Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 60
lífsstíll - BLEIKT 2127. apríl 2018
Það getur verið kostnaðarsamt fyrir budduna og
heimilisbókhaldið að matvæli lendi í ruslinu. Svo ekki
sé nú farið út í hversu mikil matarsóun það er.
M
eð réttri meðhöndlum
má láta matvælin end-
ast mun lengur. Hér eru
10 ráð sem eru einföld og
ættu að nýtast flestum heimilum
til að draga úr kostnaði við matar-
innkaupin.
góðar leið
ir til að lá
ta
matvælin
endast le
ngur10
Geymið engiferrótina í frystinum: Þá er mun
auðveldara að rífa hana niður og hún geymist mun lengur.
Lokið fyrir plast-
pokana: Skerið toppinn
af plastflösku, þræðið pokann í
gegn og skrúfið tappann á. Gætið
þess að matvaran sé þurr svo
raki lokist ekki inni í pokanum.
Vefjið sellerí,
spergilkál og kál inn
í álpappír: Gerið þetta um leið og
komið er heim úr búðinni og matvælin haldast
fersk mun lengur.
Frystið kryddjurtirnar í ólífuolíu: Hellið ólífuolíu í klaka-
form og setjið kryddjurtirnar út í. Olían mun draga í sig bragð af jurtunum. Notið eftir þörfum
til steikingar.
Hendið strax ávöxtum
sem eru byrjaðir að rotna:
Fylgist vel með hvort ávextirnir séu byrjaðir að
skemmast. Mygla dreifir sér hratt og getur valdið því
að matvæli sem komast í snertingu við ónýta ávöxtinn
skemmist hraðar.
Vefjið plast-
filmu um
toppinn á
bananaklas-
anum: Þeir geymast
um það bil viku lengur.
Geymið sveppina
í pappírspoka:
Plast lokar inni raka sem
veldur því að sveppirn-
ir mygla.
Frystið eggin ef þau eru að
renna út: Takið egg og hrærið saman með gaffli,
setjið örlítið salt eða sykur, um það til ½ tsk. fyrir hver 6
egg. Það má frysta þau til dæmis 3 saman í poka sem er al-
gengt magn í bakstri, eða í klakaformi. Einn klaki er svipað
magn og eitt lítið egg. Einnig má frysta eggjahvítur
og eggjarauður í sitt hvoru lagi. Ef eggjarauður
eru frystar er látið örlítið salt eða ½ tsk. fyrir
12–14 eggjarauður. Það þarf ekki salt í
eggjahvíturnar, aðeins skella þeim í poka,
loka fyrir og setja í frysti.
Geymið kartöflur og epli saman:
Eplin koma í veg fyrir að kartöflurnar spíri.
Leggið eldhúspappír
ofan á salatið: Pappírinn
dregur í sig raka og salatið geymist mun lengur.