Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 ✝ Júlíus Jónas-son fæddist á Húsavík 11. nóvember 1947. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Norðurlands á Húsavík 26. maí 2018. Foreldrar hans voru Rann- veig Júlíusdóttir, húsmóðir á Húsa- vík, fædd 30. apríl 1923, dáin 15. desember 1955 og Jónas Sigurjónsson, sjómað- ur og verkamaður frá Flatey á Skjálfanda, fæddur 27. desem- ber 1918, dáinn 29. janúar 1987. Júlíus átti eina systur, Sigurveigu Jónasdóttur, fædda 2. júní 1949, gifta Sigmundi Óla Eiríkssyni fæddum 16. júní 1943 á Húsavík. Hún lést 2. apríl 2015. Eftir andlát móður sinnar flutti Júlíus, þá átta ára gamall, með föður sínum til föðurafa síns og ömmu, Sig- urjóns Jónassonar og Jakobínu Pálsdóttur. Snemma á unglingsárum var Júlíus hjá Sveini Júlíussyni við hafnarvinnu og á síldarplani á Húsavík. Hann tók landspróf 1964 og svo lá leiðin á sjóinn. Fyrsta sjóplássið fékk Júlíus 17 ára gamall þegar Kalli í Höfða 12. október 1975. Börn Júlíusar og Kristínar eru: 1) Sigríður Árdís Kristínardóttir leikskóla- kennari, fædd 26. desember 1972; 2) Aðalheiður Ámunda- dóttir lögfræðingur, fædd 13. maí 1976. Sambýlismaður Aðal- heiðar er Þorvaldur Sverris- son, fæddur 26. nóvember 1966. Aðalheiður á tvo syni: a) Elmar Freyr, fæddur 14. desember 1995. Unnusta hans er Antonía Sigurðardóttir, fædd 2. maí 1996. b) Davíð Snjór, fæddur 14. ágúst 2001. Börn Þorvalds eru Steinunn og Oddný, fæddar 30. maí 1996, og Þorsteinn, fæddur 26. des- ember 2006; 3) Kristján Júl- íusson, vörubílstjóri, fæddur 16. febrúar 1982. Eiginkona hans er Selma Hrönn Vil- hjálmsdóttir húsmóðir, fædd 13. september 1987. Synir þeirra eru a) Alexander Máni, fæddur 29. apríl 2006, og b) Matthias Anton, fæddur 15. febrúar 2009; 4) Rannveig Júl- íusdóttir iðjuþjálfi, fædd 19. ágúst 1983. Sambýlismaður hennar er Guðlaugur Orri Gíslason sjómaður, fæddur 12. janúar 1985. Dóttir þeirra er Jóna Kristín, fædd 14. maí 2016. Fyrir á Guðlaugur Bríeti Hrefnu, fædda 29. nóvember 2010. Útför Júlíusar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, föstu- daginn 1. júní, kl. 14. réð hann á Sæborg- ina ÞH 55. Hann var svo nokkur ár með Hauki Sigur- jónssyni frænda sínum á Freyju ÞH 125 áður en hann fór í Vélskólann, fyrst á Akureyri og svo í Reykjavík. Júlíus varði allri starfsævi sinni við sjómennsku og ávallt sem vélstjóri eftir að hann lauk vélskólanum árið 1971. Lengst af frá Húsavík, á Júlíusi Hafstein ÞH 1, Sigþóri ÞH 100 og Björgu Jónsdóttur ÞH 321, þar sem hann var í 18 ár. Á síðari hluta starfsævinnar var hann nokkur ár á Lundey NS 14 sem gerð var út frá Vopnafirði. Hann sótti sjóinn áfram fram yfir eftirlauna- aldurinn og fór sinn síðasta túr á sjó í nóvember 2017, þá ný- orðinn sjötugur. Júlíus giftist 26. júlí 1986 Kristínu Sigurðardóttur kenn- ara fæddri 29. mars 1953. For- eldrar Kristínar voru Sigurður Pálsson, bóndi í Skógahlíð, fæddur 2. ágúst 1905, dáinn 8. mars 1981 og Aðalheiður Þor- grímsdóttir húsfreyja og bóndi, fædd 10. nóvember 1912, dáin „Það eiga allir að vera sósíal- istar, ef ekki alla ævi, þá á ein- hverju æviskeiði í það minnsta. Annað er óeðli.“ Það sagði stjúpi minn sem ég kveð í dag. Hann var óvenju örlátur maður og ég verð mömmu ævinlega þakklát fyrir að hafa lánað honum séní- ver í aðdraganda alþingiskosn- inganna 1978. Ég var þá tveggja ára og Sigga systir á sjötta ári. Það var mikil gæfa fyrir okkur allar að eignast þennan mann fyrir pabba og eiginmann. Hann kenndi mér að hugsa skýrt og öll mín lífssýn er innblásin af hans. Hann gat vel unnt mönn- um þess að vera frjálslyndir, jafnvel hægrisinnaðir, en til að vera raunveruleg manneskja þarf maður einhvern tíma að hafa verið jafnaðarmaður og sósíalisti. Pabbi greiddi glaður sína skatta og kenndi öllum að fagna því að fá að leggja sitt af mörk- um. Hann hafði óbeit á kvóta- kerfinu og gerðist æ meiri um- hverfissinni með aldrinum. Hann var líka prinsippmaður. Þegar Davíð Oddsson tók við ritstjórn Morgunblaðsins hringdi hann upp á Mogga til að segja upp áskrift sem hann hafði haft um áratugaskeið. Nokkrum árum síðar sat ég í morgunkaffi með pabba og þótti fara hálfilla um hann, blaðalaus- an við tölvuna hennar mömmu. „Saknarðu Moggans, pabbi?“ spurði ég. „Alltaf,“ svaraði hann. Hann gaf sig þó ekki. Þegar ekið var fyrir nokkru með yngstu sonarsyni hans fram hjá Hádegismóum varð öðrum þeirra að orði: „Þarna verður lygin til, það segir afi.“ Pabbi var afar vandvirkur í öllu. Hann nálgaðist grjóna- graut og uppáhelling af vísinda- legri nákvæmni og mér er sagt að í Björginni hafi vélin alltaf verið hrein og strokin. Á sjónum saumaði hann skurði og gerði að hjartasárum skipsfélaga sinna, því um borð var Júlíus allt í senn: vélstjóri, læknir, sálfræð- ingur og vinur. „Menning er að gera hlutina vel,“ sagði Þor- steinn Gylfason heimspekingur. Pabbi var hrekkjóttur og þeim mun hrekkjóttari sem sá sem fyrir varð var honum kær- ari. Hann var í ævilöngu banni fyrir að svindla í hundi og fleiri spilum sem gripið var í á Höfða- vegi 18. Á jólum var möndlu- grauturinn óvissuferð þar sem svindlmöndlum var gjarnan laumað í lófa sessunauta pabba undir borðinu. Pabbi var ekki bara hand- verksmaður, heldur afbragðs- teiknari og góður penni. En hann bar ekki næga virðingu fyrir þessum gáfum til að teikna og skrifa á hreinan pappír með úrvals verkfærum heldur teikn- aði hann með kúlupenna aftan á dagatöl, servíettur og spássíur. Hann sagði líka dásamlega vel frá. Hann færði í stílinn en laug aldrei, málaði sterkum litum til að ljá efninu iðandi líf. Hann kenndi mér að skilja og unna góðum bókum og hvatti mig til að lesa heimsbókmenntir. Stundum, þegar hann sat í stólnum sínum og las, hóf hann upplestur upp úr þurru, og sagði svo: „Er þetta ekki unaðslegt?“ Pabbi kenndi mér að þekkja nöfnin á bæjum og fjöllum sem við ókum hjá. Hann kenndi mér hvað fuglarnir heita og fór oft með mér upp að Gónhól til að hlusta á þögnina breiða sig yfir lágnættið. Nú er búið að skemma Gónhól og ég man ekki lengur hvað fuglarnir heita. Svona fer maður illa með gjafir sínar, pabbi minn. Aðalheiður Ámundadóttir. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. (Hugrún) Rannveig. Fyrstu minningar mínar um afa Júlla eru úr fjöruferðum. Við fórum í Eyvíkurfjöru og afi sagði mér frá fuglunum og eyj- unum á Skjálfanda. Svo gerðum við stíflur. Hann sagði mér að það væru krókódílar í Eyvíkurá og þegar ég datt í ána í einni fjöruferðinni mátti engu muna að einn þeirra biti af mér fótinn. Í minningunni var áin það djúp að ég náði ekki niður og straum- urinn í ánni hreif mig með sér en afi bjargaði mér á síðustu stundu og ég fékk að sitja í framsætinu á leiðinni heim á nærbuxunum einum fata. Ég hágrét alla leiðina heim. Afi át býflugur í morgunmat og engar smáflugur heldur fannst honum risadrottningarn- ar bestar. Hann safnaði þeim í krukku og gleypti svo eina í einu. Eftir að hafa gleypt þær hristist hann og það mátti heyra suðið í honum. Svo kipptist hann reglulega til, jafnvel í nokkra daga á eftir. Við afi stússuðum líka mikið í bátunum. Ég hjálpaði honum að líta eftir vélinni í Björginni og þá stálum við stundum ís úr eld- húsinu. Svo sinntum við viðhaldi á Svafari, litla bátnum hans afa. Oft vantaði varahluti og ég man að þá grömsuðum við stundum á ruslahaugunum fyrir utan Húsavík þar sem bílhræjum var safnað. Okkur afa leiddust kon- urnar á heimilinu þegar Euro- vision var í sjónvarpinu. Þá fór- um við frekar á ruslahaugana og athuguðum með pumpur fyrir Svavar í gömlum bílhræjum. Þar gátum við líka fundið vara- hluti í hjólið mitt. Í þessu stússi var algjört grundvallaratriði að vera almennilega skítugur. Þeg- ar við komum heim áttum við að þvo okkur um hendur með kalla- sápunni hans afa. Það vildi ég alls ekki. Það er karlmannlegt að vera skítugur á höndunum og amma lét það eftir mér að setj- ast skítugur undir nöglunum að kvöldverðarborðinu. Afi kenndi mér að keyra og ég keyrði fyrst á þjóðvegi tólf ára gamall. Það var vestur á Barðaströnd. Við héldum svo uppteknum hætti og afi fór oft með mér og lét mig keyra, fyrst á afviknum vegarslóðum í kring- um Húsavík og á þjóðveginum báðum megin við bæinn. Fimm- tán ára gamall keyrði ég fyrst innanbæjar með afa. Við fórum út í búð og mættum löggunni á Garðarsbrautinni. Afi kippti sér ekkert upp við það en leit undan þegar þeir keyrðu framhjá. Þeg- ar ég fékk loksins æfingaakst- ursleyfi var ég orðinn fljúgandi fær á bíl. Svo þurfti ég að læra fyrir bóklega hluta bílprófsins. Það var hægt að taka slík próf á netinu til að æfa sig. Ég lagði þessi próf fyrir afa og hann kol- féll á þeim öllum og amma reyndar líka. Við afi áttum eftir að koma því í verk að fara á Svavari yfir að Kinnarfjöllum og fara í fjöru- ferð þeim megin. Þangað hafði hann farið með pabba sínum þegar hann var yngri og þeir fundu þar svo fallega steina. Ég safnaði lengi steinum og afi hugsaði alltaf til mín, leit eftir fallegum steinum og færði mér þá sem hann fann. Ég lofa því, afi minn, að fara bráðum þangað yfir og færa þér fallegasta steininn sem ég finn. Elmar Freyr Aðalheiðarson. Afi minn, hér færðu til baka kvæðið hans Steingríms í Nesi sem þú valdir að lesa fyrir mig þegar ég var tekinn í fullorðinna manna tölu. Ég mun sakna þín alltaf. Hugur flýgur heim til vina sinna, hjartað verst í umsetinni borg. Og hugur spyr, hvar huggun sé að finna hjörtum er þjást af vinamissi og sorg. Þekkir nokkur anda og efnis skil? Allt er af hugsun mótað, sem er til, og það er lífsins aðgangsorð: eg vil, er opnar hurðir leyndra salarkynna. Hver byggði hið mikla alheimsorkuver og efnið kerfisbatt í himingeimi? Hver samdi lögmál leynd og opinber í lífsins þágu vorum eigin heimi? Hver réði gerð á rós og kristalsmynd? Svo rökvís er ei tilviljunin blind. – Er sem töfravatn úr leyndri lind í lífsins bikar streymi. Hjartað kuldans heljartökum verst, hugur reikull leitar eftir svari: Í heljarauðn, hvar ekkert hjarta berst, hvort eyðist hann sem ljós frá brunnu skari. Andsvar berst frá alheims stóru sál – orkustraumur – geimsins tungu- mál: Hvert sjálf er vill fær sigrað dauðans ál, ef siglt er þar með réttu hugarfari. Davíð Snjór. Júlíus Jónasson ✝ Árni ReynirHálfdanarson fæddist í Reykjavík 11. janúar 1931. Hann lést á Land- spítala Fossvogi 13. maí 2018. Foreldrar hans voru séra Hálfdan Helgason og Lára Skúladóttir Norð- dahl. Systkini Árna Reynis eru a) Jón Helgi Hálfdanarson, f. 21. desember 1933, d. 1. maí 2017. Eftirlifandi kona hans er Jóna Einarsdóttir. b) Marta María Hálfdanardóttir, f. 3. apríl 1935. Eiginmaður hennar er Poul E. Pedersen. Árni Reynir kvæntist Ingi- björgu Ólafsdóttur 6. mars 1954. Hún var fædd 20. janúar 1935, d. 6. júlí 1991. Fyrsta barn Árna Reynis er Margrét Reynisdóttir. þeirra eru Árný Rut, Dagný Brá og Friðrik Anton. 6) Hrafn- hildur, maki Hannibal H. Guð- mundsson. Börn þeirra eru Alex- ander Hrafn og Guðmundur Jón. Árni Reynir gekk í skólann á Brúarlandi í Mosfellssveit, lauk gagnfræðaprófi í Mennta- skólanum í Reykjavík 1948, vél- virkjanámi í Vélsmiðjunni Hamri hf. 1955, vélstjóraprófi í Vélskól- anum í Reykjavík 1956 og raf- magnsdeild 1957, sveinsprófi lauk hann í vélvirkjun 1958. Hann var um tíma 2. vélstjóri hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og 1. vélstjóri hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur. Hann vann við skipasmíði í Bátalóni í Hafnar- firði á árunum 1969-1974 og hjá Slökkviliði Keflavíkurflugvallar frá 1974 til 1991 er hann lenti í bílslysi og varð að hætta störf- um. Hann hefur setið í stjórn Bridgefélags Hafnarfjarðar og knattspyrnudeildar íþrótta- félagsins Hauka. Útför Árna Reynis fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, 1. júní 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. Móðir hennar er Sigríður D. Árna- dóttir. Börn Mar- grétar eru Sigríður Lára og Harpa. Börn Árna Reynis og Ingibjargar eru: 1) Katrín, maki Stefán Rafnar Jó- hannsson. Börn þeirra eru Ingi- björg Katrín, Jó- hanna Ágústa og Stefán Hjálmtýr. 2) Lára Árna- dóttir. Börn hennar eru Árni Reynir og Guðrún Lára. 3) Ólaf- ur Helgi, maki Stefanía Knúts- dóttir. Börn þeirra eru Brynjar, Ingibjörg og Jón Bjarni. 4) Þór- hildur Annie, maki Gustavo Do- rati og börn þeirra eru Anna María og Alexander. Börn Gus af fyrra sambandi eru Savannah og Gustavo. 5) Jón Hálfdan, maki Guðný Þóra Friðriksdóttir. Börn Elsku pabbi er látinn. Eitt- hvað svo endanlegt en hugg- unin er að hann er kominn í faðm mömmu sem lést langt fyrir aldur fram 56 ára gömul sumarið 1991. Pabbi var mín fyrirmynd í svo mörgu. Hann kenndi okkur systkinunum góð gildi í lífinu sem ég hef reynt að tileinka mér, kærleiksríkur, raunsær og réttsýnn svo eftir var tekið. Hann ætti að fá orðu fyrir æðruleysi eftir að hann lenti í bílslysi fjórum mánuðum eftir að mamma lést og var í dái heilar þrjár vikur. Ég hef alltaf verið þess fullviss að það sem bjargaði honum var hvað hann var vel gefinn og ósérhlífinn. Árið eftir slysið var hann á Grensási en hafði ekki getu til að sjá um sig og Hrafnhildi systur sem þá var aðeins 16 ára gömul. Missir hennar var svo mikill þar sem að hún bjó í foreldrahúsum og pabbi var henni allt, hjálpaði hann henni við lærdóminn og var alltaf til staðar. Hann var 62 ára gamall þeg- ar hann fór á Hrafnistu í Hafn- arfirði og höfðu vistmennirnir þar orð á því hvað þessi ungi maður væri að gera þarna. En þar leið honum alla tíð vel, tók þátt í kórastarfi, hannyrðum og málaði myndir. Æðruleysið er það sem hefur fylgt honum alla tíð og var hann sáttur við sitt hlutskipti eins langt og það náði. Hann ætlaði að ná sér að fullu. Hann fór allar helgar í Suðurbæjarlaugina gangandi og synti, tók Mullersæfingar í útiklefanum, fór í pottana og gekk til baka á Hrafnistu. Aðra daga fór hann í Sund- höll Hafnarfjarðar og var hon- um vel tekið alls staðar þar sem hann kom. Fyrir u.þ.b. tíu árum hætti hann allt í einu að fara í sund og þegar ég spurði hann hverju sætti þá sagði hann að hann væri búinn að sjá það að hann næði sér ekki betur og ætlaði bara fara njóta þess að horfa á sjónvarpið! Aldurinn færðist yfir og áfram var það æðruleysið sem fylgdi honum í það æviskeið. Síðustu árin fórum við oft í ísbíltúr og keyrðum um Hafn- arfjörð og heimsóttum stundum ættingja og vini. Í einni slíkri ferð spurði ég hann hvort við ættum að heim- sækja tiltekinn vin þá sagði hann: „Lára mín! Mér er alveg sama hvert við förum, ég er bara ánægður að fá að vera með þér.“ Þegar ég hef farið í gegnum erfið tímabil hefur mér þótt gott að koma til hans og segja honum undan og ofan af hlut- unum. Hann kom alltaf með réttu rökin og föðurlega tilsögn með kærleik og virðingu. Tími er til, að tilsá og plæja tími er til, að gráta og hlæja Tími er til að tala og þegja tími er til, að fæðast og deyja. Vort líf er eins og lukkuspil lán og sorg eru á völtum fæti. Það hverfur frá og færist til hjá fæstum á það stöðugt sæti. (Lára Skúladóttir) Guð verndi þig og blessi, elsku pabbi minn! Þín dóttir, Lára. Elsku afi minn. Mér líður vel að vita af þér hjá ömmu og ég vona að þið tvö eigið eftir að vaka yfir pabba, systkinum hans og fjölskyldum þeirra. Ég fæddist á afmælisdegi þínum hinn 11. janúar 1989 og var einnig skírð í höfuðið á þér. Það sýnir mér hversu mikil- vægur þú hefur verið pabba og mömmu og mér fannst við allt- af hafa sérstaka tengingu vegna þessa. Það var sárt að þekkja þig aldrei eins og þú varst fyrir slysið og ömmu sömuleiðis. Ég hef stundum hugsað til þess hversu gott það hefði ver- ið að strjúka til ykkar þegar pabbi og mamma voru leiðin- leg. Afi minn, góða ferð til ömmu. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Prest- hólum) Árný Rut Jónsdóttir. Elskulegur bróðir minn, Árni Reynir, er látinn, horfinn okkur öllum, sem nú stöndum sam- einuð – syrgjum, söknum og tökumst á við tómarúmið. Eldri bróðir minn agaði litlu systur, sem lagðir við hlustir. Óspar á réttsýnina. Örlátur á þakklæti til þess góða í lífinu. Skoðanafastur. Mótlæti mætt með æðruleysi. Söngelskur, listfengur. Gleðinnar maður á gleði- stundum. Mikill gæfumaður. Lítið ljóð ort af móður okkar Láru Skúladóttur til elsta barns síns Árna Reynis: Blessaður byrgðu þig niður, brjóst mitt er svæfillinn þinn, ég hugfangin horfi á fríða hjartkæra barnungann minn. Þú ert svo lítill og ljúfur, ljósgult er höfuðskrúð þitt, svefn dregst á dökkbláu augun, dýrasta blómkornið mitt. Loks er ég legg þig svo niður, og lít hve þinn svipur er hýr það er(u) ekki skuggar né skúrir, sem skínandi sakleysið býr. (1931, LS) Hvíl í friði, elsku bróðir. Marta María Hálfdanardóttir. Árni Reynir Hálfdanarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.