Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Flor de Toloache, fyrsta mariachi- hjómsveit New York sem ein- göngu er skipuð konum, heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu á laugardag kl. 20 og eru þeir hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykja- vík. Hljómsveitin var stofnuð árið 2008 af Mireyu I. Ramos og var fyrst um sinn tríó en stækkaði svo í fullskipaða mariachi-sveit og leikur hér á landi sem kvartett. Hljómsveitin hlaut bandarísku Latin Grammy-verðlaunin í fyrra fyrir bestu mariachi-plötuna, Las caras lindas, og var það ekki síst sætur sigur vegna þeirrar karl- rembu og fordóma sem hljóm- sveitin hefur mátt þola í gegnum árin, að sögn Ramos, því mariachi- sveitir hafa ávallt verið og eru enn nær eingöngu skipaðar körlum. Auk þess braut hljómsveitin blað í sögu verðlaunanna með því að vera fyrsta kvennasveitin sem hlýtur verðlaun fyrir bestu mari- achi-plötuna. Ólst upp við mariachi Ramos á ættir að rekja til Mexíkó og Púertó Ríkó og er með mariachi-tónlistina í blóðinu, svo að segja, þar sem mexíkóskur fað- ir hennar var mariachi-söngvari og rak auk þess veitingastað í Púertó Ríkó þar sem Ramos ólst upp. „Hann söng oft á veitingastaðnum með hljómsveit úr hverfinu,“ rifjar Ramos upp yfir kaffibolla í Hörpu. Þannig hafi hún kynnst mariachi- tónlist og þegar hún flutti til New York gerðist hún mariachi- tónlistarmaður. Ramos syngur og leikur á fiðlu og „guitarrón“, mexíkóskan sex strengja bassa, en önnur hljóðfæri sem hljómveitin leikur á eru „vi- huela“, strengjahljóðfæri sem minnir á gítar, trompet og svo önnur fiðla til viðbótar. Meðlimir sveitarinnar eiga ættir að rekja til fjölda landa, m.a. Mexíkó, Dóm- iníska lýðveldisins, Kúbu, Kólumb- íu, Þýskalands, Ítalíu og Banda- ríkjanna, og þykir hljómsveitin koma með framsækna, fjölbreytta og ferska nálgun á mexíkóska þjóðlagatónlist, eins og segir á vef Listahátíðar. Mikil fjölbreytni Mariachi er rík tónlistarhefð sem á uppruna að rekja til vestur- hluta Mexíkó á 19. öld og hún á sér margar undirgreinar, ólíkar flutningsaðferðir, söng- og dans- stíla og flytjendur þurfa einnig að fylgja ákveðnum hefðum í klæða- burði. Minnir það á hina ríku flamenco-hefð Spánverja með sinni tónlist og dansi. Tónlistin er þó býsna ólík, eins og gefur að skilja. Ramos segir að greina megi spænsk áhrif í mariachi og jafnvel áhrif frá flamenco. Mariachi-listin sé engu að síður einstök, innan hennar megi finna tónlist frá ólík- um svæðum Mexíkó og þar sem engar trommur eru í mariachi- sveitum séu strengjahljóðfærin notuð til ásláttar. „Og það er alls konar taktur í tónlistinni því hún kemur frá öllum héruðum Mexíkó,“ bendir Ramos á. Því bjóði mariachi upp á marga mögu- leika. „Það sem við í Flor de Tolo- ache gerum er að blanda saman við þessa hefðbundnu tónlist ólík- um tónlistartegundum, m.a. djassi, salsa og hipphoppi,“ útskýrir hún. Ramos segir mikla gleði að finna í mariachi-tónlist og ástríðu, hvort sem um er að ræða sorgleg lög eða glaðleg. „Hún er mjög há- tíðleg og kraftmikil og þótt þú skiljir ekki textann hreyfir hún við þér, þetta er svo falleg tónlist,“ segir hún. Karlaheimur Fötin eru mikilvægur hluti mariachi-hefðarinnar og segir Ramos að hún og samstarfskonur hennar í hljómsveitinni fylgi þeirri hefð upp að vissu marki. „Konur eru oftast í síðum pilsum, sam- kvæmt hefðinni, með hárið uppsett og annaðhvort stóran sombrero- hatt á höfði eða blóm í hárinu. Við erum í jökkum og buxum en við fórum að klæðast buxum af nauð- syn því í New York er ómögulegt að vera í síðu pilsi ef maður þarf að ferðast með lest milli tónleika- staða. Við vöktum athygli fyrir klæðaburðinn og vorum gagn- rýndar harðlega fyrir hann. Karl- ar ráða enn ríkjum innan þessarar listgreinar og þeir eru afar and- snúnir breytingum,“ segir Ramos. – Þið funduð þá fyrir miklu and- streymi þegar þið voruð að byrja? „Já og gerum enn,“ svarar Ramos. Formfastir mariachi- listamenn og -unnendur séu ekki hrifnir af því að kvenkyns flytj- endur klæðist buxum. „Og við höf- um líka fengið að heyra að við séum ekki mariachi-hljómsveit og lítum ekki út fyrir að vera mexí- kóskar enda eru flestar okkar það ekki. Það virðist líka vera vanda- mál,“ segir Ramos og hlær að karlrembunni. Aðalvandamálið virðist vera kynið, að hljómsveitin sé skipuð konum. – Það hlýtur þá að hafa verið sérstaklega gaman að fá Grammy- verðlaunin og sanna endanlega fyrir þessum karlrembum að þið eruð mariachi-hljómsveit og mikil gæðasveit sem slík? „Jú, vissulega,“ segir Ramos og brosir breitt og tekur fram að verðlaunin hafi verið mikill heiður fyrir hljómsveitina. Allur tilfinningaskalinn Hljómsveitina sem leikur í Hörpu á laugardaginn skipa, auk Ramos, þær Julie Acosta á tromp- et, Nancy Sanchez sem leikur á vi- vuela og syngur og Noemi Gasp- arini sem leikur á fiðlu og syngur. Ramos segir að tónleikagestir fái að taka þátt í tónleikunum og þá m.a. með því að syngja með og að þeir muni kynnast ólíkum stílum mariachi-tónlistar og ýmsum blæ- brigðum og blöndum. Leikið verði á allan tilfinningaskalann. – Þeir sem ekki þekkja mari- achi-tónlist verða væntanlega margs vísari eftir tónleikana? „Já, einmitt, og þetta verður mjög áhrifamikið, það myndast mikil orka hjá okkur á sviði sem við viljum deila með öðrum.“ Konur í buxum  Mariachi-kvennasveitin Flor de Toloache kemur fram á Listahátíð í Reykjavík  Hlaut Latin Grammy-verðlaun í fyrra fyrir bestu mariachi-plötuna  Hafa fundið fyrir karlrembu og fordómum Ljósmynd/Andrei Averbuch Tilfinningar Vinkonurnar í mariachi-hljómsveitinni Flor de Toloache í fullum skrúða í heimaborg sinni New York. Morgunblaðið/Arnþór Forsprakki Mireya Ramos, stofnandi og einn liðsmanna Flor de Toloache. Sýning breska listamannsins og hönnuðarins Daniels Lismores, Be yourself, everyone else is already taken, eða Vertu þú sjálfur, allir aðr- ir eru fráteknir, verður opnuð í Hörpu á morgun kl. 18 og er hún á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sem hófst í gær og stendur til 17. júní. Lismore er listamaður, fatahönn- uður, stílisti, rithöfundur og baráttu- maður, búsettur í London, að því er fram kemur á vef hátíðarinnar, og hefur tímaritið Vogue útnefnt hann sem sérviskulegast klædda mann Englands. Hann er þekktur fyrir íburðarmikinn og yfirgengilegan klæðnað sem sameinar á stórkostleg- an máta hátísku og hans eigin hönn- un, notuð efni, fundna hluti, hringa- brynjur, skartgripi ólíkra menningarhópa, hattagerðarlist og margt fleira, eins og það er orðað á hátíðarvefnum. Segir þar að útkom- an sé „ein allsherjar tjáning óhefl- aðrar skapandi orku“. Um sýninguna segir að á henni bjóðist gestum að „sökkva sér niður í hinn einstaka heim Daniels Lismores – að lifa sem list“ og að hann hafi skapað skúlptúra í fullri stærð og sótt innblástur til barnæsku sinnar og kínverskra leirhermanna. „Hver skúlptúr er skrýddur alklæðnaði sem Lismore hefur sjálfur klæðst á þýð- ingarmiklum augnablikum í lífi sínu,“ segir um verkin. Á sunnudaginn kl. 21 mun Lismore fjalla um listsköpun sína, uppruna og leið inn í listina í Klúbbi Listahátíðar í Hafnarhúsi. „Tjáning óheflaðrar skapandi orku“ Fjölsnærður Lismore er lista- maður, fatahönnuður, stílisti, rit- höfundur og baráttumaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.