Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2018, Side 26

Læknablaðið - 01.02.2018, Side 26
Inngangur Það er ekki algengt að læknar fari í verkfall en þegar það gerist verða gjarnan miklar umræður meðal fagfólks innan heilbrigðis- geirans og almennings meðal annars um siðferðilega réttlætingu verkfalls.1 Frizelle2 bendir á að á undanförnum tveimur áratug- um hafa læknar í mörgum löndum farið í verkfall, til dæmis í Ástralíu, Belgíu, Kanada, Finnlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Ír- landi, Nýja Sjálandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Helstu ástæð- ur verkfalla lækna má rekja til þátta eins og óánægju með laun, menntun og reynsla er ekki metin til launa, kröfur um breytingu á vinnutilhögun, vinnuaðstöðu, vinnutíma og launamyndun. Ennfremur skortur á stefnumótum í heilbrigðismálum, öryggis- málum ábótavant, vinnuskilyrði ekki nægilega góð og stjórnsýslu innan heilbrigðiskerfisins áfátt. Ekki hafi verið hlustað á kröfur þeirra og ábendingar og læknar því þvingaðir til aðgerða og verkföll því í raun neyðar- eða lokaúrræði.3 Í þessari grein verður rætt um fyrsta verkfall lækna hér á landi, einnig verður rætt um kjarabaráttu þá sem læknar stóðu í fyrir 100 árum síðan, á fyrsta starfsári Læknafélags Íslands. Fræðileg umræða Ef verkfallskenningar eru skoðaðar með hliðsjón af hárri verk- fallstíðni opinberra starfsmanna hér á landi eru þrjú atriði sem vert er að skoða. Í fyrsta lagi kenningar Hicks4 um ófullnægjandi kjarasamningaferli með óskýrum og flóknum samningsmark- miðum, í öðru lagi stofnanakenningar sem byggja á því að fyr- irkomulag kjarasamningagerðar geti haft áhrif á verkfallstíðni. Í þriðja lagi hafa opinberir starfsmenn dregist aftur úr í launum samanborið við þá sem vinna sambærileg störf á almenna vinnu- markaðnum.5 Lítið hefur verið skrifað um læknaverkföll. Gerð var allsherj- argreining á læknaverkaföllum6 með tilliti til þess hvort dánar- tíðni hafi aukist eða staðið í stað í kjölfar verkfalla lækna. Skoðuð voru 5 verkföll lækna víðsvegar um heiminn á árunum 1976-2003. Verkföllin stóðu frá 9 dögum upp í 17 vikur. Niðurstaðan var sú að dánartíðni stóð í stað eða jafnvel minnkaði meðan á verkfalli stóð samanborið við önnur tímabil. Nokkuð hefur verið skrifað um siðferðilega þætti varðandi verkföll lækna.1,3,7 Verkfallsréttur- Læknar í verkfalli inn er einn helgasti réttur launþega, verkfallsvopnið þrýstir á viðsemjendur að ganga til samninga, annars að eiga á hættu að starfsemi og þjónusta fari úr skorðum eða leggist niður.5 Samnings- og verkfallsréttur starfsmanna á almennum vinnu- markaði var lögfestur árið 1938 hér á landi þegar lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur voru samþykkt. Langt fram eftir 20. öldinni var staða opinberra starfsmanna talsvert frábrugðin stöðu launþega á almennum vinnumarkaði hvað samnings- og verkfallsrétt varðaði. Launakjör voru einhliða háð ákvörðun vinnuveitenda þar sem þau voru ákvörðuð með lögum eða úrskurði kjaradóms (nú kjararáðs). Þegar leið á 20. öldina urðu kröfur opinberra starfsmanna um samnings- og verkfallsrétt sí- fellt háværari og launarannsóknir sýndu að opinberir starfsmenn höfðu dregist verulega aftur úr öðrum launþegum í launum.5,8,9,10 Aðrar reglur giltu um verkfallsrétt opinberra starfsmanna en á launþega á almennum vinnumarkaði. Verkföll voru bönnuð lengst framan af 20. öldinni en um skipulag og heimildir opin- berra stéttarfélaga til verkfallsboðunar gilda lög nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Opinber stéttarfélög hafa heimild til verkfallsaðgerða í 14. gr. þessara laga. Aftur á móti gilda enn lög nr. 33/1915, um verkfall opinberra starfsmanna en samkvæmt 1. gr. þeirra laga sætir opinber starfsmaður sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef hann tekur þátt í verkfalli. Síðari málsliður 14. gr. laga nr. 94/1986 tilgreinir sérstaklega að ákvæði laga nr. 33/1915 nái ekki til þeirra sem heimilt er að efna til verkfalla samkvæmt lögum nr. 94/1986. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) öðlaðist samn- ingsrétt gagnvart ríkinu með lögum nr. 55/1962. Opinberum starfsmönnum var þannig tryggður réttur til að semja um kjör sín en með ákveðnum takmörkunum. Ef samkomulag náðist ekki milli aðila skyldi kjaradómur úrskurða um kjör opinberra starfsmanna. BSRB fékk verkfallsheimild árið 1976, sbr. 18. gr. laga nr. 29/1976, en þessi verkfallsheimild var aðeins tengd gerð aðalkjarasamnings. Tekið var sérstaklega fram að rétturinn væri einungis í höndum heildarsamtakanna, BSRB, en ekki einstakra félaga. Árið 1986 var samnings- og verkfallsréttur færður til aðildarfélaganna með lögum um kjarasamninga opinberra starfs- manna (lög nr. 94/1986).5,8,9,11 Til að lágmarka tjón og óþægindi vegna verkfalla starfsmanna í almannaþjónustu er reynt með undanþágulistum að halda grunnþjónustu gangandi, sbr. 5 tl. 1 mgr. 19. gr. l. nr. 94/1986. Þar segir að hin almenna verkfallsheim- ild nái ekki til þeirra sem starfa við nauðsynlegustu öryggis- gæslu og heilbrigðisþjónustu. Þannig er verkfallsréttur lækna takmarkaður með lögum og á meðan verkfall lækna stendur eiga læknar einungis að sinna nauðsynlegustu heilbrigðisþjónustu og bráðatilvikum.12 Frá því að opinberir starfsmenn fengu verkfallsrétt hér á landi árið 1976 hafa verkföll meðal þeirra verið tíð. Fyrstu verkföll opinberra starfsmanna skullu á með miklum þunga árið 1977. 86 LÆKNAblaðið 2018/104 Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent í mannauðsstjórnun við viðskiptadeild Háskóla Íslands gylfidal@hi.is Þetta er ein þeirra greina sem Læknablaðið kallaði eftir í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.