Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 17
Þann 4.maí 2018 var undirritaður kaupsamningur ámilli Vogunar hf. og Fiskveiðihlutafélagsins Venusar hf. og Brims hf. („Brim“) um kaup Brims á öllu hlutafé félaganna í HBGranda hf. („HB Grandi“). Um var að ræða 619.721.067 hluti sem samsvara 34,01% af heildarhlutafé HBGranda. Fyrir áttu aðilar tengdir Brimi, þ.e. Guðmundur Kristjánsson sem er stærsti hluthafi félagsins, og félagið Fiskitangi ehf. sem er í eiguGuðmundar, 1.644.797 hluti í HBGranda. Eftir viðskiptin er sameiginlegur eignarhlutur þessara aðila 621.365.864 hlutur, sem samsvarar 34,1% af heildarhlutafé HBGranda. Kaupin ásamt eignarhaldi Brims og tengdra aðila á fyrrgreindum 1.644.797 hlutum í HBGranda gerir það að verkum að skylt er að gera öðrumhluthöfum yfirtökutilboð, þ.e. bjóðast til að kaupa hluti þeirra í HBGranda í samræmi við 100. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti („vvl.“) nánar tiltekið X. og XI. kafla laganna. Brim, sem er íslenskt hlutafélag, gerir yfirtökutilboð byggt á skilmálum og skilyrðum sem sett eru fram í opinberu tilboðsyfirliti sem dagsett er 1. júní 2018 („tilboðsyfirlitið“). Tilboðshafar Tilboðið nær til allra hluta í HBGranda sem ekki voru í eigu tilboðsgjafa eða aðila tengdumhonumeða félagsins sjálfs þann 30.maí 2018. Hluthöfum sem skráðir voru í hlutaskrá HBGranda í upphafi dags 30.maí 2018 mun verða sent tilboðsyfirlitið, samþykkiseyðublað og svarumslag. Tilboðið nær ekki til þeirra hluthafa í HBGranda sem skráðir eru í hlutaskrá HBGranda eftir 30. maí 2018. Framangreind skjöl verða einnig aðgengileg hjá Íslandsbanka hf., Hagasmára 3, 201 Kópavogi („Íslandsbanka“) og hægt er að nálgast tilboðsyfirlitið á heimasíðu Íslandsbanka, www.islandsbanki.is. Umsjónaraðili Íslandsbanki hefur verið ráðinn umsjónaraðili með yfirtökutilboðinu fyrir hönd tilboðsgjafa. Nánari upplýsingar veitir fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka í síma 440 4000. Tilboðsverð og greiðsla Verð samkvæmt yfirtökutilboðinu er 34,3 krónur fyrir hvern hlut í HBGranda, kvaða- og veðbandslausan. Tilboðsverðið svarar til kr. 35 á hlut fyrir arðgreiðslu upp á 0,7 krónur á hlut sem svarar til hæsta verðs semBrim og samstarfsaðilar hafa greitt fyrir hluti í HBGranda síðustu sexmánuði áður en tilboð þetta er sett fram. Greiðslur fyrir hluti þeirra sem tilboðið samþykkja verða greiddar í íslenskum krónum inn á bankareikning viðkomandi hluthafa sem tilgreindur er á samþykkiseyðublaðinu. Greiðslan verður innt af hendi eigi síðar en fimm viðskiptadögumeftir að gildistími yfirtökutilboðsins rennur út. Tilboðstímabil Gildistími yfirtökutilboðsins er frá kl. 09.00 í dag þann 1. júní 2018 til kl. 17.00 þann 29. júní 2018. Frumrit samþykkis yfirtökutilboðsins verður að hafa borist Íslandsbanka eigi síðar en kl. 17.00 þann 29. júní 2018. Hluthafar bera sjálfir ábyrgð á að samþykkiseyðublaðið hafi borist umsjónaraðila. Tilboðsgjafi áskilur sér einhliða rétt til að ákveða hvort samþykkiseyðublöð semberast eftir að gildistími tilboðsins rennur út verði tekin gild. Framlengjamá yfirtökutilboðið að því marki sem ákvæði vvl. leyfa. Afskráning ekki fyrirhuguð af skipulegum verðbréfamarkaði Tilboðsgjafi hefur ekki uppi áætlanir um að afskrá HBGranda af skipulegum verðbréfamarkaði. Stórir hluthafar hafa samþykkt að vera áfram hluthafar í félaginu ogmunu ekki taka yfirtökutilboðinu. Það er styrkur fyrir HBGranda að vera skráð á skipulegum verðbréfamarkaði þannig að það hafi fjárhagslegan styrk til að vaxa og dafna enn frekarmeð kaupum á félögum í skyldri starfsemi, eflamarkaðs- og þróunarstarf semmun auka arðsemi félagsins og þarmeð verðmæti hluthafa félagsins til lengri tíma. Reykjavík, 1. júní 2018 Brim hf. Yfirtökutilboð til hluthafaHBGrandahf. Brim hf. gerir hluthöfumHBGranda hf. tilboð um kaup á hlutum þeirra í félaginu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.