Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 37

Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 37
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ Fimmtudagur 17. desember 1981 Þorsteinn Marteinsson, form. björgunarsveitarinnar Stakks Björgunarsveitin Stkkur óskar öllum Suðurnesjabúum gleði- legra jóla og minnir fólk á að lesa vandlega leiðbeiningarnar um meðferö flugeldanna og fara að öllu meðgátviðnotkunþeirraog eiga vel heppnuð áramót. þm. Ný vélsmiðja í Keflavík Ný vélsmiðja hefur hafið rekst- ur hér i Keflavík. Er henni m.a. ætlað að annast viðhald og ný- smiði á fiskaðgerðarvélum, er Oddgeir Pétursson hefur fundið upp. Stofnendur eru Oddgeir Pétursson, Garðavegi 13 og Ás- mundur Sigurðsson, Túngötu 19 báðir úr Keflavík, en heiti fyrir- tækisins er Oddgeir & Ási sf. Björgunarsveitin Stakkur: Bílakaup og flugeldar Björgunarsveitin Stakkur stendur í stórræöum um þessar mundir. Fyrir það fyrsta þá fyrir- huga Stakks-félagar að endur- nýja bílakost sveitarinnar í vetur. Aöalástæðan fyrir endurnýjun- inni eru þær, að núverandi bíla- kostur er kominn nokkuð til ára sinna, sérstaklega þó Inter- national Travellall bifreiðin, sem er frá því 1974. Hefur sá bíll reynst sveitinni mjög vel, og reyndar fleirum, því hann var notaður sem sjúkrabíll fyrir Suð- urnesin samfleytt í nokkra mánuði. Þar að auki hefur hann „hlaupið i skarðið" þegar bilanir og miklar annir hafa steðjaö að. Bifreiðar þær sem Stakkur veriðfrá 14og allt upp i 35 Stakks félagar að störfum í einu. f maí sl. tóku 17 félagar þátt íleitaðflug- vélinni TF-ROM, voru þeir að störfum samfleytt í 3 daga. Var það ein sú umfangsmesta leit sem fram hefur farið hér á landi. Má segja að leitað hafi verið um allt landið og mörg svæði oftar en einu sinni. Einnig má minnast á óveðrið sem hér geisaði 16. febrúar sl. Voru Stakksmenn þá að störfum fram undir morgunn. Til gamans má geta þess, aö þegar versta veðrinu slotaði hér á suö-vestur horninu, var fólk á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum enn i miklum vandræðum. En þá upp úr miðnætti hætti ríkisút- varpið útsendingu, hafði fram að því staðið sig nokkuð vel við að koma skilaboðum áleiðis og kveðja til starfa mannskap o.fl. Hefði simasamband verið betra, en einmitt síminn verður erfiður vegna álagsins og rafmagns- leysisins á svona stundum, hefði útvarpið getað tekið enn virkari þátt í aðgerðum. Mætti benda á svona tilvik af útvarpsfrelsis- mönnum, þar sem útvarpsstöð á staðnum myndi auövelda allar aðgerðir og stjórnun hjálpar- starfs mikið. Eins og áður er getið ætla Stakksfélagar að selja mikið af flugeldum og vonast þeir til að flugeldasalan fái sömu móttökur og undanfarin ár. Útsölustaðir verða við Fiskiöjuna og í mið- bænum eins og venjulega og eru allir hjartanlega velkomnir. Stakkur er nú að endurnýja bilakost sinn. Þessir tveir bilar eru tilsölu. hyggst kaupa eru Volvo C202 (lapplander), á mjög hag- stæðu verði um þessar mundir, einnig munu þær vera spar- neytnar og kemur þaðsérvel, því rekstur bifreiða í dag er ekkert gamanmál. Vonast Stakksfélag- ar til að gömlu bifreiðarnar selj- ist fyrir gott verð, því þá ættu bílaskiptin ekki að reynast svo erfiö. Það er fleira sem Stakks-félag- ar hyggjast endurnýja í vetur, en einmitt nú stendur yfir hjá all flestum hjálpar- og björgunar- sveitum i landinu endurnýjun á fjarskiptibúnaöi. Hafa tæki þau sem nú eru í notkun ekki reynst nógu vel. Tækin sjálf eru alveg ágæt, en tíönisviðið sem þau starfa á er bæði óhreint og óá- reiðanlegt. Hafa þessir aðilar ákveðið að snúa sér alfarið að VHF-stöðvum, en það eru sams konar tæki og bátarnir nota má segja eingöngu, og svo lögregla og slökkvilið. Mun þessi endur- nýjun reynast nokkuð strembin, en Stakksfélagar hafa löngum þótt stórhuga og leggja út í þetta verkefni óhræddir. Aðsjálfsögðu mun útkoma flugeldasölunnar hafa mikiö að segja og fái salan sömu undirtektir hjá bæjarbúum og undanfarin ár, mun dæmið ganga mun auðveldara upp. Starfsemi sveitarinnar hefur veriö nokkuð mikil á þessu ári. Útköll hafa verið alls 9 og hafa Hætta eftir 38 ára þjónustu Verslunin Nonni & Bubbi í Keflavík hefur nú verið seld. Nýi eigandinn er Jónas Ragnarsson í versluninni Róm, og tekur hann viö um áramótin. Nonni og Bubbi hófu verslunarrekstur í Sandgerði árið 1943 og opnuðu aðra verslun í Keflavík þrem árum síðar. Ráku þeir báðar búð- irnar samtimis til ársins 1973, að þeir lógðu niður verslunina í Sandgerði. Þeir báðu fyrir þakkir til viöskiptavina og starfsfólks fyrir viðskiptin og samstarfið gegnum árin, og vonast til þess að nýi eigandinn fái að njóta hins sama í framtíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.