Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 27
Fimmtudagur17. desember1981
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Verðstríð eða
heiðarleg samkeppni
Samkeppni sú er hófst á milli
Tomma-hamborgara og Kefla-
víkurborgarans, um sölu á ham-
borgurum í Keflavík, virðist hafa
snúist upp í verðstríð milli þeirra
frekar en eðlilega samkeppni.
Þegar Tommi opnaði útibú sitt
hér syðra var verðið hjá honum 1
kr. lægra en hjá aðalkeppinaut
hans, Keflavíkurborgaranum.
Það stóð ekki lengi, því Keflavík-
urborgarinn svaraði þessu með
því að lækka sína vöru um 9 kr.
og er þar með orðinn átta krón-
um lægri en hinn.
Samkeppni þessi snýst þóekki
eingöngu um lægra vöruverð,
heldur er ýmislegt gert til að
vekja athygli á veitingastaðnum.
T.d. hefur Keflavíkurborgarinn
nú teppalagt gangstéttina fyrir
utan staðinn með rauðu teppi og
þar með snúið hlutunum við, því
eins og flestir vita er gólfið innan
dyra lagt gangstéttarhellum.
En hvað segja nú höfuðpaur-
arnir sjálfir, þeir Erling í Kefla-
vikurborgaranum og Tommi hjá
Tomma-hamborgurum, um
þetta mál?
Leiðrétting
I síðasta tbl. varð sú prentvilla
í greininni um óánægju með
hitaveituna, að sagt var aö sparn-
aður á þriggja manna fjölskyldu
væri kr. 2.500, en átti aö vera kr.
22.500.
Erling sagði að samkomulag
hefði verið gert milli hans og
Tomma um að þeir myndu halda
sama verði, en Tomii hefði svikið
þaö strax, og þess vegna hefði
hann nú lækkað hamborgarana
svo um munar. Þá benti hann á,
að þegar Tommi lækkaði sína
vöru um 1 kr. hér í Keflavík, væri
kominn mismunur á verði milli
útibúa sama fyrirtækis, þvi
verðið í Reykjavík væri enn
óbreytt, sem væri óeðlilegt.
Tommi vildi hins vegar ekki
kannast við neitt samkomulag
við Erling, hann hefði aðeins
komið til að tilkynna sér að þeir
skyldu hafa sama verð, en ekki
samið um neitt. Um verðstríð
sagði Tommi að væri ekki um að
ræða, því enginn aðili gæti til
lengdar selt vöru á kostnaðar-
verði eingöngu, það hlyti að
koma niður á gæöunum.
Þá óttaðist hann ekki neina
samkeppni, þvi samkv. upplýs-
ingum Erlings sjálfs væri há-
marks sala Keflavíkurborgarans
90 hamborgarar á dag, en samt
hefði hann vonast til að salan
hjá sér næði 350 stk. á dag að
jafnaði. Þessar vonir hefðu ekki
brugðist, því meðalsalan hjá
Tomma-hamborgurum hér
syðra væru 400 stk. á dag og
hefði t.d. daginn sem Erling
lækkaði sína vöru komist upp i
600 stk. Því væri ótti við sam-
keppni enginn, frekar vonaðist
hann eftir góðu samstarfi þeirra
á milli.
Hér sjáið þið jólasveininn koma með
gjafirnar til barnanna í poka sínum, en
börnin hafa öil orðið hrædd og falið sig.
Nú skuluð þið athuga myndina frá öll-
um hliðum og athuga hana vel, þá mun-
uð þið geta komið auga á andlit barn-
anna. Þau eru að minnsta kosti 6 eða 7
og kannski eru þau fleiri.
TILKYNNING
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK -
GRINDAVÍK - GULLBRINGUSÝSLA
Samkvæmt lögum nr. 46/1977 og reglugerð
nr. 16/1978, er hverjum og einum óheimilt að
selja skotelda eða annað þeim skylt, nema
hafa til þess leyfi lögreglustjóra.
Þeir sem hyggja á sölu framangreinds varn-
ings, sendi umsóknir sínar til yfirlögreglu-
þjóns í Keflavík, eigi síðar en 21. desemþer
1981. Að öðrum kosti verða umsóknirnarekki
teknar til greina.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóni
á lögreglustöðinni í Keflavík.
Lögreglustjórinn í Gullbringusýslu
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík
Brunavarnir Suðurnesja
TILKYNNING UM
Áramótabrennur
Þeim sem hafa ætlað sér að hafa áramótabrennu, ber aðsækja
um leyfi til Slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja í Keflavík.
Skilyrði fyrir leyfisveitingu er, að ábyrgðarmaður sé fyrir
brennunni.
Brennur sem veröa hlaðnar upp og ekki hefur verið veitt leyfi
fyrir, verða fjarlægðar.
Umsóknir berist fyrir 21. desember 1981.
Lögreglan í Keflavik, Grlndavík, Njarðvlk og Gullbringusýslu
Brunavarnir Suðurnesja
BRAUTARNESTI
FYRIR JÖLIN:
Mikið úrval af konfekti.
Innlent og erlent sælgæti.
Öl og gosdrykkir.
(s - Niðursoðnir avextir - Kex.
Gjorið svo vel og lítið inn - Næg bilastæði
BRAUTARNESTI
Hringbraut 93B - Keflavík - Sími 3393
Auglýsið í Víkur-fréttum