Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 18
Fimmtudagur 17. desember 1981
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
hlutlausa úttekt á hagkvæmni
(kostum og ókostum) samein-
ingar bæjarfélaganna, eins og
lagt var til í bæjarstjórn Kefla-
víkur 20. okt. sl.
Heildarskipulag bæjanna til
aldamóta er nú í endurskoðun og
hlýtur afstaða bæjaryfirvalda á
hvorum stað til þess, að markast
að verulegu leyti á því, hvort bæj-
arfélögin munu renna saman í
eitt í náinni framtíð, og getur
bæjarráðið því ekki fallist á það
sjónarmið að slíkt sé ekki tíma-
bært.
Njarðvíkurhöfn:
Ekki gert ráð fyrir
veitingarekstri
Á fundi bygginganefndar
Njarðvíkur 24. nóv. sl. var tekið
fyrir bréf frá Landshafnarstjórn,
þar sem því er beint til bygginga-
nefndar að leita til skipulags
ríkisins um staðarval fyrir veit-
ingarekstur við Njarðvikurhöfn.
Bygginganefnd samþykkti að
ítreka, að í gildandi skipulagi
væri ekki gert ráð fyrir veitinga-
rekstri við höfnina og telur um-
sókn um sjoppuleyfi gefi ein sér
ekki tilefni til endurskoðunar á
því. Hins vegar minnir bygginga-
nefnd á, að stjórn Landshafnar
hefur þegar farið fram á endur-
skoðun skipulags hafnarinnar.
Vorum að taka
upp glæsileg
sloppasett,
náttkjóla
og náttföt.
VersluninL IS A
Hafnargötu 27
Bæjarráð Keflavíkur harmar afgreiðslu
bæjarstjórnar Njarðvíkur
um að synja úttekt á hagkvæmni
sameiningar bæjarfélaganna
Á fundi bæjarráðs Keflavíkur
8. des. sl., las bæjarstjóri eftirfar-
andi bréf frá Njarðvíkurbæ:
Athuga-
semd
,,Á fundi bæjarstjórnar Njarð-
víkur 1. des. 1981 var eftirfarandi
samþ. gerð samhljóða:
,,Af tilefni af viðræðum bæjar-
ráðs Keflavíkur við bæjarráð
Njarðvíkur vegna tillögu sem
samþ. var í bæjarstjórn Keflavík-
ur 20. okt. 1981, ,,um að kjósa
sameiginlega fjögurra manna
nefnd til þess að gera hlutlausa
úttekt á hagkvæmni (kostum og
ókostum) sameiningar bæjarfé-
laganna", samþykkir bæjarstjórn
Njarðvíkur að hún telur ekki
tímabært að slík athugun fari
frarn."
Bæjarráð Keflavíkur harmar
það, að bæjarstjórn Njarðvíkur
getur ekki samþ. að láta gera
( Suðurnesjapóstinum 9. des.
er birt frétt um afgreiðslu Sjálf-
stæðismanna í Njarðvík á tillögu
um að kjósa nefnd til þess að
gera hlutlausa úttekt á kostum
og göllum sameiningar Kefla-
víkur og Njarðvíkur.
I fyrirsögn segir „Sameining-
arnefnd", sem að sjálfsögðu er
villandi, því á þessu stigi hefir
aðeins verið talað um nefnd til
þess að kanna kosti og galla
sameiningar.
[ greinargerð bæjarstjórans,
sem hann hefir látið fylgjatillögu
sinni, segir að Keflvíkingar hafi
sett það „skilyrði" að nefndin
lyki störfum fyrir 1. febrúar 1982.
Þetta, sem annað í túlkun bæjar-
stjórans, er alrangt. Engin skil-
yrði voru sett um eitt eða neitt.
Að sjálfsögðu var Njarövíking-
um frjálst að koma með breyting-
artillögur, bæði um þessa dag-
setningu og annað, á sameigin-
lega fundinum. Það gerðu þeir
hins vegar ekki, heldur sam-
þykktu að leggja tillöguna fyrir
óbreytta.
Afgreiðsla tillögunnar í
bæjarstjórn veröur svo að teljast
all furöuleg, þegar þess er gætt
að fyrir liggja yfirlýsingar frá að
minnsta kosti fimm af sjö bæjar-
fulltrúum um fylgi við hana, þar
af tveir sjálfstæðismenn
Það er ekki út í bláinn að talað
er um Alla Kalla „Khomeni"
Njarðvikinga.
Ólafur Björnsson
Eins og fram kemur annars staðar i blaðinu er hafið verðstríð milli
Tommahamborgara og Keflavíkurborgararns. Eigandi Keflavikur-
borgarans tók sig til um daginn og teppalagði gangstéttina fyrir
framan staöinn og var myndin tekin er veriö var að leggja teppið.
Munið okkar þekkta og góða jólahangikjöt.
Allir þekkja okkar fjölbreytta vöruúrval.
Jólaávextirnir í heilum og Y2 kössum. Hagstætt verð.