Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Qupperneq 64
27. apríl 2018
16. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Pabbi, þú
hefðir mátt
hafa mig
í lit!
„Hann er ruglaður eins og guð“
H
ugsunin var að Loki myndi
snúa úr fréttunum á bak-
síðunni. Með tíkarlegar
athugasemdir og útúrsnún-
ing,“ segir Jón Óskar myndlistar-
maður í samtali við DV. Jón Óskar
er maðurinn sem teiknaði upp-
haflega Loka sem finna má hér á
baksíðu DV. Loki hóf göngu sína
á baksíðu Vísis þriðjudaginn 20.
mars 1979 en þá starfaði Jón Óskar,
sem þá var um tvítugt, sem út-
litsteiknari á blaðinu. Loki endaði
svo í DV þegar Vísir sameinaðist
Dagblaðinu árið 1981.
„Þá voru Þorsteinn Pálsson og
Ólafur Ragnarsson ritstjórar Vísis,
en Loki var hugmynd Ólafs. Ég held
að fyrirmyndin hafi verið Karlinn í
kassanum, sem var geðvond fígúra
í Mánudagsblaðinu í gamla daga.
Ólafur var nýkominn á blaðið eftir
að hafa verið fréttaþulur hjá Sjón-
varpinu, hann var uppátækja-
samur ritstjóri. Þorsteinn sá um
stjórnmálahlutann en Ólafur var
aðallega í menningar- og dægur-
málum, hann var alltaf á tánum
að finna eitthvað til að hrista upp
í blaðinu. Við eigum þetta beibí
saman ég og Ólafur,“ segir Jón
Óskar. Loki hefur breyst nokkuð á
þeim nærri 40 árum sem liðin eru
frá því hann birtist fyrst. Í lýsingu
á Loka sem birt var í Vísi um sum-
arið 1979 var talað um hann sem
„teiknifígúru sem tjáir sig mein-
lega um málefni líðandi stundar.“
Nafnið vísar í Loka Laufeyjarson úr
norrænu goðafræðinni, óútreikn-
anleg og óáreiðanleg persóna. Jón
Óskar segir það líklegast tilviljun
að það sé Loki sem loki blaðinu
með því að vera á baksíðunni.
„Það sem við sáum ekki fyrir var
hversu margir koma að honum, Loki
fer bara eftir því hvaða blaðamaður
eru á vakt. Sumir eru voða fyndnir
á meðan sumir eru þyngri. Útkom-
an er að Loki er eins og geðsjúkling-
ur, því þetta eru þúsund persónur
að baki,“ segir Jón Óskar. „Mér varð
hugsað til Loka þegar ég las bók-
ina Ævisaga Guðs eftir Jack Miles,
þá reyndi rithöfundurinn að taka
saman persónuna Guð og niður-
staðan var að Guð er eins og geð-
sjúklingur því það eru svo margir
höfundar sem komu að honum.
Það má segja það sama um Loka,
hann er ruglaður eins og Guð,“ segir
Jón Óskar og hlær. Hann hefur fylgst
með sköpunarverkinu í gegnum tíð-
ina. „Á tímabili var hann brjálæðis-
lega fyndinn, stundum hefur hann
verið algjört kvikindi.“
Útlit Loka hefur aldrei breyst
en hann hefur verið hreinsaður í
gegnum tíðina, hefur Jón Óskar
sjálfur séð um að fíngera teikn-
inguna þegar hann hefur sinnt
afleysingastörfum hjá DV, síð-
ast skömmu eftir aldamót. Varð-
andi teikninguna segir Jón Óskar
það hafa tekið tíma að finna réttan
svip. „Það var glíma að finna rétta
glottið, hann mátti ekki vera sætur
á baksíðunni, hann þurfti að vera
dálítið kvikindislegur. Ég held að
ég hafi gert 30 teikningar þangað til
ég náði rétta svipnum.“ n
ari@dv.is
Jón Óskar er skapari Loka sem undantekningarlaust á síðasta orðið í DV
Auðvelt að versla á byko.is
Nýtt
blað
Gleðilegt sumar!
Skoðaðu
blaðið á
byko.is
Frjáls gegn
vilja sínum
Skáksambandsmálið varð enn
furðulegra í vikunni og var ekki á
það bætandi. Þá staðfesti Lands-
réttur farbannsúrskurð yfir Sigurði
Kristinssyni, sem er grunaður um
að hafa smyglað
fimm kílóum af
amfetamíni til
landsins frá Spáni
eins og frægt er
orðið. Í gögnum
málsins kemur
fram að Sigurður hafi óskað þess að
vera áfram í haldi lögreglu frekar en
að sæta farbanni. Ástæðan er víst
sú að gæsluvarðhald setur aukinn
þrýsting á lögreglu og saksóknara
að ljúka rannsókn og gefa út ákæru.
Aðalástæðan er þó væntanlega sú
að hljóti Sigurður dóm þá kemur
gæsluvarðhaldsvistin til frádráttar
fangelsisrefsingunni. Landsréttur
varð ekki við þessari ósk og Sigurður
getur því tímabundið um frjálst
höfuð strokið hér á landi, þvert gegn
vilja sínum.