Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 150
150
Björgunar- og hlífðarbúnaður frá VLS er ís-
lenskum sjófarendum
að góðu kunnur enda
hefur fyrirtækið sér-
hæft sig í alls kyns ör-
yggisbúnaði um áratuga skeið. „VLS hóf að
framleiða björgunarbáta fyrir meira en 50
árum og hefur síðan útvíkkað framleiðslu
yfir í annan búnað. Má þar nefna björgun-
argalla, sem hafa verið í íslenska flotanum
frá því þeir voru lögboðnir árið 1987,“ segir
Stefán Kristófersson, sölustjóri Viking á Ís-
landi.
Fjölbreyttur björgunarbúnaður
Fyrirtækið er með stóra og góða aðstöðu að
Íshellu 7 í Hafnarfirði, en þar starfa nú um 15
manns. „VLS er danskt fyrirtæki með höf-
uðstöðvar í Esbjerg en með útibú og starf-
semi í öllum helstu hafnarborgum.“ VLS
framleiðir margar tegundir af björgunar-
búnaði og þjónustar jafnframt þá vöru sem
fyrirtækið framleiðir. VLS framleiðir einnig
galla og vesti sem fjölmargar björgunar-
sveitir nota. Einnig má nefna Landhelgis-
gæsluna, en þyrlusveitir og áhafnir varð-
skipa klæðast vestum og göllum frá Viking.
Þjónusta við slökkvilið
Veruleg aukning hefur orðið í sölu á hlífðar-
fatnaði fyrir slökkvilið hér á landi. „VLS hef-
ur lagt áherslu á varnir gegn krabbameins-
valdandi efnum sem geta myndast við
bruna og eru ein helsta ógn við heilsu
slökkviliðsmanna í starfi. Í göllunum frá VLS
er hægt að renna ytra byrðinu af og setja í
poka svo slökkviliðsmaður sé hreinni þegar
hann sest inn í bílinn. Síðan er hægt að þvo
ytra byrðið.“
Stefán segir starfsfólk VLS ánægt með
fyrirtækið og vörur þess og að bestu aug-
lýsingarnar á vörum frá VLS séu notendurnir
sjálfir, þ.e.a.s. íslenskir sjómenn og fagfólk í
björgunarmálum.
viking-life.com
PS5002 VIKING PU Húðaður Nylon Flotgalli
Material
VIKING
PU Húðaður
Nylon Flotgalli
n Flotgallinn er sammþykktur af
SOLAS og Siglingastofnun Íslands
n Flot innbyggt í baki
n Marglaga einangrun
n Stillingaról fyrir misjafnar stærðir
n Losanlegir hanskar auðvelda þér að fara í gallan
n Hífilína, félagalína ásamt neyðarljósi
n Fáanlegur í lofþéttum umbúðum
n Stærð: 140-200 cm
Yfirstærð: 190-210 cm
Fjölþátta flotgalli með tvöfaldri
einangrun sem hentar vel við íslenskar
aðstæður. VIKING PS5002 uppfyllir allar
kröfur sem gerðar eru til staðals og meira
til. Flotgallinn er með innbyggt flot í baki
sem gerir það að verkum að þú getur
notað hann án björgunarvestis, það getur
skipt sköpum við neyðaraðstæður!
Má nota án
björgunarvestis
Besta auglýsingin er
reynsla notenda
Stefán Kristófersson (til vinstri), sölustjóri hjá VLS og Stefán Magnússon þjónustustjóri við einn af björgunarbátunum sem fyrirtækið
selur: ,,VLS hefur sérhæft sig í alls kyns öryggisbúnaði um áratuga skeið.“
Stefán við nýjustu
útgáfu af
björgunargalla frá VLS
en þeir hafa verið í
íslenska flotanum frá
því þeir voru lögboðnir
árið 1987.