Víkurfréttir - 17.12.1981, Blaðsíða 50
Fimmtudagur 17. desember 1981
JÓLABLAÐ
VIKUR-fréttir
Enn ein nýjung hjá Samvinnuferðum-Landsýn:
Skíðaferðirnar
loks í leiguflugi
Rætt við Kristin Danivalsson, umboðsmann
í Keflavík
feröaskrifstofan Samvinnu-
ferðir-Landsýn hefur á síðustu
árum vakið æ vaxandi athygli
fyrir nýja áfangastaði, stóraukið
leiguflug og æ stærri hlutdeild i
ferðaskrifstofumarkaðnum. Á
sama tíma hefur ötull umboðs-
maður Samvinnuferða-Land-
sýnar í Keflavík, Kristinn
Danivalsson, aukiö umsvif sín og
sölu og rennir margan Suður-
nesjamanninn i grun að þar eigi
ferðaskrifstofan góðan hauk í
horni. Við hittum Kidda Dan á
förnum vegi fyrir skömmu og
spurðum hvað helst væri fram-
undan í ferðamálunum.
,,Nú, það eru auðvitað skíða-
ferðirnar sem eru i aðalhlutverk-
inu í augnablikinu. Og þá er sko
gaman að vera Samvinnuferða-
maður, því nú er flogið í fyrsta
sinn í beinu leiguflugi í skíöa-
löndin í Austurríki. Við erum þar
með þrjáfyrstaflokksskíöastaði,
Sölden, Zillertal og Niederau, -
allt staðir sem okkar kröfuhörð-
ustu skiðafræðingar hafa lagt
blessun sína yfir. Þaö ætti því
ekki að væsa um (slendingana
sem þangað fara - og leiguflugiö
sér um aö buddan veröi í góöu
skapi lika.
Annars er hitt annað mál, aö
þaö eru ekki lengur bara okkar
skíðaferðir sem eru ódýrar. Það
er búið að flytja skíöamenn í
áætlunarflugi í mörg ár á fullu
veröi, en Flugleiöir hafa nú
svarað leigufluginu með stór-
lækkuöum verðum og við erum
bara hressir með það. Enn eitt
dæmið um hve miklu leiguflug
okkar viða um heim hefur fengið
áorkað í orlofsferðum lands-
manna."
Stuttar páskaferðir
Og þið fyllið auðvitað skíða-
ferðirnar á skömmum tima, -
hvað tekur svo við?
„Skíðaferðunum lýkur í marz
og þá snúum við okkur að pásk-
unum. Það eru upplagðir dagar
fyrir stuttar ferðir án þess að
níðst sé á vinnudögunum. Við
verðum a.m.k. með eina af okkar
stórvinsælu fimm daga ferðum til
Parísar, aðra fimm daga ferð til
Dublin á frlandi og svo auðvitað
helgarferð og jafnvel vikuferð
líka til London. Þetta eru leigu-
flugsferðir af ódýrustu gerð -
feröir sem eru pottþéttar, bæði i
sölu og fyrirgreiðslu fyrirfarþeg-
ana. Við kunnum þetta utan-
bókar - við getum flaggað langri
og góðri reynslu í þessum efnum
og erum sannfæröir um að færri
komast að en vilja."
Sumarferðirnar aldrei
fjölbreyttari
Og svo fer að vora?
,,Já, og þá verður nú líf í tusk-
unum. Rimini á (taliu og Portoroz
i Júgóslavíu verða áfram á dag-
skránni og við bætum við sólar-
landaferðirnar með þriggjavikna
ferðum til Grikklands i beinu
leiguflugi. Og það eru ekkert
venjulegar ferðir. Við byrjum
bara á toppnum, bjóðum íbúðir
og hótel ílúxusklassaáeinnivin-
sælustu baðströnd Grikkja.
Það er væntanlega þokkalega
heitt þar á miðju sumri?
,,Já, hitinn getur farið ansi
hátt, 'en við svörum þvi einmitt
með gistiaöstööunni, allar íbúðir
okkar eru loftkældar. Nú, og svo
bjargar stöðugur og hressandi
andvari frá hafinu því sem upp á
vantar. Þetta er fyrsta flokks
staður fyrir sóldýrkendur og við
bjóðum ekki uppáneittannaðen
íbúðir með góðum „suðursvöl-
um“. Það er sko örugglega hægt
að láta sér líða vel þarna."
Og þá eru sólarlandaferðirnar
upptaldar?
„Já, það má e.t.v. segja það,
en sólin skín samt viðar. Veður-
sældin hefur t.d. ekki svikið Dan-
merkurfarþegana okkar, sem
flykkjast í leiguflugsferðirnar í
dönsku sumarhúsin i Karlslunde
og Karrebæksminde. Við
verðum með einnar, tveggja og
þriggja vikna ferðir þangað allt
næsta sumar. Nú, og svo er fyrir-
hugað að fljúga í leiguflugi til
Toronto í Kanada og skipu-
leggja þaðan algjörar „sólsteik-
ingarferðir" til Hawaii, Miami,
Puerto Rico og fleiri slíkra staða.
Frá Toronto verða einnig skipu-
lagðar hópferðir til stórborga
eins og Los Angeles, San
Fransisco og jafnvel viðar, auk
þess sem farið verður í rútuferðir
um Kanada og Bandaríkin.
Það verður því nóg um að vera
næsta sumar og fyrir utan allt
þetta skipuleggjum við sumar-
ferðir til (rlands, orlofsferðir aldr-
aðra til Portoroz og jafnvel
Grikklands, förum í sérstaka
leiguflugsferð til Sviss og Aust-
urríkis, efnum til rútuferðar um
Mið-Evrópu og síðast en ekki síst
verða Norðurlandaferðir á
„tombóluverði". Þá er flogið í
leiguflugi til Noregs og Finn-
lands og farið í rútu-og tjaldferð-
ir um þessi lönd og Svíþjóð að
auki. Norðurlandaferðirnar hafa
verið með þessu sniði síðustu
árin og við sjáum þar sömu far-
þegana ár eftir ár, enda ferðirnar
engu líkar."
Fólkið fái að velja
Og þú óttast ekkert söluna i
sumar, er þetta ekki oröið of-
framboð?
„Nei, ég hlakka mikiö til að
byrja að selja sumarferðirnar.
Kristinn Danivalsson
Hjá Samvinnuferðum er þetta
ekki neitt nálægt því að vera of-
framboð, en hins vegar má e.t.v.
segja að svo mikið ferðaúrval
komi okkur í vaxandi samkeppni
við sjálfa okkur. En er það bara
ekki mjög gott? Mér finnst að
fólk eigi að fá að velja sjálft um
sem allra fjölbreyttasta ferða-
möguleika. Það er úrtaktviðtím-
ann að moka íslenskum ferða-
löngum öllum á einn stað eða
tvo, - jafnvel þótt slíkt kunni að
vera einfaldasta tekjulindin fyrir
ferðaskrifstofur. Við erum
ákveðnir i að standa vörð um
okkar forystuhlutverk og opna
landsmönnum sem allra flestar
leiðir út í hinn stóra heim.
Og hvað sjálfan mig varðar
þarf ég varla að kvíða sumrinu.
Ég hef átt einstaklega góð sam-
skipti við Suðurnesjamenn og
hvergi annars staðar á landinu
eru viðskiptin við Samvinnu-
ferðir-Landsýn hlutfallslega
meiri en einmitt hérna á Suöur-
nesjum. Ég get þess vegna verið
ánægður með árangurinn og
auövitað vona ég að viðskipta-
vinirnir séu það líka. Það er nú
einu sinni megin markmiðið, -
ekki satt?"
Keflvíkingar!
Samtaka nú!
Takmarkið er, að allir verði skuldlausir
við bæjarsjóð um áramótin.
Gerið skil í tíma og forðist með því
kostnað og óþægindi sem af vanskil-
um leiðir.
Innheimtustjóri