson hæstaréttarlög-
mann, Þorsteinn M. Jónsson (Steina
í kók) og Jakob Frímann Magnús-
son Stuðmann með meiru snæða þar
á geymdasta (ennþá) veitingastað
landsins, veitingastaðnum ÓX, sem er
nýr veitingastaður inn af Sumac.
Á Sumac mátti hins vegar sjá
teiknarann og rithöfundinn Bergúnu
Írisi Sævarsdóttur meðal gesta.
Frægir á Von
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Þorsteinn
M. Jónsson
Jakob Frímann
Magnússon
Bergún Íris
Sævarsdóttir