Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Qupperneq 62
62 fólk 27. apríl 2018
Bókin á náttborði
Stefáns Mána
„Þessa
dagana er ég að
lesa bókina Erró - Margfalt
líf eftir Aðalstein Ingólfsson.
Heimsókn á Listasafn Reykjavíkur á
dögunum varð til að endurvekja áhuga
minn á þessum merka listamanni og
bóhem sem fæddist í mínum heimabæ,
Ólafsvík. Ég fór með krökkunum mínum á
sýninguna og það var alveg magnað að sjá
hversu vel æska nútímans tengir vel við og
þekkir „referenca“ gamla meistarans. Svo
bíður mín á Borgarbókasafninu bókin
Fire and fury eftir Michael Wolff en ég
var á biðlista eftir henni. Forsetatíð
fábjánans Trump er auðvitað
eins og tryllt veggmynd
eftir Erró.“
Hvað segir
pabbi?
Atvinnudansarinn Hanna Rún
Bazev Óladóttir, hefur raðað
inn titlum og verðlaunum í
dansinum, bæði hér heima og
erlendis, allt frá því hún byrj
aði að dansa sem barn. Þessa
daga heillar hún sjónvarps
áhorfendur ásamt dansfélaga
sínum, Bergþóri Pálssyni, í
Allir geta dansað á Stöð 2. DV
heyrði í föður Hönnu, gull
smiðnum Óla, sem stutt hefur
dóttur sína alla tíð á dansferl
inum og spurði: Hvað segir
pabbi um dótturina?
„Það er margt hægt að segja
um Hönnu Rún, en í æsku var
hún ótrúlega mikill orkubolti
og uppátækjasöm, sem féll
misvel í kramið hjá okkur for
eldrunum. Það er ekki hægt að
tala um Hönnu Rún án þess að
minnast á dansinn, því hann
hefur átt hug hennar, alla tíð
síðan hún byrjaði að dansa
fjögurra ára gömul. Hanna Rún
er hjartahlý og góð stelpa, með
ótrúlega góða nærveru, sem
vill öllum vel. Hennar stærsti
galli, er kannski sá að henni er
næstum ómögulegt að segja
nei, og það bitnar alltaf mest
á henni sjálfri. Hún er mikil
keppnismanneskja, og ótrúlega
fjölhæf. Hún er mjög flink að
teikna, yrkir ljóð, gerir teikni
myndasögur, spilar á píanó,
syngur, saumar og hannar alls
konar föt, fyrir sig og aðra. Hún
er súper pabbastelpa.“
M
æðgurnar Sigþrúður Silju
Gunnarsdóttir og Silja
Aðalsteinsdóttir starfa
báðar sem ritstjórar hjá
Forlaginu.
Bókmenntafræðingurinn Silja
og íslenskufræðingurinn Sigga
eru einstaklega samrýndar mæðg
ur og deila sömu áhugamálum:
áhuga á bókmenntum og íslensku
og að miðla til annarra. Svo vel eru
þær í takt að í vikunni mættu þær
í stíl í vinnuna. Flottar og frábærar
Forlagsmæðgur!
I
ngólfur Hjálmar Ragnarsson
Geirdal fagnar fimmtugs
afmæli sínu þann 9. maí næst
komandi. Það er þó ekki eina
stórafmælið sem hann fagnar í ár,
því hann hefur einnig sýnt töfra
brögð í 40 ár og heldur hann af því
tilefni afmælissýningu í Salnum í
Kópavogi sunnudaginn 13. maí.
Í dag er Ingó, eins og hann er
jafnan kallaður, best þekktur sem
gítarleikari þungarokksveitar
innar Dimmu, sem hann stofn
aði ásamt bróður sínum, Silla
Geirdal bassaleikara, árið 2004.
Ingó hefur þó verið í sviðsljósinu
frá 10 ára aldri, en hann var byrj
aður að æfa og sýna töfrabrögð á
þeim aldri, en þeir sem komnir
eru á miðjan aldur muna vel eftir
skemmtunum Ingós.
„Ég fékk áhugann þegar ég var
sex ára og var 10 ára þegar ég hr
ingdi í Baldur Brjánsson, sem þá
var eini starfandi töframaðurinn
á Íslandi, og sagði honum að við
værum kollegar. Við þyrftum því
að hittast og ræða málin,“ seg
ir Ingó. Baldur hló að drengnum
í fyrstu, en Ingó gafst ekki upp
og komu þeir síðar fram í sjón
varpsþáttum saman. „Baldur
og ég erum ennþá góðir vinir
og hann kenndi mér mikið.“
Sýndi töfrabrögð heima
og erlendis
Ingó byrjaði 10 ára gamall
að sýna töfrabrögð sín á
skemmtistöðum á kvöldin,
meðal annars í Hollywood,
skemmtistaðnum vin
sæla sem var í Ármúla 5
árin 1978–1987. „Ég var
12 ára þegar ég var orðinn
fastráðinn og kom fram
tvisvar í miðri viku. Ég
kom fram um hálf eitt
um nóttina og foreldrar
mínir einfaldlega skutl
uðu mér og biðu á með
an ég sýndi. Um helgar
kom ég fram á Skiphóli
í Hafnarfirði.
Maður leit á þetta sem
tækifæri til að koma fram,
var að fá auglýsingu í blöðum
og smá pening í vasann. Bekkj
arfélögum mínum fannst þetta
skrýtið, en spennandi um leið.“
Árið 1986 þegar Ingó var 18 ára
kom hann í fyrsta sinn fram er
lendis, á Nordisk MagiKongress í
Stokkhólmi. Árin 2007–2010 vann
Ingó eingöngu við að sýna töfra
brögð og hefur hann í gegnum
árin sýnt á fjölmörgum skemmt
unum, skemmtiferðaskipum og
í sjónvarpsþáttum í Skandinav
íu, Asíu og Ameríku. Auk þess
að skemmta í einkaboðum fyrir
Sigur Rós, Depeche Mode og
Alice Cooper. Til gamans má
geta þess að Ingó er gríðarleg
ur aðdáandi Cooper, hef
ur hitt hann margoft
og sótt marga tónleika
hans, auk þess sem
Dimma hitaði upp
fyrir hann á tónleik
um í Kaplakrika árið
2005. Einnig á Ingó
fjölda muna frá
Cooper: sviðsföt,
sviðsmuni, hand
skrifaða lagatexta frá
19782005 og fleira.
„Ég tók pásu
1992–2004,
en
þetta blundaði alltaf í mér og
áhuginn var áfram til staðar, en
ég kom ekkert fram, var bara í
músíkinni. Þegar ég byrjaði aft
ur fékk ég síðan enn meiri áhuga
en áður.“
Ingó sýnir oft á árshátíðum, í
þorrablótum og slíku hjá fyrir
tækjum og félagasamtökum, en
einnig í stórafmælum, ferm
ingarveislum og fleiri viðburð
um. „Það er sjaldan sem al
menningi gefst kostur á að sjá
sýninguna mína, það eru
komin þrjú ár síðan
ég hélt slíka sýn
ingu.
Þetta er í
blóðinu. Töfrar
eru ástríða mín
og sé ekki fyrir
mér að ég sé að hætta einhvern
tímann. Maður er alltaf að undir
búa, æfa og hanna ný atriði,
þannig að þegar ég er búinn
með þessa sýningu fer ég strax
að huga að næstu og ég held að
það verði ekki mjög langt í hana,“
segir Ingó, sem er með sinn eigin
stíl á sýningunum. „Ég er sami
karakterinn og á tónleikum
með Dimmu, þetta er bara
minn persónuleiki og oft er
ég í sömu fötunum. Þegar ég
var yngri var ég oft klædd
ur í jakkaföt, en í seinni tíð
held ég mig bara við minn
stíl og er svoleiðis alltaf,
ég er alltaf svartklæddur,
sama hvar ég er eða hvern
ig viðrar.“
Þrátt fyrir langan,
áhugaverðan og farsælan
feril á tveimur sviðum,
töfrabrögðunum og tón
listinni, er Ingó þó ávallt
stoltastur af dótturinni
Katrínu Jenný sem fæddist
2008. Hún er hjá móð
ur sinni í Svíþjóð, en kem
ur reglulega í heimsókn til
föður síns á Íslandi og má
þá stundum sjá hana bak
sviðs að fylgjast með honum
á sviðinu. Hvort hún feti í fót
spor föður síns í töfrabrögðun
um og/eða tónlistinni mun tím
inn leiða í ljós. n
Töfrar Ingó í fjóra áratugi
„Töfrar eru
ástríða mín“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Samstilltar mæðgur í stíl
Silja og Sigga:
Auglýsingar um skemmtanir Ingós birtust
reglulega á sínum tíma og skemmtanir voru
vel sóttar, þó að áhorfendur væru töluvert
eldri að árum en töframaðurinn ungi.
Ingó hefur náð töluverðri
færni í bæði spilagöldrum og
beygingu hnífapara, tækni
sem ísraelski sjónhverfinga-
maðurinn Uri Geller vakti mikla
athygli með á sínum tíma.
Mynd Ólöf ERla EinaRSdÓttiR/SvaRt.