Morgunblaðið - 31.05.2018, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
landi, Færeyjum, Danmörku og
Þýskalandi.
Froðuballett og kórsöngur
Meðal hápunkta sýningarinnar má
nefna froðuballett íslenska lista-
mannsins Magnúsar Sigurðssonar
sem dansaði um í froðunni með upp-
blásnum háhyrningum. Einnig Bláa
lóns gjörning Kolbeins Huga. Laali
Lybert frá Grænlandi sýndi trommu-
dans. Auk þess var landslagsinnsetn-
ing Önnu Rúnar Tryggvadóttur og
tilfinningaþrunginn öskursöngur
danska fjöllistamannsins og harm-
onikkuleikarans Adams Christensen.
Magnús Kjartansson stjórnaði Söng-
hópi Suðurnesja sem kom frá Íslandi
og íslenskur kór í Berlín söng undir
stjórn Haraldar Þrastarsonar.
Sýningarstjórar viðburðarins voru
Listahátíðin Cycle var haldin í Berlín
á laugardaginn var í samvinnu við ís-
lenska sendiráðið í borginni. Íslensku
sendiherrahjónin, Martin Eyjólfsson
og Eva Þengilsdóttir, opnuðu heimili
sitt frá klukkan 14-23 og er talið að
allt að 1.500 manns hafi þegið boðið.
Þetta mun hafa verið í fyrsta skipti
sem sendiherra erlends ríkis býður til
opins viðburðar á heimili sínu í Berl-
ín. Listahátíðin var haldin í tilefni af
100 ára afmæli fullveldis Íslands.
Hún þótti heppnast einstaklega vel
og nutu gestirnir þess sem boðið var
upp á í einmuna veðurblíðu.
Fjöldi listamanna kom að hátíðinni
í Berlín og sýndu þeir málverk, vídeó-
listaverk, skúlptúra, fluttu gjörninga
og tónlist. Sýnt var safn verka ís-
lenskra listamanna í bland við verk
listamanna sem komu m.a. frá Græn-
Guðný Guðmundsdóttir, Jonatan Ha-
bib Engqvist og Sara S. Öldudóttir.
„Það hefur verið markmið okkar
Evu að nota sendiherrabústaðinn
sem mest til framdráttar íslenskum
hagsmunum. Þessi viðburður er ár-
angur af samtali okkar við íslensku
listasenuna hér í Berlín en hér búa yf-
ir 100 íslenskir listamenn og listnem-
ar eða eru hér með annan fótinn,“
sagði Martin Eyjólfsson, sendiherra.
Listahátíðin Cycle er venjulega
haldin á haustin í Kópavogi. Síðast-
liðið ár hefur verið unnið að mynd-
listarsýningum og viðburðadagskrá í
tengslum við fullveldisafmælið. Há-
tíðin verður opnuð í Kópavogi 25.
október. Hún er styrkt af norrænu
menningarsjóðunum NKF og NKP,
Kópavogsbæ, Fullveldissjóði og Ice-
landair. gudni@mbl.is
Fjölmenni og fjör í sendi-
herrabústaðnum í Berlín
Froðuballett Einn ar hápunktum dagsins var froðuballett íslenska listamannsins Magnúsar Sigurðssonar þar sem
uppblásnir háhyrningar léku hlutverk. Börnin létu sitt ekki eftir liggja og notuðu froðuna óspart.
Rammíslenskur Bláa lóns gjörningur Kolbeins Huga vakti mikla athygli viðstaddra. Fjöldi fólks naut viðburðanna
í garði sendiherrabústaðarins og inni í sendiherrabústaðnum í Berlín á laugardaginn var.
Tilfinningaþrunginn Danski fjöllistamaðurinn og harmonikkuleikarinn
Adam Christensen skemmti viðstöddum með spili og öskursöng.
Ljósmyndir/Sigurrós Eiðsdóttir og Antje Jandrig
Trommudansarinn Laali Lybert frá Grænlandi sýndi trommudans eins og
nágrannar okkar á Grænlandi hafa iðkað frá alda öðli.
Busllaug Börnin áttu glaðan dag í
garði sendiherrabústaðarins.