Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur sett nýja reglugerð
um skipulag vísindarannsókna á
heilbrigðissviði. Reglugerðin er
sett á grundvelli laga nr. 44/2014
um slíkar rannsóknir sem tóku gildi
1. janúar 2015 og tekur til vísinda-
rannsókna á heilbrigðissviði sem
gerðar eru hér á landi að hluta eða
öllu leyti, hvort sem um er að ræða
vísindarannsókn á mönnum eða
gagnrannsókn.
Reglugerðinni er ætlað að skýra
nánar ferlið í kringum leyfisveit-
ingar vegna vísindarannsókna á
heilbrigðissviði en einnig tryggja
að skipulag þeirra sé með þeim
hætti að velferð þátttakenda sé
tryggð og siðfræðileg og vísindaleg
sjónarmið séu höfð í heiðri, að því
er fram kemur á vef Stjórnarráðs-
ins.
Ný reglugerð um
vísindarannsóknir
Vísindi Ný reglugerð frá ráðherra.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Bygging brúar yfir Fossvog, fyrir
gangandi og hjólandi umferð og al-
menningssamgöngur, hefur verið í
undirbúningi um nokkurra ára
skeið.
Nú er þessi framkvæmd komin á
nýtt stig því Reykjavíkurborg og
Kópavogsbær hafa samþykkt að
kynna sameiginlega tillögu á
vinnslustigi að deiliskipulagi brúar
yfir Fossvog. Í tillögunni er gert ráð
fyrir um 270 metra langri brú yfir
voginn, frá Kársnesi að flugbrautar-
enda Reykjavíkurflugvallar. Mark-
mið tillögunar er að bæta sam-
göngutengingar milli Reykjavíkur
og Kópavogs og styðja við vistvæna
samgöngukosti. Með brúnni mun
vegalengdin, sem gangandi og hjól-
andi fara á milli Kársness og
Reykjavíkur, styttast um 1,5 kíló-
metra.
Fólk getur kynnt sér tillögurnar
og greinargerð með henni í
þjónustuverum Reykjavíkurborgar
og Kópavogsbæjar og á heimasíðum
sveitarfélaganna. Óskað er eftir að
ábendingar við vinnslutillöguna ber-
ist fyrir 20. júní 2018.
Grunnsævi friðlýst
Að mörgu er að hyggja við undir-
búning mannvirkis á svona við-
kvæmum stað. Í fyrra var auglýst
skipulags- og matsskýrsla og bárust
fjölmargar umsagnir frá stofnunum
og félagasamtökum og voru þær
hafðar til hliðsjónar við gerð deili-
skipulagstillögunnar. Fossvogur er
hluti af náttúruverndar- og úti-
vistarsvæði Skerjafjarðarsvæðisins.
Grunnsævi við suðurströnd Kárs-
ness hefur verið friðlýst sem mikil-
vægt búsvæði fugla. Þá er Foss-
vogur vinsælt útivistarsvæði, bæði á
sjó og landi. Með ströndinni eru vin-
sælir göngu- og hjólastígar og vog-
urinn sjálfur nýttur til siglinga og
sjósunds.
Strandlínan í Fossvogi hefur tekið
nokkrum breytingum undanfarna
áratugi. Landfyllingar beggja vegna
hafa stækkað og mynni vogsins hef-
ur þrengst úr 570 metrum í 320
metra á 30 árum.
Vinnuhópur fulltrúa frá Kópavogi
og Reykjavík skoðaði ýmsa mögu-
leika varðandi brúna. Snérust þeir
helst um lengd brúarinnar, umfang
landfyllinga og möguleikann á
opnanlegri brú. Til skoðunar var að
hafa brúna 270 metra, 165 metra eða
100 metra. Niðurstaðan varð sú að
gera ráð fyrir 270 metra brú sem
ekki yrði opnanleg. Styttri brú var
talin hafa neikvæð áhrif, meðal
annars á vatnsskipti og efnisflutn-
inga.
Brúin verður 15 metra breið með
tveimur aðskildum brautum, annars
vegar fyrir gangandi og hjólandi og
hins vegar fyrir almenningsvagna.
Hámarkshraði þeirra verður 30 km/
klst. Endanlegar ákvarðanir um
hæð undir brúna verða teknar þegar
hún verður hönnuð. Gert er ráð fyrir
útfærslu á vegtenginum beggja
vegna Fossvogs og þar verður komið
fyrir áningarstöðum.
Frekari vinnsla er fram undan og
verkefnið þarf í umhverfismat.
Árið 2016 tók Kópavogur þátt í al-
þjóðlegri hugmyndasamkeppni á
vegum norrænu ráðherranefndar-
innar. Tillagan „Spot on Kársnes“
bar sigur úr býtum. Þar var lagt til
að gerðar yrðu tvær brýr fyrir gang-
andi og hjólandi sem og almennings-
samgöngur, annars vegar yfir Foss-
voginn og hins vegar yfir Skerja-
fjörðinn til Álftaness. Á brúnni yfir
Fossvog var gert ráð fyrir sundlaug
og brúin yfir á Bessastaðanes átti að
liggja yfir bíllausa eyju.
Verðlaunatillagan er ekki lögð til
grundvallar deiluskipulaginu nú en
tekið er fram í greinargerð að hún
hafi orðið Kópavogi innblástur.
Tillaga að 270 metra brú yfir
Fossvog kynnt almenningi
Verður 15 metra breið brú fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur
Samsett mynd/Alta
Tillagan Brúin mun liggja frá Kársnesi að brautarenda Reykjavíkurflugvallar. Lögð verður áhersla á öryggi.
Kennisnið Þannig hugsa menn sér
að brúin verði með fólk og vagna.
Auglýst hefur
verið eftir þátt-
takendum í sam-
keppni um kór-
lag í tilefni
aldarafmælis
sjálfstæðis og
fullveldis Ís-
lands. Það er af-
mælisnefnd sem
efnir til sam-
keppninnar í
samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og verður sigurlagið frum-
flutt hinn 1. desember næstkom-
andi á hátíðardagskrá í Hörpu.
Kórlagið skal samanstanda af
frumsömdu og óbirtu ljóði og lagi
fyrir blandaðan kór. Verkið skal
hæfa tilefninu og henta vel til
söngs, segir í auglýsingu. Verð-
launafé er 1.000.000 kr. sem skipt-
ist til helminga milli tónskálds og
ljóðskálds.
Samkeppni um
afmælis-kórlag
Kórsöngur Sam-
keppni um kórlag.
Maður, sem vill fá bætur frá dóm-
stólum vegna brota þeirra á frið-
helgi einkalífs hans með birtingu á
dómum, gagn-
rýnir að dóm-
stólasýslan hafi
vísað málinu frá
sér og beint því
til viðkomandi
dómstóla.
„Það er hlut-
verk dómstóla-
sýslunnar að
koma fram í þágu
dómstólanna sameiginlega,“ segir
Páll Sverrisson.
Í formlegu svari dómstólasýsl-
unnar til Páls segist stofnunin telja
að erindi hans sé ranglega beint að
henni. Þess í stað eigi að bera erind-
ið upp við þá dómstóla sem eiga í
hlut. Verði bréf Páls því framsent
Héraðsdómi Reykjavíkur, Héraðs-
dómi Reykjaness og Hæstarétti.
„Væntanlega boða dómstólarnir
mig á fund þegar þeir hafa fengið
bréfið,“ segir Páll.
Hann gagnrýnir jafnframt að
svar dómstólasýslunnar um málið til
Morgunblaðsins í síðustu viku hafi
verið ýtarlegra en svarið sem hann
fékk. Í frétt Morgunblaðsins var vís-
að í upplýsingar frá dómstólasýsl-
unni um að Páll gæti þurft að höfða
mál gegn hverjum dómstóli fyrir sig
til að kanna rétt sinn, tækist ekki að
finna aðra lausn. Í því tilfelli gæti
þurft að höfða hæfismál og skipa
dóminn setudómurum í framhald-
inu, reyndust dómarar viðkomandi
dómstóla vanhæfir til að úrskurða í
málunum.
Geta ekki dæmt sjálfa sig
„Auðvitað segja þeir mér að ég
eigi að fara í mál við dómstólana,“
segir Páll, „en ég tel að enginn dóm-
stóll geti dæmt sjálfan sig.“ Hann
bætir við að hann ætli sér að klára
þetta mál.
Persónuvernd úrskurðaði á síð-
asta ári að vinnsla Héraðsdóms
Reykjaness, Héraðsdóms Reykja-
víkur og Hæstaréttar á persónuupp-
lýsingum Páls við birtingu dóma,
sem hann var aðili að, á árunum
2013 og 2016 hefði ekki samræmst
lögum um persónuvernd og meðferð
persónuupplýsinga.
Páll sendi dómstólasýslunni er-
indi í apríl sl. og spurðist fyrir um
afstöðu stofnunarinnar til bóta-
skyldu vegna þessara brota dóm-
stólanna á friðhelgi einkalífs hans.
Gagnrýnir dóm-
stólasýsluna
Kröfum um bætur beint til dómstóla
LISTHÚSINU
Vorum að taka upp mikið úrval af vínyl
gólfmottum fyrir heimilið og bústaðinn
Opið virka daga kl. 11-18, lokað á laugardögum í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050