Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 140
140
Plast, miðar & tæki (Pmt) er fjölskyldu-fyrirtæki, rekið af afkomendum Odds Sigurðssonar. Rætur Pmt ná til þess að
sextugur að aldri byrjaði Oddur Sigurðsson
með Plastos (Plastpokaverksmiðju Odds
Sigurðssonar) í sama bílskúrnum og hann
stofnaði Plastprent 14 árum áður. Sigurður,
sonur Odds, vann með föður sínum frá upp-
hafi og kom í fullt starf eftir þriggja ára
rekstur. Nú hefur þriðja kynslóðin tekið við
stjórnartaumunum sem eru í dag í höndum
Odds Sigurðssonar barnabarns stofnandans.
Í dag er Pmt með allt til merkinga og
pökkunar og er til húsa á Krókhálsi þar sem
starfar frábær hópur fólks. Þar er einnig
starfrækt fullkomin prentsmiðja þar sem
prentaðir eru límmiðar, límbönd og plast-
filmur. Jafnframt er þar stimplagerð með
Colop og Trodat stimplum sem er mörgum
fyrirtækjum að góðu kunn. Söludeildin er
mönnuð frábæru fólki sem ráðleggur um
lausnir fyrir pökkun og merkingu og hjá
verkstæðinu eru kraftmiklir snillingar sem
eru ávallt reiðubúnir að aðstoða.
Í dag kemur um helmingur sölu fyrir-
tækisins frá prentsmiðjunni en hinn helm-
ingur frá ýmsum tækjum og vörum til
merkinga eða pökkunar. Meðal helstu
söluvara Pmt eru tölvuvogir, pökkunarvélar,
límmiðaprentarar, vöruprentarar, tæki til
matvælavinnslu, samvalspökkunarlínur,
færibönd, málmleitartæki, roðflettivélar
sem og ýmsar rekstrarvörur svo sem plast-
og vakúmpokar og merkimiðar í verðmerki-
byssur.
Með því að bjóða upp á vogir frá Ishida,
Tanita, Dibal, Espera, Vibra og Adam er
hægt að bjóða langmesta úrval af tölvu-
vogum á Íslandi. Eins og áður segir býður
Pmt allt til merkinga og pökkunar. Sú flóra
er mjög stór þar sem vörur eru merktar á
ýmsan hátt. Pmt býður upp á límmið-
aprentara frá Zebra, Godex og QuickLabel
sem prenta allt frá einum lit upp í litmynd í
fullum gæðum. Við mælum með NiceLabel
hugbúnað við prentun límmiða en með
notkun á honum er auðvelt að feitletra t.d
ofnæmisvalda eins og krafa er gerð um í
dag og jafnvel smíða sérstakt notendavið-
mót fyrir hvert og eitt fyrirtæki til að ein-
falda alla prentun þess. Pmt býður jafn-
framt breitt úrval af VideoJet vöruprentur-
um sem geta prentað beint á vöruna, hvort
sem er á filmu, gler eða kassa. Með því get-
ur náðst talsverð hagræðing í rekstrar-
kostnaði, enda prentararnir ódýrir í rekstri
og geta sparað í merkingarkostnaði.
Til matvælavinnslu býður Pmt skurðar-
hnífa frá Treif, roðflettivélar frá Cretel auk
hakka- og vakúmvéla og ýmissa annarra
tækja og umbúða til vinnslu matvæla.
Pmt er með gríðarlegt úrval af pökkun-
arvélum og má þar helst nefna vörumerkin
Lovero fyrir minni pökkunarvélar, Ulma sem
framleiðir stærri flæðipökkunarvélar og
HenkoVac sem sérhæfir sig í vakúmpökk-
unarvélum. Síðustu ár hefur Pmt kynnt og
selt hagkvæmar samvalspökkunarlínur frá
Kína. Pmt er meðal annars með umboð fyrir
HDM samvalsvogir og málmleitartæki og
Bohui pökkunarvélar. HDM er orðið mjög
þekkt af gæðum véla sinna og hefur vaxið
gríðarlega hratt. Þeir eru nú langstærsti
framleiðandi samvalsvoga í Kína og þriðji
stærstu í heimi. HDM og Bohui samvals-
pökkunarvélar hafa reynst mjög vel og í dag
eru yfir 24 pökkunarlínur frá HDM og Bohui
að pakka sælgæti, grænmeti, harðfiski o.fl.
hér á landi.
pmt.is
Pmt – gæði, þekking, þjónusta
Þrír ættliðir. Á myndinni eru feðgarnir Sigurður Oddsson og Oddur Sigurðsson við mynd af frumkvöðlinum, Oddi Sigurðssyni, stofn-
anda Plastos.