Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 1
F I M M T U D A G U R 7. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 132. tölublað 106. árgangur
SAMBAND
MANNS OG
NÁTTÚRU
STARFAÐI
MEÐ GATES
OG JOBS
ER OF SEINT
AÐ SKIPTA
UM SKOÐUN?
VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMANDLEIKI 77HVAÐ ER MENNSKT? 72
„Hann var með hjólahjálminn, andlitið þakið blóði
og hendurnar blóðugar. Þegar ég tók hjálminn af
honum blasti við mér stórt gapandi sár frá miðju
enni og niður að nefrót þannig að sást í höfuðkúp-
una. Það vantaði stórt stykki í andlitið á barninu
og þaðan fossaði mesta blóðið. Ég sá ekki í fyrstu
hvort það væri í lagi með augun á honum og ég
spurði hann aftur og aftur; hvað gerðist, hvað
gerðist? En hann gat engu svarað. Ég spurði hann;
Beit hundurinn þig? og þá kinkaði hann kolli, fékk
þá málið og sagði aftur og aftur: „Ég er of lítill til
að deyja. Ég er of lítill til að deyja. Sólon litli er of
lítill til að deyja. Þetta endurtók hann í sífellu, líka
eftir að hann var kominn í sjúkrabílinn.“
Svona hefst frásögn Hafrúnar Önnu Sigur-
björnsdóttur, móður Sólons Brimis, sex ára, sem
varð fyrir árás hunds í næsta húsi um síðustu
páska.
Hún og Óskar Veturliði Sigurðsson, fósturfaðir
Sólons, segjast hvorki reið né bitur út í neinn. Þau
vilji segja sögu Sólons í forvarnarskyni, í von um
að þannig megi fyrirbyggja svipuð atvik. »32-34
Morgunblaðið/Hari
„Ég er of lítill til að deyja“
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Meðal þess sem rannsókn Héraðssaksókn-
ara beinist að og tengist handtökum og
skýrslutökum yfir fyrrverandi eigendum
olíufélagsins Skeljungs, er með hvaða hætti
forsvarsmenn fyrirtækisins greiddu fyrir
49% hlut í fyrirtækinu árið 2010. Þetta
herma heimildir ViðskiptaMoggans. Þá
keyptu hjónin Svanhildur Nanna Vigfús-
dóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, fyrr-
nefndan hlut af Íslandsbanka en tæpum
tveimur árum fyrr höfðu þau keypt meiri-
hlutann í félaginu af Glitni, forvera bank-
ans. Gögn í málinu benda til þess að fjár-
munir dótturfélags Skeljungs, S-fasteigna
ehf., hafi verið notaðir til að greiða drýgsta
hluta kaupverðsins. Slík ráðstöfun er
óheimil, lögum samkvæmt.
Rannsaka einnig eignaflutning
Þá mun rannsókn saksóknara einnig
beinast að því hvort veð Íslandsbanka
gagnvart skuldum eignarhaldsfélagsins
Skel Investment hafi verið rýrð með óeðli-
legum hætti í aðdraganda þess að það fór í
þrot. Upphaflega hélt félagið á 51% hlut
Svanhildar Nönnu og Guðmundar í Skelj-
ungi. Á fáum árum minnkaði sú eignar-
hlutdeild í tæpan þriðjung hlutafjárins og
fluttist hlutafé við það inn í önnur félög í
þeirra eigu. Grunur leikur á því að of lágt
endurgjald hafi komið fyrir þau verðmæti.
Þá mun einnig vera til rannsóknar með
hvaða hætti fyrrverandi starfsmenn Ís-
landsbanka sem komið höfðu að sölu Skelj-
ungs, þau Einar Örn Ólafsson, sem árið
2009 tók við starfi forstjóra Skeljungs,
Halla Sigrún Hjartardóttir og Kári Þór
Guðjónsson, eignuðust árið 2011 hvert um
sig 22% hlut í færeyska olíufélaginu P/F
Magn sem Guðmundur og Svanhildur
Nanna höfðu átt að fullu frá árinu 2009.
Þrír sakborninganna sitja í stjórnum fjár-
málafyrirtækja sem skráð eru á markað í
Kauphöll Íslands, VÍS, TM og Kviku. Fé-
lögin gerðu Fjármálaeftirlitinu viðvart um
þá stöðu sem upp var komin þegar héraðs-
saksóknari réðst í aðgerðir gagnvart
stjórnarmönnunum síðastliðinn fimmtudag.
Fjármálaeftirlitið neitar að gefa upp hvort
hæfi þeirra sé til athugunar á vettvangi
stofnunarinnar.
Rannsaka
flóknar
fléttur
Skoða hvernig greitt
var fyrir Skeljung
MViðskiptaMogginn
Árið 1962 tóku ung hjón með tvö
börn sig upp frá Kópavogi og flutt-
ust til Fort Worth í Texas. Á þeim
tíma hefur þau ekki grunað að sonur
þeirra ætti eftir að leggja stund á
nám í flugvélaverkfræði við hinn
virta Stanfordháskóla og feta í kjöl-
farið upp metorðastigann á vett-
vangi nokkurra stærstu tækni-
fyrirtækja heimsins. Sonurinn heitir
Ingvar Pétursson en hann lét fyrir
skemmstu af starfi framkvæmda-
stjóra tækniþróunar og fjármála hjá
Nintendo America. Hann hefur
starfað náið með Bill Gates, stofn-
anda Microsoft, og Steve Jobs, stofn-
anda Apple. Sá síðarnefndi bauð
Ingvari starf hjá tæknirisanum árið
1999. Boðið þáði hann ekki þar sem
hann vann þá að uppbyggingu Cor-
bis, sérstæðs fyrirtækis í eigu Gates.
»ViðskiptaMogginn
Starfaði með Bill
Gates og Steve Jobs
Tækni Ingvar hefur átt ótrúlegan feril í
bandarísku tækni- og viðskiptalífi.
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Bjarni Valtýsson svæfingalæknir
segir erlendar rannsóknir benda til
að um fimmtungur landsmanna,
eða um 70 þúsund manns, muni
þjást af langvarandi verkjum.
Bjarni og Sigurður Ásgeir Krist-
insson bæklunarlæknir hafa opnað
meðferðarstöðina Corpus Medica í
Kópavogi. Þar bjóða þeir upp á
ýmsar meðferðir við verkjum. Þá
eru þeir með nýjungar í læknis-
meðferð. Má þar nefna segulómun
sem talin er örva myndun brjósks.
Sigurður Ásgeir segir verkja-
meðferð af þessu tagi vera afgangs-
stærð hjá Landspítalanum. Hann
segir þau læknisverk sem Corpus
Medica sinnir aðeins að litlu leyti að
finna í heildarsamningi sérfræð-
inga. »36-37
Morgunblaðið/Eggert
Corpus Medica Sigurður Ásgeir Krist-
insson og Bjarni Valtýsson.
Mikil þörf fyrir
verkjameðferð