Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 76
76
Hver einasta sekúnda skiptir máli þeg-ar maður fellur í sjó eða vatn. Við þær aðstæður hefur margsannað sig
hvert gildi vandaðs björgunarbúnaðar er en
hér á landi hefur um áratugaskeið verið
framleiddur öflugur búnaður til að bregðast
við því þegar maður fellur fyrir borð, svo-
kallað Markúsarnet. Pétur Th. Pétursson,
framkvæmdastjóri Markus Lifenet ehf. í
Hafnarfirði segir Markúsarnetið henta öllum
gerðum skipa og báta, flutningaskipum,
skemmtibátum, skútum og þannig mætti
áfram telja. Mikill meirihluti framleiðslunnar
fer á erlendan markað og því er Markúsar-
netið nú orðið þekkt um allan heim.
Pétur leggur mikla áherslu á að fram-
leiðsla fyrirtækisins standist alþjóðlegar
kröfur og hefur það þegar fengið ISO
9001:2015 gæðavottun Lloyd´s Register
Quality Assurance í Svíþjóð til hönnunar og
framleiðslu á björgunarbúnaði fyrir skip og
báta og umhverfi á sjó og vötnum. Þetta
segir hann aðalforsendu þess að fyrirtækið
geti framleitt og selt björgunar- og öryggis-
búnað fyrir skip um allan heim og uppfyllt
kröfur sem gerðar eru til slíks búnaðar
samkvæmt SOLAS, alþjóðasamþykktinni
um öryggi á heimshöfunum og reglum ein-
stakra aðildarríkja IMO, Alþjóða Siglinga-
málastofnunarinnar. Markúsarnetið er
framleitt í mismunandi útfærslum eftir
þeirri notkun sem því er ætlað. Bæði er um
að ræða sérhönnuð net til björgunar á
mönnum í sjó og einnig net sem fest eru á
borðstokk skipa og báta, klifurnet eða sér-
stök net til að draga mann um borð.
„Fyrir árið 2000 var nóg að hafa sam-
þykki fyrir búnaðinum í nokkrum viður-
kenndum ríkjum á 5 ára fresti, en eftir 2000
jukust kröfurnar og gerð var krafa um að
siglingayfirvald í framleiðslulandi og flokk-
unarfélag tækju út vöruna og vottuðu að
hún uppfyllti settar kröfur. Markúsarnet af
gerðinni MS var viðurkennt af Lloyd´s Reg-
ister EMEA árið 2000 og hefur verið endur-
nýjuð fjórum sinnum eftir það,“ segir Pétur.
Þær kröfur, sem framleiðsla Markúsar-
netsins uppfyllir, tryggja útgerðaraðilum að
búnaðurinn er framleiddur til að standast
íslenskar aðstæður, bæði á sjó og landi og
að hann sé einnig yfirfarinn reglulega, bæði
af áhöfn og utanaðkomandi aðila sem við-
urkenndur er af viðkomandi siglingayfir-
völdum og framleiðanda.
Markus Lifenet ehf. framleiðir einnig
fleiri gerðir björgunarbúnaðar, s.s. klifurnet,
veltinet, neyðarstiga, slæðikörfur og björg-
unarlínur sem styðja við Markúsarnetið og
mæta sértækum kröfum fyrir hvert skip.
„Auk þess að bjóða viðurkenndar lausnir
til að bjarga fólki úr sjó bjóðum við útgerð-
araðilum ráðgjöf um hvernig þeir geti best
uppfyllt þessar kröfur og aðlagað þær að
sínum rekstri. Nýlega voru afhent 3 m breið
og 25 metra löng klifurnet til Suður Kóreu
sem dæmi, en þau voru margfalt léttari og
fyrirferðaminni en hefðbundin net sem
notuð hafa verið til þessa,“ segir Pétur.
markusnet.com
Markúsarnetið til bjargar
þegar líf liggur við
Pétur Th. Pétursson, framkvæmdastjóri Markus Lifenet ehf. í Hafnarfirði. Klifurnet getur skipt öllu máli þegar bjarga þarf
úr sjó.