Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 78
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Honeywell borðviftur, gólfviftur
og turnviftur – gott úrval.
Hljóðlátar viftur í svefnherbergi.
Viftur sem gefa gust á vinnustaði.
Sími 555 3100 www.donna.is
Erum nú á Facebook:
donna ehf
Gott úrval af gæðaviftum
frá Honeywell. Margar stærðir
og gerðir. Nánari upplýsingar
hjá Donna ehf. vefverslun
www.donna.is
VIÐTAL
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Sú tegund rokktónlistar sem köll-
uð hefur verið svartmálmur,
gríðarþungt og hratt öskurrokk
þar sem andinn skiptir ekki minna
máli en efnið, hefur sótt í sig veðr-
ið á undanförnum árum og svo
komið að íslenskar svartmálms-
sveitir njóta virðingar langt út fyr-
ir landsteinana – Svartidauði,
Zhrine, Misþyrming, Nornahetta,
Carpe Noctem, Nyiþ, Norn,
Draugsól, Auðn, Sinmara, Naðra,
Rebirth of Nefast, Núll og Al-
myrkvi. svo dæmi séu tekin.
Meðal þeirra sveita sem lofsam-
aðar hafa verið í svartmálmskima
íslenskra rokkunnenda og eins er-
lendis er Wormlust, hljómsveit
Hafsteins Viðars
Ársælssonar.
Hafsteinn er
þó ekki bara
tónlistarmaður,
heldur hefur
hann líka lagt
stund á ljós-
myndun eins og
sjá má á ljós-
myndabókinni Svartmálmi, sem
breska bókaforlagið Ditto gaf út
fyrir stuttu, og einnig má sjá
myndir eftir Hafstein á sýningu
sem opnuð verður í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur í dag.
Aðspurður hvað hafi leitt hann
út í ljósmyndun segist Hafsteinn
hafa byrjað að taka myndir til að
skrásetja það sem væri að gerast í
svartmálmsheiminum: „Þetta byrj-
aði allt með því, frekar en að ég
hafi ákveðið að gerast ljósmyndari.
Það vantaði einhvern til að taka
myndir og ég tók það bara að
mér.“ Í framhaldinu fór hann svo
að læra ljósmyndun en hann segist
ekki hafa séð það fyrir sér að hann
yrði vöruljósmyndari: „Þetta er
sprottið af sama stað og tónlistin.“
Er ekki að vinna
að heimildarljósmyndun
– Það er heilmikið að gerast í ís-
lenskum svartmálmi.
„Já, það er partur af þessu. Ég
sá að það var enginn að skrásetja
þessa senu. Ég sá bókina Popp-
korn eftir Sigurgeir Sigurjónsson
og hugsaði með mér: „Það er eng-
inn að skrásetja þessa senu, hún
mun bara glatast í tímann þannig
að þetta var nokkuð sem var mikil-
vægt að gera. Fólk fattar ekki
hversu stórt þetta er utan land-
steinanna.“
– Myndirnar í bókinni eru flest-
ar sviðsettar, uppstillingar, og í
þeim sést vel að þú hefur ákveðna
sýn sem þú ert að ná fram í
myndatökunni.
„Myndirnar endurspegla þann
innri heim sem finna má í tónlist-
inni. Í stað þess að stilla upp eins
og í hefðbundnum hljómsveita-
myndum reyni ég að þjóna
heildarsýninni sem er á bak við
senuna. Ég er ekki að vinna að
heimildaljósmyndun þar sem ég
reyni að taka burt tjaldið, taka
burt mystíkina. Mér fannst það
ekki passa þar sem ég er sjálfur
að stússa í þessum heimi.“
Eins og getið er gefur breska
forlagið Ditto bók Hafsteins út, en
það er þekkt fyrir vandaðar og
óvenjulegar ljósmyndabækur. Haf-
steinn segist hafa farið á bóka-
sýningu í París og þar hafi hann
séð bókina God Listens to Slayer
eftir Sönnu Charles á bás Ditto-
útgáfunnar. „Ég fékk nafnspjald
hjá þeim og sendi tölvupóst,“ segir
Hafsteinn, enda sé það í anda
svartmálmskimans að gera hlutina
sjálfir, bíða ekki eftir að einhver
geri hlutina fyrir mann. „Að búa
til senu og búa til label, að redda
sér, það er málið.“
Bókin Svartmálmur er einkar
glæsileg og Hafsteinn segist hafa
orðið hissa þegar hann sá loka-
útgáfuna. „Þetta er þó búið að
vera langt ferli og það er ekkert
sem kemur á óvart fyrir utan það
að sjá endanlegu útgáfuna.“
Albúm án hljóðs
– Nú get ég hlustað á Wormlust
og aðrar svartmálmssveitir á
Bandcamp og fílað tónlistina án
þess að sjá myndir eða búninga.
Þarf ég bókina til að njóta hennar
betur?
„Það má annaðhvort líta á þetta
sem heild, þar sem bókin er pöruð
saman við tónlistina, enda eru líka
textar í bókinni, eða þetta væri al-
búm án hljóðs; að hægt sé að upp-
lifa þetta eins og að fá plötu, hljóð-
laus upplifun.“
– Hvað er svo fram undan hjá
þér í ljósmyndun að námi loknu?
„Ég er í listrænni helmingnum
af ljósmyndun, en ég veit ekki
hvað er fram undan, það verður
bara að koma í ljós. Í dag er ég að
vinna við að kynna bókina og setja
upp sýninguna sem verður opnuð í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur 31.
maí, en svo er það tónlistin aftur.
Mér finnst best að gera bara eitt í
einu.“
Hljóðlaus upplifun svartmálms
Hafsteinn Viðar Ársælsson skrásetur
svartmálmskima íslenskra rokkunnenda
Afraksturinn gefinn út á bók og sýndur
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Ljósmynd/Hafsteinn Viðar Ársælsson
Svartmálmur Myndir Hafsteins endurspegla þann innri heim sem finna má í tónlistinni.
Ljósmynd/Hafsteinn Viðar Ársælsson
Skrásetning „Það vantaði einhvern til að taka myndir og ég tók það bara að mér,“ segir Hafsteinn Viðar Ársælssson um ljósmyndir sínar af svartmálmssenunni.