Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 54
54
Við munum á Íslensku sjávarútvegs-sýningunni kynna þá víðtæku þjón-ustu og þann slagkraft sem við get-
um boðið í skipaþjónustu á Akureyri. Hér
geta útgerðarfyrirtæki gengið að mikilli
sérþekkingu í flestu sem lýtur að viðhalds-
og breytingaverkefnum í fiskiskipum. Allt
eru þetta fyrirtæki sem eru öflug og vel
þekkt á sínum sérsviðum og hafa
mikla reynslu í verkefnum í
sjávarútvegi hérlendis og erlendis,“ segir
Guðmundur H. Hannesson, sölu- og mark-
aðsstjóri Kælismiðjunnar Frosts á Akureyri
en fyrirtækið hefur samstarf um kynningar-
bás á sýningunni við Slippinn Akureyri ehf.
og rafverktakafyrirtækið Rafeyri ehf.
Mikil sérþekking á Akureyri
Guðmundur segir fyrirtækin þrjú hafa unnið
saman að mörgum stórum verkefnum á
síðustu árum og þekki því vel hvort til ann-
ars. „Í Slippnum Akureyri höfum við bestu
slippaðstöðuna hér á landi og þekkingu í
viðhaldi skipa og smíði búnaðar. Hjá okkur í
Kælismiðjunni Frost geta viðskiptavinir
fengið allt frá hönnun til uppsetningar
kæli- og frystibúnaðar, auk þeirrar þekk-
ingar sem við búum yfir í viðhaldi á slíkum
kerfum. Og hjá Rafeyri ehf. er að finna mikla
reynslu í öllu sem lýtur að rafmagni í fiski-
skipum. Þessu til viðbótar höfum við hér á
Akureyri öflug fyrirtæki í mörgum öðrum
þáttum sem snúa að verkefnum af þessu
tagi; t.d. sölu og þjónustu við fiskileitar- og
siglingatæki, trésmíði, Zinkhúðun, fram-
leiðslu á fiskvinnsluvélum og margt fleira.
Við teljum þess vegna að það sé mjög góð-
ur kostur fyrir íslenskar útgerðir að horfa til
Akureyrar þegar kemur að viðhaldi og
breytingum á fiskiskipum,“ segir Guðmund-
ur.
Góð verkefnastaða hjá Frost
Guðmundur segir verkefnastöðuna hjá
Kælismiðjunni Frost góða. Fyrirtækið seldi
kælibúnað í sjö af þeim nýju ferskfisktogur-
um sem koma til landsins í ár og einnig er
unnið að uppsetningu frystibúnaðar í fimm
nýjum frystitogurum í Noregi. Einn er þegar
afhentur til Kanada, Newfoundland Vic-
tor sem er að hluta í eigu Sam-
herja. Tveir þeirra eru
smíðaðir fyrir
Deutch Fischfang
Union og var sá
fyrri, Cuxhaven,
afhentur full-
búinn fyrir
skömmu.
„Við höfum
einnig nýlega, í sam-
starfi við Rafeyri og Skag-
Guðmundur H. Hannesson, sölu- og markaðsstjóri Kælismiðunnar Frosts.
Meðal stórra verkefna sem framundan eru hjá Kælismiðjunni Frost
er uppsetning nýrrar uppsjávarverksmiðju í Færeyjum. Það verkefni
er í samstarfi við tvö önnur íslensk fyrirtæki, Skagann 3X ehf. og
Rafeyri ehf. en um er að ræða verksmiðju sem í byrjun getur fryst
1400 tonn af síld á sólarhring.