Læknablaðið - 01.02.2018, Page 4
71
Erla Svansdóttir, Sesselja Hreggviðsdóttir, Björg Sigurðardóttir, Elísabet Benedikz,
Karl Andersen, Hróbjartur Darri Karlsson
Ótilgreindir brjóstverkir og tengsl við viðvarandi
verkjaupplifun og vanlíðan
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengar dánarorsakir og meðferðarkostnaður gríðar-
legur. Vegna þeirrar áhættu sem fylgir hjartaáföllum hefur verið brýnt fyrir fólki að
leita sér læknisaðstoðar hið fyrsta fái það skyndilegan brjóstverk. Eðli málsins
samkvæmt geta brjóstverkir vakið ótta, kvíða og aðra vanlíðan og fjölgað komum
á bráðadeildir. Hjá meirihluta sjúklinga sem leita aðstoðar vegna brjóstverkja finn-
ast hins vegar engin merki um hjartasjúkdóm við ítarlega skoðun og rannsóknir, né
önnur bráð veikindi sem gætu skýrt verkinn. Slík tilvik eru ótilgreindir brjóstverkir
(non-cardiac chest pain) og stafa af vefrænum orsökum einsog vélindabakflæði og af
sálrænum þáttum, eins og kvíða og þunglyndi.
79
Sigríður Lára Guðmundsdóttir, Vaka Rögnvaldsdóttir, Berglind M. Valdimarsdóttir,
Robert Brychta, Soffía M. Hrafnkelsdóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson,
Erlingur Sigurður Jóhannsson, Chen Kon, Sigríður Lára Guðmundsdóttir
Hreyfing og svefn reykvískra ungmenna
Hreyfing og svefn eru mikilvægir áhrifaþættir heilsufars. Alþjóðlegar ráðleggingar
mæla með því að börn og unglingar hreyfi sig að lágmarki 60 mín daglega af
miðlungs eða mikilli ákefð og sofi í 8 til 10 klukkustundir á sólarhring. Tengsl hreyf-
ingar og svefns meðal ungmenna eru ekki vel þekkt. Markmið rannsóknarinnar voru
að meta: a) hversu hátt hlutfall 16 ára reykvískra ungmenna uppfyllir viðmið um
hreyfingu og svefn, b) hvort tengsl séu milli hreyfingar og svefns og c) kynjamun á
hreyfingu og svefni.
64 LÆKNAblaðið 2018/104
F R Æ Ð I G R E I N A R
2. tölublað ● 104. árgangur ● 2018
67
Ólöf Sara Árnadóttir
#MeToo-bylting ís-
lenskra lækna
Yngri kvenlæknar og
læknanemar verða mest
fyrir kynferðislegri áreitni og
ofbeldi, en áreitni gagnvart
sérfræðilæknum birtist oftar í
þöggun og jaðarsetningu.
69
Tryggvi Helgason
Að hreyfa við
óúthvíldri þjóð
Flestir sem vinna við rann-
sóknir á forvörnum fyrir börn
ítreka í ályktunum að mik-
ilvægasti þátturinn sé tími
með foreldrum, samtal við þá
og jafningja sína.
L E I Ð A R A R
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS 100 ÁRA
86
Læknar í verkfalli
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
Það er ekki algengt að læknar fari í verkfall en þegar það gerist
verða gjarnan miklar umræður meðal fagfólks innan heilbrigð-
isgeirans og almennings meðal annars um siðferðilega rétt-
lætingu verkfalls með sér neitt félag, ekki frekar en aðrir hópar
eða starfsstéttir.
90
Læknafélag Íslands 100 ára
Ávarp formanns á afmælishátíð
í Eldborg 15. janúar 2018