Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Brandshúsa-
bréfin
Erfikenningin Hænir skýjaguðinn
Loki Þekkingin
BRANDSHÚSABRÉFIN
Halldór Einarsson (1893-1977) tré-
skurðarmeistari var ötull bréfritari, ekki
síst þegar hann bjó í Chicago. Öll hans
bréf eru glötuð en hann aftur á móti hélt
til haga öllum bréfum sem honum
bárust.
Dory
Í Brandshúsabréfunum eru
þessi bréf nú birt í fyrsta sinn.
Bréfin eru flokkuð eftir því
hvort þau eru frá foreldrum
hans eða systkinum.
Í bókinni er einnig fjallað um sýninguna sem
Dory setti upp með mununum sínum á Sel-
fossi og hvernig hann og einn bróðir hans fóru
ólíkar leiðir í lífi sínu.
Ritstjóri verksins, Árni Blandon Einarsson,
stiklar á stóru í nokkrum neðanmálsgreinum
á atriðum er tengjast ævi Dóra.
Útgefandi: BRÚ
Dreifing: Forlagið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ökutími Sigurður Valur Jakobsson og Logi Stefánsson, nemandi hans, voru á rúntinum í gærdag og fóru þá um
austurhluta borgarinnar; Grafarvog og Hálsa og niður að Rauðavatni þar sem þessi mynd var tekin í góða veðrinu.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
A
uðvitað fylgist ég eins
og tök leyfa með
krökkunum sem ég
kenni þegar þau eru
komin með bílpróf.
Flestir eru nemendur mínir héðan
úr Grafarvoginum þar sem ég bý og
starfa og því eru heimatökin hæg,“
segir Sigurður Valur Jakobsson
ökukennari. „Flestir hafa nemend-
urnir verið það ég best veit farsælir
ökumenn en sumum hættir þó
stundum til að ofmeta eigin getu og
hæfileika. Það segir sig sjálft að
enginn er fullnuma sem bílstjóri
sautján ára gamall. Oft er sagt að
þú sért fyrst orðinn fullþroska sem
ökumaður 23 ára sem er sennilega
nærri lagi.“
Fornámið er
góður undirbúningur
Sigurður Valur og Sigurður
Pétursson, tengdafaðir hans, hafa
lengi starfað saman við ökukennslu.
„Ég kom inn í þetta fyrir rúmum
átta árum en tengdapabbi hefur
verið miklu lengur í þessu og er
núna farinn að kenna börnum þess
fólks sem var ökunemar á fyrstu ár-
um hans í faginu. Báðir höfum við
lengi starfað saman við Foldaskóla
hér í Grafarvogi svo þetta er ein
stór hringrás,“ segir Sigurður Valur
sem einkum kennir náttúrufræði-
greinar við skólann. Einnig fornám
fyrir ökunám sem nemendum býðst
í 10. bekk. Aðsókn í það nám hefur
verið góð og krakkarnir koma klár-
lega betur undirbúin en ella væri í
sjálft ökunámið, sem þau mega
hefja á 16 ára afmælisdaginn.
„Fornámið gengur út á einföld-
ustu atriðin; að þekkja merki og
helstu umferðarreglur. Margir
nemendur mínir í ökukennslunni
hafa áður verið hjá mér í fornáminu
í grunnskólanum og það er gaman
að fylgja þeim svona eftir. Sumir
krakkanna, ekki síst strákarnir,
hafa oft mikla bíladellu; hafa sumir
fengið á prófa að keyra úti í sveit
eða á afskekktum vegum og eru
þannig komnir með ákveðna undir-
stöðu. Aðrir eru algjörir byrj-
endur.“
Aka við allar aðstæður
Í ökunámi eru fyrst eru teknir
um það bil tíu verklegir tímar hjá
ökukennara. Ef allt gengur vel geta
ökunemarnir farið í æfingaakstur
hjá til dæmis foreldrum og öðlast
þannig nauðsynlega þjálfun.
„Æfingaaksturinn hefur mikið
að segja, því þar fá ökunemarnir
góða þjálfun við raunverulegar að-
stæður. Þá er líka gott að krakk-
arnir fái að keyra við allar mögu-
legar aðstæður, bæði í borgar-
umferð og úti á landi og það á við í
öllum veðrum,“ segir Sigurður
Valur. Einnig er farið hjá kennara í
bóklega þáttinn, sem nemendur
taka þó að mestum hluta sjálfir í
fjarnámi og -prófum yfir netið. Þá
er tekin þjálfun í svonefndum öku-
skóla 3, þar sem æfður er akstur í
hálku og við aðrar háskalegar að-
stæður á sérútbúnum bíl á kennslu-
svæði sem er í Kapelluhrauni rétt
sunnan við Hafnarfjörð.
Gengur bara betur næst
Alltaf er nokkuð um og fer
raunar vaxandi að krakkar taki bíl-
prófið seinna en við sautján ára
aldurinn, sum eru komin undir tví-
tugt þegar það gerist.
„Já, þetta hefur talsvert breyst
þó svo að sum geti hreinlega ekki
beðið eftir því að mega byrja.
Já, það er alltaf talsvert um fall
hjá nemendum í bóklega prófinu –
mjög margir þurfa tvær atrennur.
Verklega prófið hefur yfirleitt ekki
reynst jafn erfitt; en áður erum við
búin að þjálfa krakkana við allar
mögulegar aðstæður, það er í akstri
á beinum vegi, að bakka, bakka inn
í stæði og upp og niður brekkur, í
þröngri borgarumferð, úti á mal-
arvegum og jafnvel er farið upp á
Akranes í gegnum Hvalfjarðar-
göngin. Tímar hjá ökukennara
mega ekki vera færri en fimmtán,
sumir krakkar þurfa raunar fleiri
tíma, þau sem hafa ekki sinnt æf-
ingaakstrinum eða eru ekki nógu
vel undirbúin,“ segir Sigurður Valur
og bætir við:
„Annars á verklega ökuprófið
ekki að vera neitt mál, ef krakkar
eru vel undirbúnir. Stundum hendir
þó að þau eru stressuð í prófinu,
drepa á bílnum, gleyma að gefa
stefnuljós eða gera einhver önnur
mistök sem gefa refstig. Það getur
alla hent og þá gengur bara betur
næst.“
Flest verða
þau farsælir
ökumenn
Sigurður Valur Jakobsson er ökukennari í Grafarvogi.
Nemendur fá þjálfun hjá kennara í að aka við allar
mögulegar aðstæður og æfingaaksturinn er mikil-
vægur hluti af ferlinu. Enginn verður þó fullnuma sem
ökumaður fyrr en eftir nokkur ár á ferðinni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Miklabraut Vandasamt getur verið að aka í þéttri borgarumferð eins og
hér sést. Farið er í þau efni í ökunáminu og raunar ótalmargt fleira.
Opnuð verður kl. 17 á morgun, 1. júní,
í Menningarhúsinu í Spönginni í
Reykjavík sýning á ljósmyndum íbúa í
Grafarvogi í Reykjavík af hverfinu
sínu. Borgarbókasafnið í Spönginni
stóð í vor fyrir ljósmyndasamkeppni
og var þátttakan góð. Skilyrt var að
myndefnið væri úr Grafarvogi. Það
eina sem þurfti til var myndavél, það
er í símanum, í spjaldtölvunni eða
hefðbundin vél.
Grafarvogurinn er eitt fjölmenn-
asta hverfi Reykjavíkur með um 17
íbúa. Þar er blómlegt skólalíf, marg-
vísleg atvinnustarfsemi og sí-
breytileg náttúra allt um kring,
Myndefnin eru því mörg eins og sést
á sýningunni. Markmiðið með henni
og sýningunni var meðal annars að
vekja athygli á áhugaverðum stöðum
í hverfinu, jafnvel leynistöðum, sem
gaman væri að kanna nánar á göngu-
og hjólaferðum sumarsins sem fram-
undan er. Ekki er síður áhugavert að
bregða nýju ljósi á hversdagsleg
fyrirbæri sem blasa við okkur á hverj-
um degi í þessu hverfi sem var byggt
upp frá 1982 og fram að aldamótum.
Ljósmyndasýning í Spönginni opnuð á morgun
Ljósmyndir af leynistöðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grafarvogur Horft yfir Húsahverfið úr fallegri lúpínublárri blómabrekku.
„Þetta hefur gengið ljómandi
vel. Að stíga rétt á kúplinguna
þannig að bíllinn taki ekki
rykk er kannski mesta kúnstin
í þessu,“ segir Logi Stefáns-
son. Hann var í sínum sjötta
ökutíma hjá Sigurði Val í gær
og fær senn leyfi til æfinga-
aksturs undir leiðsögn for-
ráðamanns. „Ég reikna með
að við pabbi verðum á ferð-
inni í sumar. Þannig fæ ég
fína þjálfun við ýmsar að-
stæður. Við förum út á land
en einnig hér um bæinn því
það er nauðsynlegt að fá
þjálfun í borgarumferð, sem
stundum er stressandi.“
Kúplingin
er kúnstin
MIKILVÆG ÞJÁLFUN