Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
✝ Júlíus Jónas-son fæddist á
Húsavík 11.
nóvember 1947.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Norðurlands á
Húsavík 26. maí
2018. Foreldrar
hans voru Rann-
veig Júlíusdóttir,
húsmóðir á Húsa-
vík, fædd 30. apríl
1923, dáin 15. desember 1955
og Jónas Sigurjónsson, sjómað-
ur og verkamaður frá Flatey á
Skjálfanda, fæddur 27. desem-
ber 1918, dáinn 29. janúar
1987. Júlíus átti eina systur,
Sigurveigu Jónasdóttur, fædda
2. júní 1949, gifta Sigmundi Óla
Eiríkssyni fæddum 16. júní
1943 á Húsavík. Hún lést 2.
apríl 2015. Eftir andlát móður
sinnar flutti Júlíus, þá átta ára
gamall, með föður sínum til
föðurafa síns og ömmu, Sig-
urjóns Jónassonar og Jakobínu
Pálsdóttur.
Snemma á unglingsárum var
Júlíus hjá Sveini Júlíussyni við
hafnarvinnu og á síldarplani á
Húsavík. Hann tók landspróf
1964 og svo lá leiðin á sjóinn.
Fyrsta sjóplássið fékk Júlíus 17
ára gamall þegar Kalli í Höfða
12. október 1975. Börn Júlíusar
og Kristínar eru: 1) Sigríður
Árdís Kristínardóttir leikskóla-
kennari, fædd 26. desember
1972; 2) Aðalheiður Ámunda-
dóttir lögfræðingur, fædd 13.
maí 1976. Sambýlismaður Aðal-
heiðar er Þorvaldur Sverris-
son, fæddur 26. nóvember
1966. Aðalheiður á tvo syni: a)
Elmar Freyr, fæddur 14.
desember 1995. Unnusta hans
er Antonía Sigurðardóttir,
fædd 2. maí 1996. b) Davíð
Snjór, fæddur 14. ágúst 2001.
Börn Þorvalds eru Steinunn og
Oddný, fæddar 30. maí 1996,
og Þorsteinn, fæddur 26. des-
ember 2006; 3) Kristján Júl-
íusson, vörubílstjóri, fæddur
16. febrúar 1982. Eiginkona
hans er Selma Hrönn Vil-
hjálmsdóttir húsmóðir, fædd
13. september 1987. Synir
þeirra eru a) Alexander Máni,
fæddur 29. apríl 2006, og b)
Matthias Anton, fæddur 15.
febrúar 2009; 4) Rannveig Júl-
íusdóttir iðjuþjálfi, fædd 19.
ágúst 1983. Sambýlismaður
hennar er Guðlaugur Orri
Gíslason sjómaður, fæddur 12.
janúar 1985. Dóttir þeirra er
Jóna Kristín, fædd 14. maí
2016. Fyrir á Guðlaugur Bríeti
Hrefnu, fædda 29. nóvember
2010.
Útför Júlíusar fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag, föstu-
daginn 1. júní, kl. 14.
réð hann á Sæborg-
ina ÞH 55. Hann
var svo nokkur ár
með Hauki Sigur-
jónssyni frænda
sínum á Freyju ÞH
125 áður en hann
fór í Vélskólann,
fyrst á Akureyri og
svo í Reykjavík.
Júlíus varði allri
starfsævi sinni við
sjómennsku og
ávallt sem vélstjóri eftir að
hann lauk vélskólanum árið
1971. Lengst af frá Húsavík, á
Júlíusi Hafstein ÞH 1, Sigþóri
ÞH 100 og Björgu Jónsdóttur
ÞH 321, þar sem hann var í 18
ár. Á síðari hluta starfsævinnar
var hann nokkur ár á Lundey
NS 14 sem gerð var út frá
Vopnafirði. Hann sótti sjóinn
áfram fram yfir eftirlauna-
aldurinn og fór sinn síðasta túr
á sjó í nóvember 2017, þá ný-
orðinn sjötugur.
Júlíus giftist 26. júlí 1986
Kristínu Sigurðardóttur kenn-
ara fæddri 29. mars 1953. For-
eldrar Kristínar voru Sigurður
Pálsson, bóndi í Skógahlíð,
fæddur 2. ágúst 1905, dáinn 8.
mars 1981 og Aðalheiður Þor-
grímsdóttir húsfreyja og bóndi,
fædd 10. nóvember 1912, dáin
„Það eiga allir að vera sósíal-
istar, ef ekki alla ævi, þá á ein-
hverju æviskeiði í það minnsta.
Annað er óeðli.“ Það sagði stjúpi
minn sem ég kveð í dag. Hann
var óvenju örlátur maður og ég
verð mömmu ævinlega þakklát
fyrir að hafa lánað honum séní-
ver í aðdraganda alþingiskosn-
inganna 1978. Ég var þá tveggja
ára og Sigga systir á sjötta ári.
Það var mikil gæfa fyrir okkur
allar að eignast þennan mann
fyrir pabba og eiginmann. Hann
kenndi mér að hugsa skýrt og
öll mín lífssýn er innblásin af
hans. Hann gat vel unnt mönn-
um þess að vera frjálslyndir,
jafnvel hægrisinnaðir, en til að
vera raunveruleg manneskja
þarf maður einhvern tíma að
hafa verið jafnaðarmaður og
sósíalisti.
Pabbi greiddi glaður sína
skatta og kenndi öllum að fagna
því að fá að leggja sitt af mörk-
um. Hann hafði óbeit á kvóta-
kerfinu og gerðist æ meiri um-
hverfissinni með aldrinum.
Hann var líka prinsippmaður.
Þegar Davíð Oddsson tók við
ritstjórn Morgunblaðsins
hringdi hann upp á Mogga til að
segja upp áskrift sem hann
hafði haft um áratugaskeið.
Nokkrum árum síðar sat ég í
morgunkaffi með pabba og þótti
fara hálfilla um hann, blaðalaus-
an við tölvuna hennar mömmu.
„Saknarðu Moggans, pabbi?“
spurði ég. „Alltaf,“ svaraði
hann.
Hann gaf sig þó ekki. Þegar
ekið var fyrir nokkru með
yngstu sonarsyni hans fram hjá
Hádegismóum varð öðrum
þeirra að orði: „Þarna verður
lygin til, það segir afi.“
Pabbi var afar vandvirkur í
öllu. Hann nálgaðist grjóna-
graut og uppáhelling af vísinda-
legri nákvæmni og mér er sagt
að í Björginni hafi vélin alltaf
verið hrein og strokin. Á sjónum
saumaði hann skurði og gerði að
hjartasárum skipsfélaga sinna,
því um borð var Júlíus allt í
senn: vélstjóri, læknir, sálfræð-
ingur og vinur. „Menning er að
gera hlutina vel,“ sagði Þor-
steinn Gylfason heimspekingur.
Pabbi var hrekkjóttur og
þeim mun hrekkjóttari sem sá
sem fyrir varð var honum kær-
ari. Hann var í ævilöngu banni
fyrir að svindla í hundi og fleiri
spilum sem gripið var í á Höfða-
vegi 18. Á jólum var möndlu-
grauturinn óvissuferð þar sem
svindlmöndlum var gjarnan
laumað í lófa sessunauta pabba
undir borðinu.
Pabbi var ekki bara hand-
verksmaður, heldur afbragðs-
teiknari og góður penni. En
hann bar ekki næga virðingu
fyrir þessum gáfum til að teikna
og skrifa á hreinan pappír með
úrvals verkfærum heldur teikn-
aði hann með kúlupenna aftan á
dagatöl, servíettur og spássíur.
Hann sagði líka dásamlega vel
frá. Hann færði í stílinn en laug
aldrei, málaði sterkum litum til
að ljá efninu iðandi líf. Hann
kenndi mér að skilja og unna
góðum bókum og hvatti mig til
að lesa heimsbókmenntir.
Stundum, þegar hann sat í
stólnum sínum og las, hóf hann
upplestur upp úr þurru, og sagði
svo: „Er þetta ekki unaðslegt?“
Pabbi kenndi mér að þekkja
nöfnin á bæjum og fjöllum sem
við ókum hjá. Hann kenndi mér
hvað fuglarnir heita og fór oft
með mér upp að Gónhól til að
hlusta á þögnina breiða sig yfir
lágnættið. Nú er búið að
skemma Gónhól og ég man ekki
lengur hvað fuglarnir heita.
Svona fer maður illa með gjafir
sínar, pabbi minn.
Aðalheiður Ámundadóttir.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri
lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
(Hugrún)
Rannveig.
Fyrstu minningar mínar um
afa Júlla eru úr fjöruferðum.
Við fórum í Eyvíkurfjöru og afi
sagði mér frá fuglunum og eyj-
unum á Skjálfanda. Svo gerðum
við stíflur. Hann sagði mér að
það væru krókódílar í Eyvíkurá
og þegar ég datt í ána í einni
fjöruferðinni mátti engu muna
að einn þeirra biti af mér fótinn.
Í minningunni var áin það djúp
að ég náði ekki niður og straum-
urinn í ánni hreif mig með sér
en afi bjargaði mér á síðustu
stundu og ég fékk að sitja í
framsætinu á leiðinni heim á
nærbuxunum einum fata. Ég
hágrét alla leiðina heim.
Afi át býflugur í morgunmat
og engar smáflugur heldur
fannst honum risadrottningarn-
ar bestar. Hann safnaði þeim í
krukku og gleypti svo eina í
einu. Eftir að hafa gleypt þær
hristist hann og það mátti heyra
suðið í honum. Svo kipptist hann
reglulega til, jafnvel í nokkra
daga á eftir.
Við afi stússuðum líka mikið í
bátunum. Ég hjálpaði honum að
líta eftir vélinni í Björginni og
þá stálum við stundum ís úr eld-
húsinu. Svo sinntum við viðhaldi
á Svafari, litla bátnum hans afa.
Oft vantaði varahluti og ég man
að þá grömsuðum við stundum á
ruslahaugunum fyrir utan
Húsavík þar sem bílhræjum var
safnað. Okkur afa leiddust kon-
urnar á heimilinu þegar Euro-
vision var í sjónvarpinu. Þá fór-
um við frekar á ruslahaugana og
athuguðum með pumpur fyrir
Svavar í gömlum bílhræjum.
Þar gátum við líka fundið vara-
hluti í hjólið mitt. Í þessu stússi
var algjört grundvallaratriði að
vera almennilega skítugur. Þeg-
ar við komum heim áttum við að
þvo okkur um hendur með kalla-
sápunni hans afa. Það vildi ég
alls ekki. Það er karlmannlegt
að vera skítugur á höndunum og
amma lét það eftir mér að setj-
ast skítugur undir nöglunum að
kvöldverðarborðinu.
Afi kenndi mér að keyra og
ég keyrði fyrst á þjóðvegi tólf
ára gamall. Það var vestur á
Barðaströnd. Við héldum svo
uppteknum hætti og afi fór oft
með mér og lét mig keyra, fyrst
á afviknum vegarslóðum í kring-
um Húsavík og á þjóðveginum
báðum megin við bæinn. Fimm-
tán ára gamall keyrði ég fyrst
innanbæjar með afa. Við fórum
út í búð og mættum löggunni á
Garðarsbrautinni. Afi kippti sér
ekkert upp við það en leit undan
þegar þeir keyrðu framhjá. Þeg-
ar ég fékk loksins æfingaakst-
ursleyfi var ég orðinn fljúgandi
fær á bíl. Svo þurfti ég að læra
fyrir bóklega hluta bílprófsins.
Það var hægt að taka slík próf á
netinu til að æfa sig. Ég lagði
þessi próf fyrir afa og hann kol-
féll á þeim öllum og amma
reyndar líka.
Við afi áttum eftir að koma
því í verk að fara á Svavari yfir
að Kinnarfjöllum og fara í fjöru-
ferð þeim megin. Þangað hafði
hann farið með pabba sínum
þegar hann var yngri og þeir
fundu þar svo fallega steina. Ég
safnaði lengi steinum og afi
hugsaði alltaf til mín, leit eftir
fallegum steinum og færði mér
þá sem hann fann.
Ég lofa því, afi minn, að fara
bráðum þangað yfir og færa þér
fallegasta steininn sem ég finn.
Elmar Freyr Aðalheiðarson.
Afi minn, hér færðu til baka
kvæðið hans Steingríms í Nesi
sem þú valdir að lesa fyrir mig
þegar ég var tekinn í fullorðinna
manna tölu. Ég mun sakna þín
alltaf.
Hugur flýgur heim til vina sinna,
hjartað verst í umsetinni borg.
Og hugur spyr, hvar huggun sé að
finna
hjörtum er þjást af vinamissi og sorg.
Þekkir nokkur anda og efnis skil?
Allt er af hugsun mótað, sem er til,
og það er lífsins aðgangsorð: eg vil,
er opnar hurðir leyndra salarkynna.
Hver byggði hið mikla alheimsorkuver
og efnið kerfisbatt í himingeimi?
Hver samdi lögmál leynd og opinber
í lífsins þágu vorum eigin heimi?
Hver réði gerð á rós og kristalsmynd?
Svo rökvís er ei tilviljunin blind.
– Er sem töfravatn úr leyndri lind
í lífsins bikar streymi.
Hjartað kuldans heljartökum verst,
hugur reikull leitar eftir svari:
Í heljarauðn, hvar ekkert hjarta berst,
hvort eyðist hann sem ljós frá brunnu
skari.
Andsvar berst frá alheims stóru sál
– orkustraumur – geimsins tungu-
mál:
Hvert sjálf er vill fær sigrað dauðans
ál,
ef siglt er þar með réttu hugarfari.
Davíð Snjór.
Júlíus Jónasson
✝ Árni ReynirHálfdanarson
fæddist í Reykjavík
11. janúar 1931.
Hann lést á Land-
spítala Fossvogi 13.
maí 2018.
Foreldrar hans
voru séra Hálfdan
Helgason og Lára
Skúladóttir Norð-
dahl. Systkini Árna
Reynis eru a) Jón
Helgi Hálfdanarson, f. 21.
desember 1933, d. 1. maí 2017.
Eftirlifandi kona hans er Jóna
Einarsdóttir. b) Marta María
Hálfdanardóttir, f. 3. apríl 1935.
Eiginmaður hennar er Poul E.
Pedersen.
Árni Reynir kvæntist Ingi-
björgu Ólafsdóttur 6. mars 1954.
Hún var fædd 20. janúar 1935, d.
6. júlí 1991. Fyrsta barn Árna
Reynis er Margrét Reynisdóttir.
þeirra eru Árný Rut, Dagný Brá
og Friðrik Anton. 6) Hrafn-
hildur, maki Hannibal H. Guð-
mundsson. Börn þeirra eru Alex-
ander Hrafn og Guðmundur Jón.
Árni Reynir gekk í skólann á
Brúarlandi í Mosfellssveit, lauk
gagnfræðaprófi í Mennta-
skólanum í Reykjavík 1948, vél-
virkjanámi í Vélsmiðjunni Hamri
hf. 1955, vélstjóraprófi í Vélskól-
anum í Reykjavík 1956 og raf-
magnsdeild 1957, sveinsprófi
lauk hann í vélvirkjun 1958.
Hann var um tíma 2. vélstjóri hjá
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og
1. vélstjóri hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur. Hann vann við
skipasmíði í Bátalóni í Hafnar-
firði á árunum 1969-1974 og hjá
Slökkviliði Keflavíkurflugvallar
frá 1974 til 1991 er hann lenti í
bílslysi og varð að hætta störf-
um.
Hann hefur setið í stjórn
Bridgefélags Hafnarfjarðar og
knattspyrnudeildar íþrótta-
félagsins Hauka.
Útför Árna Reynis fer fram
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
í dag, 1. júní 2018, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Móðir hennar er
Sigríður D. Árna-
dóttir. Börn Mar-
grétar eru Sigríður
Lára og Harpa.
Börn Árna Reynis
og Ingibjargar eru:
1) Katrín, maki
Stefán Rafnar Jó-
hannsson. Börn
þeirra eru Ingi-
björg Katrín, Jó-
hanna Ágústa og
Stefán Hjálmtýr. 2) Lára Árna-
dóttir. Börn hennar eru Árni
Reynir og Guðrún Lára. 3) Ólaf-
ur Helgi, maki Stefanía Knúts-
dóttir. Börn þeirra eru Brynjar,
Ingibjörg og Jón Bjarni. 4) Þór-
hildur Annie, maki Gustavo Do-
rati og börn þeirra eru Anna
María og Alexander. Börn Gus af
fyrra sambandi eru Savannah og
Gustavo. 5) Jón Hálfdan, maki
Guðný Þóra Friðriksdóttir. Börn
Elsku pabbi er látinn. Eitt-
hvað svo endanlegt en hugg-
unin er að hann er kominn í
faðm mömmu sem lést langt
fyrir aldur fram 56 ára gömul
sumarið 1991.
Pabbi var mín fyrirmynd í
svo mörgu. Hann kenndi okkur
systkinunum góð gildi í lífinu
sem ég hef reynt að tileinka
mér, kærleiksríkur, raunsær og
réttsýnn svo eftir var tekið.
Hann ætti að fá orðu fyrir
æðruleysi eftir að hann lenti í
bílslysi fjórum mánuðum eftir
að mamma lést og var í dái
heilar þrjár vikur. Ég hef alltaf
verið þess fullviss að það sem
bjargaði honum var hvað hann
var vel gefinn og ósérhlífinn.
Árið eftir slysið var hann á
Grensási en hafði ekki getu til
að sjá um sig og Hrafnhildi
systur sem þá var aðeins 16 ára
gömul. Missir hennar var svo
mikill þar sem að hún bjó í
foreldrahúsum og pabbi var
henni allt, hjálpaði hann henni
við lærdóminn og var alltaf til
staðar.
Hann var 62 ára gamall þeg-
ar hann fór á Hrafnistu í Hafn-
arfirði og höfðu vistmennirnir
þar orð á því hvað þessi ungi
maður væri að gera þarna. En
þar leið honum alla tíð vel, tók
þátt í kórastarfi, hannyrðum og
málaði myndir.
Æðruleysið er það sem hefur
fylgt honum alla tíð og var
hann sáttur við sitt hlutskipti
eins langt og það náði.
Hann ætlaði að ná sér að
fullu. Hann fór allar helgar í
Suðurbæjarlaugina gangandi
og synti, tók Mullersæfingar í
útiklefanum, fór í pottana og
gekk til baka á Hrafnistu.
Aðra daga fór hann í Sund-
höll Hafnarfjarðar og var hon-
um vel tekið alls staðar þar
sem hann kom.
Fyrir u.þ.b. tíu árum hætti
hann allt í einu að fara í sund
og þegar ég spurði hann hverju
sætti þá sagði hann að hann
væri búinn að sjá það að hann
næði sér ekki betur og ætlaði
bara fara njóta þess að horfa á
sjónvarpið!
Aldurinn færðist yfir og
áfram var það æðruleysið sem
fylgdi honum í það æviskeið.
Síðustu árin fórum við oft í
ísbíltúr og keyrðum um Hafn-
arfjörð og heimsóttum stundum
ættingja og vini.
Í einni slíkri ferð spurði ég
hann hvort við ættum að heim-
sækja tiltekinn vin þá sagði
hann: „Lára mín! Mér er alveg
sama hvert við förum, ég er
bara ánægður að fá að vera
með þér.“
Þegar ég hef farið í gegnum
erfið tímabil hefur mér þótt
gott að koma til hans og segja
honum undan og ofan af hlut-
unum. Hann kom alltaf með
réttu rökin og föðurlega tilsögn
með kærleik og virðingu.
Tími er til, að tilsá og plæja
tími er til, að gráta og hlæja
Tími er til að tala og þegja
tími er til, að fæðast og deyja.
Vort líf er eins og lukkuspil
lán og sorg eru á völtum fæti.
Það hverfur frá og færist til
hjá fæstum á það stöðugt sæti.
(Lára Skúladóttir)
Guð verndi þig og blessi,
elsku pabbi minn!
Þín dóttir,
Lára.
Elsku afi minn.
Mér líður vel að vita af þér
hjá ömmu og ég vona að þið tvö
eigið eftir að vaka yfir pabba,
systkinum hans og fjölskyldum
þeirra.
Ég fæddist á afmælisdegi
þínum hinn 11. janúar 1989 og
var einnig skírð í höfuðið á þér.
Það sýnir mér hversu mikil-
vægur þú hefur verið pabba og
mömmu og mér fannst við allt-
af hafa sérstaka tengingu
vegna þessa.
Það var sárt að þekkja þig
aldrei eins og þú varst fyrir
slysið og ömmu sömuleiðis.
Ég hef stundum hugsað til
þess hversu gott það hefði ver-
ið að strjúka til ykkar þegar
pabbi og mamma voru leiðin-
leg.
Afi minn, góða ferð til ömmu.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Prest-
hólum)
Árný Rut Jónsdóttir.
Elskulegur bróðir minn, Árni
Reynir, er látinn, horfinn okkur
öllum, sem nú stöndum sam-
einuð – syrgjum, söknum og
tökumst á við tómarúmið.
Eldri bróðir minn agaði litlu
systur, sem lagðir við hlustir.
Óspar á réttsýnina. Örlátur á
þakklæti til þess góða í lífinu.
Skoðanafastur. Mótlæti mætt
með æðruleysi. Söngelskur,
listfengur.
Gleðinnar maður á gleði-
stundum. Mikill gæfumaður.
Lítið ljóð ort af móður okkar
Láru Skúladóttur til elsta
barns síns Árna Reynis:
Blessaður byrgðu þig niður,
brjóst mitt er svæfillinn þinn,
ég hugfangin horfi á fríða
hjartkæra barnungann minn.
Þú ert svo lítill og ljúfur,
ljósgult er höfuðskrúð þitt,
svefn dregst á dökkbláu augun,
dýrasta blómkornið mitt.
Loks er ég legg þig svo niður,
og lít hve þinn svipur er hýr
það er(u) ekki skuggar né skúrir,
sem skínandi sakleysið býr.
(1931, LS)
Hvíl í friði, elsku bróðir.
Marta María
Hálfdanardóttir.
Árni Reynir
Hálfdanarson