Læknablaðið - 01.02.2018, Page 39
LÆKNAblaðið 2018/104 99
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
var sérstaklega fjölbreytt og höfðaði jafnt
til sérfræðinga á ákveðnum sviðum og
breiðari hóps alls almennings. Það sýnir
þátttakan í mjög sérhæfðum málþingum
og einnig þeim sem opin voru almenn-
ingi. Þeir læknar sem ég talaði við höfðu
sérstaklega orð á því hvað dagskráin var
fjölbreytt og óvenju margir sóttu viðburði
alla dagana,“ segir Sólveig. Hún bendir
einnig á hversu mikilvægu félagslegu
hlutverki Læknadagarnir gegna en fyrir
marga lækna er þetta kærkomið tækifæri
til að hitta kollega í öðrum sérgreinum og
kynna sér hvað er efst á baugi.
Af vel sóttum málþingum má nefna
Mótun heilans og Skjánotkun barna þar
sem fylltist allt útúr dyrum og urðu all-
margir frá að hverfa og sama er að segja
um málþing um geðheilbrigði og samfé-
lag sem opið var almenningi. Er ljóst að
skipuleggjendur hittu þar naglann beint
á höfuðið.
Einnig má nefna málþing um Of-
lækningar, Skipulag borga og bæja þar
sem borgarstjórinn og læknirinn Dagur
Tveir góðir sem
hafa engu gleymt.
Ungliðar áttu
glaðbeitta fulltrúa
á staðnum.
Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur umkringdur geðlæknunum Halldóru Jónsdóttur, Ferdin-
and Jónssyni og Nönnu Briem.
Gunnar Helgi Guðmundsson og Elínborg Bárðardóttir heimilislæknar.
Ingólfur Kristjánsson, Jörundur Kristinsson og Jón Snædal voru kampakátir með Læknadaga.
Ástríður Stefánsdóttir siðfræðingur og Birgir Jakobsson landlæknir , voru frummæl-
endur á vel sóttu málþingi um oflækningar sem Alma Möller stýrði.