Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 112
112
Eldislausnir er stærsta þjónustufyrir-tæki fyrir fiskeldi á Íslandi í alhliða lausnum fyrir eldi á landi. Á þessari
sýningu mun Eldislausnir, í samstarfi við
fyrirtækið Redox í Noregi, kynna ósonbún-
að í fiskeldi og sjávarútvegi, en Redox er eitt
fremsta fyrirtæki í Noregi á þessu sviði og
hefur náð frábærum árangri við gerileyð-
ingu og sótthreinsun í landstöðvum fisk-
eldis, matvælavinnslum, sundlaugum og
skipum. Við bjóðum einnig upp á heildar-
lausnir í rafmagns- og pípulögnum ásamt
stýringum og forritun fyrir flest sem við-
kemur fiskeldi, fóðurstýringar, súrefnisstýr-
ingar, dælustýringar og fleira,“ segja þeir
Gunnlaugur Hólm og Hafsteinn Már Stein-
arsson, eigendur Eldislausna.
Eldislausnir eru einnig að smíða mikið af
búnaði fyrir fiskeldi eins og loftara, Oxy Cle-
ver súrefniskerfi og súrefniskúta, sem og
ýmsa sérsmíði aðra, bæði í plasti og stáli.
Eldislausnir vinna fyrir flest stóru fiskeldis-
fyrirtækin, Arnarlax, Laxa, Íslandsbleikju,
Náttúru, Ísþór og fleiri.
Með borholudælur á lager
Eldislausnir eru með umboð fyrir Rovatti
dælur og Felsom borholudælur, sem og
annan búnað fyrir eldið „Við liggjum ávallt
með á lager af borholudælum frá 4” til 12”
en einnig erum við með viðgerðir á dælum
og húðun á þeim. Fyrirtækið hefur einnig
verið að flytja inn fiskeldisker sem hafa ver-
ið sett upp á Gileyri fyrir Bæjarvík sem og
tekið þátt í uppbyggingu stöðvarinnar þar.
Einnig hefur fyrirtækið unnið náið með Löx-
um í uppbyggingu þeirra á nýrri eldistöð í
Þorlákshöfn og við endurnýjun á seiðaeldi-
stöðvum þeirra á Bakka og Fiskalóni í Ölf-
usi,“ segja þeir félagar.
Þorpin rísa úr öskustónni
með fiskeldinu
„Að okkar mati er fiskeldið frábært innlegg í
íslenskt atvinnulíf, sérstaklega á Vestfjörð-
um þar sem maður hefur séð þorpin hrein-
lega rísa úr öskustónni með fiskeldinu sem
þar er komið til sögunnar. Þar má taka
Bíldudal sem dæmi, en þar er blómlegt at-
vinnulíf í dag og vantar fólk til starfa. Fisk-
eldið er að rífa upp þessa staði, bæði fyrir
austan og vestan, þegar bolfiskvinnsla er
ekki lengur fyrir hendi. Við leggjum áherslu
á góða þjónustu við viðskiptavini okkar, er-
um alltaf reiðubúnir þegar okkar er þörf, en
það er grunnurinn að góðu samstarfi við
viðskiptavini okkar,“ segir þeir Gunnlaugur
og Hafsteinn.
eldislausnir.is
Unnið að uppsetningu á kerum og búnaði hjá Gileyri á Tálknafirði.
Eldislausnir
kynna Redox
hreinsibúnað Hafsteinn Már Steinarsson, einn eig-enda Eldislausna.