Læknablaðið - 01.02.2018, Page 38
98 LÆKNAblaðið 2018/104
Læknadagar nú í þriðju viku janúar
voru geysilega vel sóttir að sögn Mar-
grétar Aðalsteinsdóttur skrifstofustjóra
Læknafélags Íslands en hún hefur haldið
utan um skráningar og skipulag Lækna-
daganna mörg undanfarin ár og hefur
því góða yfirsýn yfir hvernig þeir hafa
þróast.
„Skráning á Læknadaga var mjög góð og
betri en í fyrra en það var fyrst og fremst
þátttakan í einstökum málþingum sem fór
fram úr björtustu vonum,“ segir Margrét.
„Málþing voru í heildina mjög vel sótt og
í nokkrum tilvikum urðum við að loka
því ekki komust fleiri inn og starfsmenn
Hörpu voru farnir að tvístíga yfir fjöldan-
um.“
Undir þetta tekur Sólveig Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri Læknafélagsins og seg-
ir að Læknadagarnir hafi heppnast afskap-
lega vel og hún hafi fundið fyrir mikilli
ánægju meðal þátttakenda. „Dagskráin
Læknisfræði í þátíð, nútíð og framtíð
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Hundrað ára
afmæli Læknafélags
Íslands setti sterkan
svip á Læknadaga í ár
Hallgrímur Kjartansson, Kristinn Þorbergsson og Hannes Hrafnkelsson.
Læknakórinn varð til á nóinu þegar afmælisnefndin kallaði eftir söngglöðum röddum kolleganna. Einn tveir og bingó, og það voru mættir 70 læknar, og þurfu bara þrjár æfingar.
Árni Harðarson leiddi þau gegnum fjögur lög, viðtökurnar voru skínandi góðar og almennt er talið að kórinn sé hérmeð orðinn einn af stofnunum í Læknafélaginu. Myndir Védís.
Afmælisdagskrá LÍ lauk
með tónlistarveislu í Eld-
borg. Guðmundur Óskar
Guðmundsson stýrði henni
og meðal annarra sem
fram komu var Sigríður
Thorlacius.