Morgunblaðið - 31.05.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Hágæða
umhverfisvænar
hreinsivörur
fyrir bílinn þinn
Glansandi
flottur
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íslendingar sem ætla að styðja við
landsliðið í leik þess við Króatíu í
rússnesku borginni Rostov á HM fá
óvænt tækifæri til að sýna knatt-
spyrnuhæfileika sína sjálfir.
Íþróttamenn í rússnesku borginni
Rostov hafa skorað á stuðningsfólk
íslenska karlalandsliðsins að mæta
sér í strandbolta á leikdegi hinn 26.
júní.
Haukur Hauksson, fararstjóri og
Moskvubúi, vinnur að skipulagn-
ingu þessa viðburðar og reynir nú
að setja saman strandboltalið skip-
að íslenskum stuðningsmönnum.
Allsherjar strandhátíð
„Hugmyndin kom upp þegar ég
var í Rostov á dögunum í hópi
fréttamanna að skoða aðstæður fyr-
ir HM,“ segir Haukur, sem tekur á
móti hópi stuðningsfólks íslenska
landsliðsins á HM í næsta mánuði.
Stefnt er að því að leikurinn fari
fram á undan landsleiknum þriðju-
daginn 26. júní. Leikurinn hefst
ekki fyrr en klukkan 21 að stað-
artíma í Rostov og lagt er upp með
að strandboltinn verði síðdegis á
strönd Donfljóts, rétt við Rostov
Arnena-leikvanginn.
„Verðlaun hafa enn ekki verið
ákveðin en íþróttaandinn og sú
grundvallarregla íþróttahreyfing-
arinnar að aðalmálið er ekki að
sigra heldur að vera með vega
þyngst. Auk þess að sýna og
styrkja vináttu þjóðanna í verki,“
segir Haukur, sem telur að
skemmtilegast væri ef hægt er að
setja saman karla- og kvennalið en
finnist ekki mannskapur í það muni
Ísland tefla fram einu liði kvenna
og karla. „Við munum skipuleggja
allsherjar strandhátíð þarna, bjór,
grill og allur pakkinn.“
Leitað að leikmönnum
Strandbolti er, eins og nafnið
gefur til kynna, knattspyrna sem
leikin er á sandi. „Íþróttaaðstaðan
á ströndinni við Don-fljótið, er
mjög góð. Ströndin er rétt hjá
Rostov Arena þar sem leikurinn
mikilvægi við Króata fer fram,“
segir Haukur.
Nú er verið að leita að liðtækum
þátttakendum í strandboltann og
Haukur hvetur áhugasama Rúss-
landsfara til þess að láta í sér
heyra með tölvupósti á bjarmaland-
@bjarmaland.is eða í síma 770 50
60.
Skorað á Íslendinga í strandbolta
Heimamenn í rússnesku borginni Rostov skora á stuðningsmenn Íslands á HM
að keppa í strandbolta Upphitun fyrir leikinn við Króata Liðsmanna leitað
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ástríða Íslenskir stuðningsmenn kunna vel að styðja við sína menn. Stóra spurningin er hvort þeir þori sjálfir að
keppa í fótbolta í Rússlandi? Áhugasömum gefst í það minnsta tækifæri til að keppa við Rússa í strandbolta í Rostov.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Það er mikilvægt að aðstoða stúdenta
við að skapa félagsleg tengsl í háskóla
og það er eitt af verkefnum stúdenta-
garða,“ sagði Paula Dalziel á þingi
NSBO um húsnæðismál stúdenta sem
haldið var í Veröld síðastliðinn þriðju-
dag. NSBO eru norræn samtök sem
miða að því að deila vitneskju um stúd-
entahúsnæði á milli Norðurlandanna.
Paula vinnur sem stjórnandi dag-
legs lífs innan stúdentahúsnæðis hjá
Manchester Metropolitian University.
Í starfi sínu leitast hún við að byggja
upp heilbrigt samfélag fyrir stúdenta.
Hún segir það vera langtímaverkefni
að byggja upp slíkt samfélag en ein-
faldasta leiðin til að hefja uppbygg-
inguna sé að fá stúdenta til þess að
tala saman.
„Viðburðir eru mikilvægur liður í
þessu samhengi. Við höldum gjarnan
viðburði sem eru til þess gerðir að
stúdentar stofni til félagslegra
tengsla.“
Stúdentar styrktir félagslega
Að mati Paulu er mikilvægt að
styrkja stúdenta sem ekki finna sig í
háskólasamfélaginu til þess að skapa
sér félagslegt net. Í sjálfum stúdenta-
íbúðunum skiptir máli að til staðar séu
sameiginleg rými þar sem þau sem búi
í sama húsnæði hittist.
Rebekka Sigurðardóttir, upplýs-
ingafulltrúi Félagsstofnunnar stúd-
enta, segir að mikilvægi sameigin-
legra rýma hafi verið haft til
hliðsjónar þegar stúdentagarðar voru
byggðir á síðustu árum. Í nýlegum
stúdentagörðum séu hugguleg sam-
eiginleg rými og gluggar út frá þeim
stórir svo auðvelt sé að sjá inn í þau.
Þannig sé alltaf hægt að finna út hvort
eitthvað sé um að vera í þessum
rýmum.
Íbúðaráðgjafar hitta alla
Paula hefur á sínum snærum svo-
kallaða íbúðaráðgjafa sem spjalla við
stúdenta og skipuleggja viðburði. Þeir
þekkja nöfn allra íbúa og leitast við að
gera lífið á stúdentagörðunum sem
best. Mánaðarlega hittir hver stúdent
slíkan ráðgjafa og getur þá sagt ráð-
gjafanum frá hverju því sem honum
hugnast. Þannig skapa þau í Man-
chester samfélagið á stúdentagörðun-
um í samráði við stúdenta. Paula legg-
ur áherslu á mikilvægi þess að vinna að
heilbrigðu samfélagi fyrir stúdenta og
að það sé samvinnuverkefni háskóla,
stúdentagarða og samfélagsins í heild.
Mikilvægt að styrkja
stúdenta félagslega
Langtímaverkefni að skapa heilbrigt háskólasamfélag
Morgunblaðið/Valli
Stúdentar Paula segir mikilvægt að háskólinn, stúdentagarðar og sam-
félagið vinni í sameiningu að því að skapa heilbrigt háskólasamfélag.
Stúdentagarðar
» Hægt er að koma í veg
fyrir félagslega einangrun
með því að halda viðburði
sem stuðla að sköpun
tengslaneta.
» Skipulag innan stúdenta-
húsnæðis getur hjálpað til
við félagsleg samskipti.
» Íbúðaráðgjafar hafa það
hlutverk að komast að því
hverjar þarfir hvers stúdents
fyrir sig séu.
Forskot verður tekið á HM-sæluna í
Bíó Paradís við Hverfisgötu í kvöld
þegar viðburðurinn HÚ! í Paradís
verður formlega settur af stað.
Kvikmyndahúsið, stuðnings-
mannaliðið Tólfan og Hugleikur
Dagsson hafa tekið höndum saman
til að gera þessa upphitun sem mest
spennandi. Boðið verður upp grill-
aðar pylsur og ískaldan bjór, af-
hjúpuð verða ný HÚ!-verk og bolir
eftir Hugleik og Tólfan heldur uppi
stemningunni. Allir leikir á HM
verða sýndir í Bíó Paradís í sumar.
Hugleikur Dagsson hefur hannað
og selt boli með HÚ!-manninum síð-
an í júlí 2016. Í Mottumars þegar
deilur um HÚ!-ið stóðu sem hæst
ákvað Hugleikur að helmingur af
ágóða bolasölunnar skyldi renna til
Krabbameinsfélags Íslands.
Í samstarfi við HÚ! Paradís mun
Hugleikur opna sýningu með 22
HÚ!-mönnum uppsettum á hátíðar-
fána. Hann hefur bætt við HÚ!-
vörulínuna og verður allur varning-
urinn til sölu í Bíó Paradís.
Morgunblaðið/Hari
Hú! Hugleikur Dagsson mætir að
sjálfsögðu í Bíó Paradís í kvöld.
HÚ! í Bíó
Paradís
í kvöld
16 DAGAR Í FYRSTALEIK ÍSLANDS