Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 49

Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 49
VIKUR-fréttir JÓLABLAÐ Fimmtudagur 17. desember 1981 Frá starfi Hjálparsveitar skáta í Njarðvík Slarfsárið byrjaði á útkalli í óveðrinu mikla í febrúar, en þá var reynt að auka öryggi fólks með því að fá það til að vera hlé megin i húsum sínum. Síðan var reyntað hemjafjúkandijárnplöt- ur sem losnað höfðu af húsum. Einnig var aðstoða við að byrgja fyrir glugga þar sem ýmislegt lauslegt hafði fokið í gegnum rúðurnar. Nokkrum vikum seinna var farið á æfingu í Lind- arkot við Hrauneyjarfoss og m.a. æfð meðferð gönguskiða. Næsta æfing var að Krumshól- um helgina fyrir páska og æfð hjálp í viðlögum, ásamt félögum úr Björgunarsveitinni Stakk úr Keflavík. Kl. 3 aðfaranótt uppstigning- ardags var sveitin kölluð út og var þá farið í þá viðamestu leit sem farin hefur verið hin síðari ár, en það var leitin að flugvél- inni TF-ROM. Þessi leitvargeysi erfið og það er öruggt mál að aldrei hafa jafnmargir íslending- ar gengið á eins mörg fjöll á jafn skömmum tíma og gert var þá. Samstarf á milli H.S.S.N. og Stakks i Keflavík var nokkuð mikið í þessari leit og höfðum við m.a. sameiginlegt leitarsvæði. Eftir fjögurra sólarhringa leit komu menn heim gjörsamlega útkeyrðir. Sveitin var kölluð tvisvar út í júlí og ágúst til leitaraðmanni og konu, sem týnst höfðu á Reykja- víkursvæðinu. Þau fundust látin. 18. júlí var farin gönguæfing frá Hungurfitjum að Einhyrningi og síðan hlaupið frá Emstrum niður i Þórsmörk sem smá ábót á gönguæfinguna. Um miðjan september var haldin æfing í Vestmannaeyjum á vegum Landssambands hjálp- arsveita skáta, og var þá Heima- ey finkembd og næstum hver einasti hellir og skúti skoðaður. Fimmtudaginn 27. nóv. sl. var haldin leitaræfing í tilefni af 10 ára afmæli L.H.S. og varæfingin mjög lærdómsrík. Fyrir stuttu varsveitin kölluð út og haldið til leitar af tveim piltum sem týndust í fjallgöngu á Esju. Einn sunnudaginn mætti ekki einn 2ja ára snáði i sunnudags- steikina heima hjá sér. Var farið að skipuleggja leit að drengnum þegar hann kom í Ijós. Hafði hann farið að skoða heiminn svona upp á eigin spýtur. H.S.S.N og Stakkur hafa sett upp sameiginlegt æfingapró- gram og er það gert í þeim til- gangi að veita félögum aðhald í mætingu. Haldnar hafa verið tvær sameiginlegar æfingar nú i haust. Endurnýjun á tækjabúnaði hefur verið lítill á þessu starfsári, en þó eru í pöntun talstöðvar á hærri tíðni en við höfum notað áður, en truflanireru svo miklará tíðnisviði gömlustöðvanna, að næstum ógerlegt er að notast við þær svo að öryggi sé að. Þessar nýju stöðvar eru mjög dýrar, en þó hefurtekist aðfáfelldanniður toll af þeim. Allur þúnaður til björgunarstarfa er mjög dýr. Eini búnaðurinn sem fengist hefur niðurfelldur tollur á, eru þessar talstöðvar. Nokkur fjölgun hefur orðið á meðlimum í sveitinni og er það LANDSMÓT SKÁTA í KJARNASKÓGI Framh. sem þeir höfðu búið til á mótinu og fluttu þá logandi hvertil sinar tjaldbúðar. Mótssvæðið var eins og lítil uppljómuð borg. Móts- stjóri afhenti fulltrúum hvers félags gjöf, sem var mynd, tekin fyrsta mótsdaginn. Sunnudagur 2. ágúst. Fótaferð kl. 9. Helgistund kl. 10.30. Þetta var mjög virðuleg stund, þar sem þrir prestar töluðu til skátanna á íslensku og ensku, og skátarnir sungu sálma. Kl. 11.30 voru mótsslit. Nú voru kyndlarnir sem mótið var sett með, tendraöir á nýjan leik og fulltrúar félaganna lögðu þá á sameiginlegt bál. Mótsstjórn tók við viðurkenn- ingu fyrir gott mót frá Heiða- búum og Eilífsbúum, Sauðár- króki. Mótsstjóri sleit síöan mót- inu. Nú fór hver til sinnar tjaldbúðar, þar sem öllu var pakkað saman til heimferðar og varla hægt að trúa því að þessir skemmtilegu dagar væru senn á enda. Ég vil þakka öllum þeim sem aðstoðuðu okkur við undirbún- ing fyrir mótið. Þessar samveru- stundir verða okkur öllum ógleymanlegar. Skátarnir frá Suðurnesjum voru félögum sin- um og heimabyggð til mikils sóma. Það er gaman að vera þátt- takandi í svona útilegu, þar sem samstarfið, hjálpsemin, ánægj- an starfsgleðin og hinn sanni skátaandi ríkir. Ég vil hvetja ungl- inga til að kynnast skátastarfinu. Það er mjög þroskandi og góður félagsskapur, þar sem allir fá að njóta sín og finna eitthvaðviðsitt hæfi. Eydis Eyjólfsdóttir MÓTSSÖNGURINN ( Kjarnaskógi kraftur býr, og kyngimögnuð þrá. Orkan sem að öllu snýr, er almættinu frá. Verndum landið, vinnum saman, veröld breytist fljótt. Friður, frelsi - nú er gaman, fylkjum liði skjótt. Nýtt lif, lif, lif i Kjarnaskóg. Nýjan heim, heim, heim i Kjarna- skóg. Vinnum skátar, verkin eru nóg, Það verður fjör, fjör, fjór i Kjarna- skóg. Nokkrir félagar úr Hjálparsveit skáta, Njarðvfk ánægjulegt. Bílakostur sveitar- innar er ekki nægjanlegur til að flytja alla þá sem þarf, en til bráðabirgða hefur einn félagi í sveitinni lagt til eigin bifreið. Nú er að fara í gang fjáröflun- artímabilið hjá félögum sveitar- innar. Fjár er aflað með sölu á flugeldum um áramótin og er það aðalfjáröflunin. Einnig gef- um við út dagatal með símanúm- erum þeirra fyrirtækja og stofn- ana sem vilja styrkja starf Hjálp- arsveitarinnar, og biðjum viðfor- svarsmenn fyrirtækja að taka vel á móti félögum okkar þegar söfn- unin á dagatalið hefst. Dagatal- inu verður dreift i tvö þúsund ein- taka fjölda i öll hús i Keflavík og Njarðvík. Að lokum viljum við ítreka það, að björgunarsveitir í landinu eru EKKI ríkisstyrktar. Sveitirnar standa að öllu leyti undir þessum nauðsynlega þætti í almanna- varnakerfi landsmanna. Suöurnesjamenn! Muniö flug- eldasöluna um áramófin. Hjálparsveit skáta i Njarövfk Þorbjörg Rúnarsdóttir og Haraldur Magnússon héldu hlutaveltu að Miðgarði 7 i Keflavík og varð innkoman 260 kr., sem þau létu renna til sjúkrahússins. Þessir krakkar héldu hlutaveltu i Tjarnarlundi og létu ágóðann, 642 kr., renna til Þroskahjálpar. Þau heitaf.v.: Lárus Frans Guðmundsson, Ómar Ólafsson, Ágúst Þór Guðmundsson, Guðrún Halldórsdóttir og Ásgeir Halldórsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.