Morgunblaðið - 31.05.2018, Qupperneq 81
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Ein þekktasta söguper-sóna Stjörnustríðs-myndanna er óum-deilanlega sjarmatröllið
og smyglarinn Han Solo eða Hans
Óli, sem Harrison Ford gæddi lífi
hér áður fyrr. Í myndinni Solo: A
Star Wars Story fáum við að
kynnast Han sem ungum manni á
heimaplánetu sinni Kórellíu, en
plánetan er í raun ein risastór
skipasmíðastöð. Han (Alden
Ehrenreich) hefur hins vegar alist
upp sem „ræsisrotta“ og smá-
krimmi.
Han og kærustu hans, Qi’ru
(Emilia Clarke úr Game of Thron-
es), dreymir hins vegar um betra
líf annars staðar og reyna því að
sleppa undan klóm glæpadrottn-
ingarinnar lafði Proxímu, en tekst
ekki betur til en svo að Han nær
naumlega að flýja en Qi’ra situr
föst eftir. Han heitir því að hann
muni læra að fljúga geimskipi og
koma svo og bjarga Qi’ru þegar
hann hafi tök á. En hvernig ætlar
hann eiginlega að fara að því?
Það væri synd að segja að Solo:
A Star Wars Story hafi verið beðið
með mikilli eftirvæntingu. Nær all-
ar fréttir sem bárust af fram-
leiðsluferli myndarinnar gáfu til
kynna að þar væri víða pottur
brotinn. Upphaflegir leikstjórar
myndarinnar voru til dæmis reknir
og reynsluboltinn Ron Howard
fenginn til þess að bjarga mál-
unum. Þegar enn fremur spurðist
út að nokkur óánægja væri með
frammistöðu Aldens Ehrenreichs í
aðalhlutverkinu voru menn orðnir
frekar svartsýnir á að myndinni
væri viðbjargandi.
Það verður að segjast Howard
til hróss að myndin er, þvert á
væntingar, bara hin fínasta
skemmtun. Það er mikill hasar í
henni og handrit þeirra Kasdan-
feðga býður upp á þétta sögu-
framvindu þar sem hver atburð-
urinn leiðir af öðrum. Þá má einn-
ig bæta við að fyrir Stjörnu-
stríðsnördana er myndin stútfull af
tilvísunum í fyrri myndir, en þó
ekki þannig að þeir sem koma al-
gjörlega nýir að borðinu þurfi að
klóra sér í kollinum yfir því hver
er hvað.
Alden Ehrenreich stendur sig
svo bara með miklum sóma í aðal-
hlutverkinu. Hann er ekki Harr-
ison Ford en þar til æskubrunn-
urinn finnst verða menn bara að
sætta sig við að Ford er líklega
orðinn aðeins of gamall til þess að
leika sjálfan sig á yngri árum.
Emilia Clarke veitir góða vigt sem
æskuástin Qi’ra sem knýr Han
áfram til stórræðanna.
Þá má einnig nefna að gamla
brýnið Woody Harrelson kemur
sterkur inn sem Tobias Beckett,
nokkurs konar lærifaðir Hans
Solo, og Paul Bettany, sem þurfti
að koma inn á síðustu stundu
ásamt Ron Howard, sinnir hlut-
verki sínu sem illmennið Dryden
Vos af mikilli kostgæfni.
Það er þó kannski helst hin rís-
andi stjarna Donald Glover sem
stelur senunni sem Lando Calriss-
ian, hjartaknúsari og lífskúnstner
af Máttarins náð, og nær Glover
vel að taka taktana hans Billys
Dees Williams og gæða Lando lífi.
Tónlist hefur alltaf verið stór
þáttur í Stjörnustríðsmyndunum
og má heyra gömul stef eftir John
Williams í bland við nýrri stef, en
John Powell var fenginn til þess
að semja tónlistina að öðru leyti.
Þá eru tæknibrellurnar að sjálf-
sögðu fyrsta flokks eins og alltaf.
Solo: A Star Wars Story er því
hin fínasta poppkornsmynd sem
skilur kannski ekki mikið eftir sig
að áhorfi loknu. Það var kannski
engin æpandi þörf á því að fá bak-
sögu Hans Solo í kvikmyndaformi
en hún virkar mjög vel og er mjög
góð viðbót við Stjörnustríðs-
heiminn.
Og þar komum við kannski að
því sem skiptir mestu máli við
Solo. Velgengni Marvel-sögu-
heimsins hefur gert hugmyndina
um margar kvikmyndir sem allar
tengjast á einhvern hátt innbyrðis
heillandi í augum kvikmynda-
framleiðenda. Og hvaða sögu-
heimur getur kveikt menn til lífs-
ins ef ekki Vetrarbrautin langt í
burtu, þar sem ýmislegt gerðist
fyrir langalöngu? Með Solo sýnir
Disney að þar á bæ er mikill
metnaður til þess að víkka þann
söguheim út. Og miðað við bæði
Solo og Rogue One, sem kom út
2016, geta aðdáendur Stjörnustríðs
fullvissað sig um að heimurinn er í
öruggum höndum músarinnar.
Sjarmatröll verður til
Viðbót Það var kannski engin æpandi þörf á því að fá baksögu Hans Solo í kvikmyndaformi en hún virkar mjög vel
og er mjög góð viðbót við Stjörnustríðsheiminn, að mati gagnrýnanda, sem er í heildina sáttur við kvikmyndina.
Sambíóin, Smárabíó og
Laugarásbíó
Solo: A Star Wars Story bbbmn
Leikstjóri: Ron Howard. Handrit: Jona-
than Kasdan og Lawrence Kasdan. Aðal-
hlutverk: Alden Ehrenreich, Woody
Harrelson, Emilia Clarke, Donald Glover,
Thandie Newton, Phoebe Waller-Bridge,
Joonas Suotamo og Paul Bettany.
Bandaríkin 2018, 135 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik
Dór munu semja tvö lög fyrir
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár en
venjan er að eitt lag sé samið en
ekki tvö. Lögin verða frumflutt 8.
júní næstkomandi og er annað „vilj-
andi þakið klisjum“ og „alvöru-
þjóðhátíðarlag“, eins og haft er eft-
ir bræðrunum í tilkynningu.
Jónssynir Jón og Friðrik Dór eru hressir.
Bræður semja
þjóðhátíðarlög
Bíó Paradís og Hugleikur Dagsson
munu í kvöld kl. 18 setja formlega af
stað viðburðinn HÚ! í Paradís, í sam-
starfi við Tólfuna, stuðningsmannalið
íslensku landsliðanna í knattspyrnu.
Hugleikur hefur hannað og selt boli
með HÚ!-manninum frá því í júlí 2016
og í mars sl. ákvað hann að helmingur
af ágóða bolasölunnar skyldi renna til
Krabbameinsfélags Íslands. Í sam-
starfi við HÚ! í Paradís opnar Hug-
leikur sýningu í kvöld með 22 HÚ!-
mönnum uppsettum á hátíðarfána,
Tólfan frumsýnir byrjunarliðið í nýrri
HÚ!-vörulínu og Hugleikur og Tólfan
munu svo afhenda Krabbameinsfélagi
Íslands peningagjöf. Og að sjálfsögðu
tekur Tólfan HÚ!-klappið.
HÚ! í Paradís
HÚ!-moristi Hugleikur Dagsson.
Morgunblaðið/Golli
Sjónvarpsstöðin ABC hefur tekið af
dagskrá gamanþátt Roseanne Barr
í kjölfar ummæla hennar á Twitter
sem þóttu fordómafull í garð þel-
dökkra. Barr líkti fyrrverandi að-
stoðarkonu Baracks Obama við apa
en sú er þeldökk.
Í yfirlýsingu frá ABC segir að
ummæli Barr séu viðbjóðsleg og
samræmist ekki þeim gildum sem
starfsmenn stöðvarinnar eigi að
fylgja. Því hafi verið tekin sú
ákvörðun að taka þátt hennar af
dagskrá.
Barr tísti að aðstoðarmaðurinn
fyrrverandi, Valerie Jarrett, væri
afkvæmi Bræðralags múslima og
Apaplánetunnar.
ABC endurvakti gamanþáttaröð
Barr, Roseanne, á þessu ári en hún
hóf göngu sína 1988 og lauk 1997.
Þættirnir hafa notið mikilla vin-
sælda í Bandaríkjunum.
Af dagskrá Gamanþættir Roseanne
Barr hafa verið teknir af dagskrá ABC.
Þáttur Roseanne
tekinn af dagskrá
AFP
Síðustu hádegistónleikar annar-
innar í tónleikaröðinni Á ljúfum
nótum verða haldnir í dag kl. 12 í
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Sönghópur kirkjunnar frum-
flytur djasstónverk, „Jazz Mass“,
eftir Norðmanninn Ike Sturm. Ein-
söngvari er Sara Grímsdóttir og
hljóðfæraleikarar Haukur Gröndal,
Ásgeir Ásgeirsson, Þorgrímur
Jónsson, Erik Qvick og Gunnar
Gunnarsson.
Jazz Mass á loka-
tónleikum annar
Á tónleikum Sönghópur Fríkirkjunnar.
ICQC 2018-20