Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 17
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ Fimmtudagur 17. desember 1981 Stofnfundur Sjó- efnavinnslunnar hf. Tímamótasamkomulag um tekjuskiptingu sveitarfélaganna. Ríkið krafðist meirihluta í stjórn Sl. laugardag var haldinn aðal- fundur Undirbúningsfélags salt- verksmiðju á Reykjanesi hf., í félagsheimilinu Stapa. Fyrir utan venjuleg aðalfundarstörf var samþykkt einróma tillaga um samruna félagsins við Sjóefna- vinnsluna hf. Því næst fór fram stofnfundur Sjóefnavinnslunnar hf., og er heimili þess og varnarþing í Höfnum. Tilgangur félagsins er að reisa og reka sjóefnavinnslu á Reykjanesi til vinnslu á saltefn- um og öðrum efnum, sem til falla við þávinnslu, og undirbúningur að framleiðsla á natriumklórati. Ennfremur bygging og rekstur orkuvers i tengslum við starf- rækslu fyrirtækisins. Við stofnun Sjóefnavinnslunn- ar hf. verður eins og áður segir Undirbúningsfélagið sameinað félaginu. Við sameiningu tekur félagið við öllum eignum og skuldum undirbúningsfélagsins, Vélstjórafélag Suðurnesja Höfum flutt skrifstofu okkar að Hafnargötu 37a, II. hæð. Skrifstofan verðuropin einsog áður, alla virka daga frá kl. 16-18. Síminn er 1358. KLIPPÓTEK FYRIR JÓLIN: Næringar-permanent Glans skol djúpnæringarkúrar gefa hárinu fallegan og eðlilegan glans. - 0O0 - ILMANDI JÓLAGJAFAÚRVAL KLIPPÓTEK Hafnargötu 29 - Keflavík - Sími 3428 Samþykkt var einróma tillaga um samruna Undirbúningsfélagsins við Sjóefnavinnsluna hf. þar með taldar allar rannsóknir og samningar sem Undirbún- ingsfélagið hefur gert. Við sam- eininguna fá hluthafar í Undir- búningsfélaginu hlutabréf í Sjó- efnavinnslunni hf. sem nemur þreföldu nafnverði hlutabréfa þeirra í hinu fyrrnefnda félagi. Hlutafé Undirbúningsfélagsins er nú að nafnverði kr. 1.140.000, en hlutafé Sjóefnavinnslunnar hf. er ákveðið kr. 8.500.000. Frestur til áskriftar ertil 31. marz 1982, en ríkissjóður skuldbindur sig til áskriftar að þeim hluta hlutafjár sem áskrift hefur ekki fengist fyrir frá öðrum, þegar áskriftarf resti lýkur. Þá hafa sveitarfélögin á Suðurnesjum ákveðið að kauþa 20% hlutafjár í félaginu. Fyrirfundinn hafði náðsttíma- mótasamkomulag milli allra sveitarfélaganna á Suðurnesj- um, um að tekjur af fyrirtækinu myndi skiptast þannig milli sveit- arfélaganna, að Grindavik og Hafnir skiptu með sér 10%, en 90% myndi siðan skiptast milli allra sveitarfélaganna eftir höfða tölu. Út á þetta samkomulag höfðu sveitarfélögin umboð til að kaupa sameiginlega 20% hlutabréfa. Kvöldið fyrir fund- inn ákváðu síðan Hafnamenn að fella samkomulagið og krefjast 80% i sinn hlut, en 20% skiptist milli sveitarfélaganna. Með þessari ákvörðun Hafnabúa, kvöldið fyrir stofnfundinn, féllu um sjálfa sig samþykktir hinna sveitarfélaganna og var þvi gert fundarhlé á meðan reynt var að ná sáttum, og varð samkomulag um það, að Grindvíkingar og Hafnamenn fengju 15% en 85% skiptist milli allra sveitarfélag- anna eftir höfðatölu. . Er þetta í fyrsta sinn sem sveit- ^arfélög í sama landshluta skipta með sér tekjum af slíku fyrirtæki, en með því ættu sveitarfélögin hér syðra að geta staðið sem eitt að þvi að fá hingað fleiri stóriðn- aðarfyrirtæki til eflingar atvinnu- lífsins. Hingað til hafa tekjur runnið til þess sveitarfélags er hreppir hnossið, þ.e. færstóriðj- una innan síns sveitarfélags. Við stjórnarkjör krafðist ríkið 3ja manna í stjórn, en hafði 2 i stjórn Undirbúningsfélagsins. ( þessu sambandi var bent á að ríkið ætti 80% hlutafjár í fyrrafé- laginu og því væri eðlilegt að meðan þeir hefðu meirihluta hlutafjár, hefðu þeireinnig meiri- hluta stjórnar. ( stjórn voru því tilnefndir af hálfu ríkisins: Guðmundur Einarsson, Álfta- nesi, formaður. Elsa Kristjánsdóttir, Sand- gerði, varaformaður. Árni Kolbeinsson, Reykjavík. Af hálfu fundarins: Gunnar Sveinsson, Keflavík Friðrik Á. Magnússon, Njarð- vik. Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra flutti ræðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.