Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 84
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Konan er látin
2. Fór yfir strikið í gleðskap Arion banka
3. Flutti of seint heim til Íslands
4. Kunna hvorki mannasiði né á klósett
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Listahátíð í Reykjavík hefst á
morgun og á laugardag munu risa-
vaxnar skepnur frá forsögulegum
tímum gleðja vegfarendur í mið-
bænum. Skepnurnar eru sköpunar-
verk hollensks leikhóps, Close-Act
Theatre, sem þekktur er fyrir mynd-
rænt götuleikhús í yfirstærð, eins og
því er lýst á vef hátíðarinnar. Sýn-
ingin heitir Saurus og hefst kl. 14 við
Iðnó. Á sunnudag verða skepnurnar
svo í Egilshöll í Grafarvogi kl. 11.
Ljósmynd/Bert Holtmann
Skepnur í miðbænum
Út er komið
nýtt hefti af Sögu
– tímariti Sögu-
félags og í kvöld
kl. 19.30 efnir fé-
lagið til Sögu-
kvölds á Þjóð-
skjalasafni
Íslands og er það
tileinkað bæði
vorheftinu 2018 og haustheftinu
2017. Ritstjórar Sögu, þau Erla Hulda
Halldórsdóttir og Vilhelm Vilhelms-
son, kynna efnið stuttlega og nokkrir
greinahöfundar ræða viðfangsefni
sín nánar og svara spurningum.
Sögukvöld í safni
Sýning á verkum þýska myndlistar-
mannsins Ignacios Uriartes verður
opnuð í i8 galleríi í dag kl. 17. Uriarte
hefur sýnt áður í galleríinu og að
þessu sinni lætur hann liti eiga
sig og einbeitir sér að
svörtum og hvítum í
verkum sínum. Lista-
maðurinn býr og
starfar í Berlín og er
þetta þriðja sýning
hans í i8.
Uriarte í i8 galleríi
Á föstudag Fremur hæg V-læg átt, en SV 10-15 m/s NV-til.
Skýjað með köflum en bjartviðri eystra. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast
austanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG V 5-13 m/s, hvassast á Vestfjörðum og
yfirleitt skýjað en þurrt. Hægari breytileg átt A-til og víða bjart.
Hiti 8 til 18 stig, hlýjast SA-til.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Vals eru
komnir í átta liða úrslitin
í bikarkeppni karla í
knattspyrnu eftir að hafa
lagt bikarmeistara ÍBV að
velli, 3:2, í framlengdum
leik á Hlíðarenda í gær-
kvöld. Sindri Björnsson
jafnaði fyrir Val skömmu
fyrir leikslok, ÍBV missti
fyrirliða sinn af velli og
Tobias Thomsen skoraði
sigurmarkið í framleng-
ingunni. »3
Meistarar unnu
bikarmeistara
„Ég er á réttri braut ennþá og er
mjög bjartsýnn á að vera klár fyrir
Argentínuleikinn. Það hefur verið
planið og ég er á réttum stað í ferl-
inu,“ segir Aron Einar Gunnarsson,
landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, sem
skokkaði hringinn í kringum Laugar-
dalsvöllinn í gær á
meðan félagar
hans í landslið-
inu æfðu á vell-
inum. »1
Aron kveðst vera á
réttum stað í ferlinu
Lokaúrslitin hefjast í NBA-deildinni
í nótt og eru vel þekkt lið sem þar
eigast við. Cleveland Cavaliers og
Golden State Warriors mætast í úr-
slitunum fjórða árið í röð, en það
hefur aldrei áður gerst í sögu
deildarinnar. Jafnvel Los Angeles
Lakers og Boston Celtics náðu ekki
slíkum árangri þegar þau voru yfir-
burðalið á níunda áratugnum. »4
Aldrei áður sömu
lið fjögur ár í röð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Listakonan Björg Ísaksdóttir er 90 ára í dag.
Hún heldur upp á tímamótin með því að opna
málverkasýningu, þar sem ný olíumálverk
verða í fyrirrúmi, í Galleríi Gróttu inn af
Bókasafni Seltjarnarness á Eiðistorgi klukkan
17.
„Ég hef gert svo margt um dagana,“ segir
Björg um málverkin á sýningunni. „Ég er
enda ekki við eina fjölina felld, er listmálari,
myndhöggvari og fatahönnuður með meiru.“
Björg var við nám í Myndlistaskólanum í
Reykjavík 1967-1977. „Ég datt út úr skóla
kornung þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn –
þau urðu alls fimm – og ég gat ekki haldið
áfram í skóla fyrr en þau voru komin vel á
legg.“ Þegar hún var um fimmtugt fór hún í
framhaldsnám til Svíþjóðar og sótti námskeið
m.a. í Finnlandi og á Ítalíu. Auk þess vann
hún í New York um tíma. „Maður getur lært
ýmislegt án þess að fara í skóla og í sambandi
við saumaskapinn las ég mér bara til.“
Björg var forstöðukona saumastofu Leik-
félags Reykjavíkur í nokkur ár en byrjaði í at-
vinnulífinu sem verkstjóri á Saumastofunni
Dúki. „Við höfðum bara saumað kvenfatnað en
svo átti ég að fara að segja konunum til við að
sauma karlmannabuxur. Það versta sem verk-
stjóri gerir er að kunna ekki sitt fag og ég fór
því að kynna mér málið, fann loks bók á þýsku
um saumaskapinn, vakti heila nótt og las text-
ann með hjálp orðabókar, því ég var ekki sleip
í þýsku, og lagði svo verkefnið fyrir konurnar
um morguninn. Þeim leist ekki á það en ég gaf
ekkert eftir, fór alveg eftir bókinni og bux-
urnar slógu í gegn.“
Vann við hirð Svíakonungs
Á Svíþjóðarárunum vann Björg við hirð
Karls Gústafs Svíakonungs á sjötta ár. „Starf
saumakonu hjá kóngsa var auglýst, ég sótti
um, var tekin í viðtal og var ráðin,“ rifjar hún
upp. „Ég vann aðallega við gardínusaum og
merkingar og var móttökustjóri þegar Vigdís
forseti kom í heimsókn, en við vorum bekkjar-
systur í Landakotsskóla, þótt hún væri tveim-
ur árum yngri.“
Listin lá fyrir Björgu á unga aldri. „Ég var
kölluð listakona bekkjarins í Kvennó,“ segir
hún. Hún segist hafa ætlað að fara í lista-
háskóla í Danmörku að loknu stúdentsprófi, en
fyrsta barnið hafi sett strik í reikninginn. „Það
kemur ýmislegt fyrir á lífsins leið,“ segir hún
og bendir á að elsta dóttirin sé 72 ára. „Ég var
of snemma á ferðinni í listinni,“ heldur hún
áfram. „Konur hneyksluðust á mér fyrir að
vera að mála þegar ég átti frekar að vera að
staga í buxur eða annað slíkt. Ég var ekki
kona sem sat og sagði já við karlana mína.“
Björg er fædd og uppalin á Seltjarnarnesi og
býr þar. Hún hefur verið iðin við kolann og
haldið sýningar víða, en næsta sýning verður
opnuð í dag. „Ég er á fullu enda er íbúðin
undirlögð af málverkum eins og sjá má,“ segir
hún. „Heilsan er góð og ég hugsa ekki eins og
níræð kona. Ég fatta ekki að ég sé orðin svona
gömul. En ég var reyndar mjög lasin í vetur
og hélt að ég væri að deyja. Svo fór ég með
vinkonu minni til Kanarí, þar sem við vorum í
þrjár vikur, og ég kom alsæl til baka. Ég hef
voðalega gaman af því að ferðast og kynnast
ólíkum menningarheimum. Ferðirnar eru mér
innblástur í listinni, ekki síst litirnir.“
Listin framar öllu öðru
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listamaður Björg Ísaksdóttir var kölluð listakona bekkjarins í Kvennó og er iðin við kolann.
Björg Ísaksdóttir held-
ur upp á 90 ára afmælið
með málverkasýningu
List Eitt af mörgum verkum Bjargar.