Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 152
152
Bátasmiðjan Rán á Djúpavogi sérhæfir sig í
framleiðslu á bátum og fiskieldiskvíum úr
svokölluðu HDPE plasti og hefur unnið
mikið fyrir norskt fiskeldi. Verkefni fyrir ís-
lenskt fiskeldi fara líka hraðvaxandi og segir
Vilhjálmur Benediktsson, eigandi fyrirtæk-
isins að Fenrir bátarnir frá Rán séu tilvaldir
sem þjónustubátar fyrir fiskeldisstöðvarnar.
„Fenrir bátana má fá hjá okkur í fimm
stærðum, þ.e. 5,5, 6,5, 7,5, 8,5 og 9,5 metra
langa. Þetta eru kraftmiklir og hraðskreiðir
bátar, búnir öflugum dísilvélum og hafa t.d.
verið útfærðir sem björgunarbátar eða
skemmtibátar,“ segir Vilhjálmur en stærstu
bátana má fá útfærða með stýrishúsi og
ýmsum aukabúnaði. „Fyrir fiskeldisfyrir-
tækin skiptir miklu máli að vera með hrað-
skreiða þjónustubáta sem geta komist fljótt
á milli eldiskvíanna og lands en líka báta
sem þola að liggja upp við kvíarnar þegar
ókyrrt er í sjó. HDPE plastið er einmitt efni
sem þolir slíkt álag vel og einmitt þess
vegna er það valið í eldiskvíarnar. Ég sé því
tækifæri í sölu á Fenrir bátunum í fiskeldi,
bæði hér á landi og í Noregi en einnig í ýmsa
aðra notkun,“ segir Vilhjálmur.
boats.is
Fenrir bátarnir eru framleiddir í fimm stærðum og mörgum útfærslum.
Fenrir bátar fyrir fiskeldið
Light and sturdy hull
With their 23° angled V-shaped hull, the Fenrir boats are designed to ride rough
seas with minimum shock impact. Made of the HDPE material – five times stronger
than traditional fiberglass used for boat building and with a lifetime of 50 years –
there is no need to worry about paintwork, corrosion or any kind of hull maintenance
as the material is extremely algae and barnacle repellent.
Mörk 2 - 765 Djúpivogur
Símar +354 - 478 1020 / +354 691 1022
villi@boats.is - www.boats.is
FENRIR Vinnubátar
Frístundabátar
Þjónustubátar
Björgunarbátar
Sterkir og endingargóðir
bátar úr HDPE plast .
Fáanlegir í fimm stærðum
og mörgum útfærslum .
Hafðu samband.