Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
8. október í 10 nætur
Frá kr.
239.995
á mann
Fararstjóri:
Þuríður
Jónsdóttir
595 1000 . heimsferdir.is
y
p SIKILEY - VINDEYJAR
Gönguferð
Innifalið: Flug, skattar, 1 taska 23 kg og 10 kg handtaska á mann. Gisting á
3* og 4* hótelum í 10 nætur með morgunverði. Íslensk fararstjórn miðað við
lágmarksþátttöku 16 manns. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða.
Þrír kvöldverðir: 8, 10, 14. október. Bátsferðir: 10,11,12, 13,14 og 17. október.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið/Eggert
Skerðing Minni umhirða virðist
vera eina lausnin fyrir garðana.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Þórsteinn Ragnarsson, formaður
Kirkjugarðasambands Íslands og
forstjóri Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæma,
vandar ráða-
mönnum landsins
ekki kveðjurnar í
opnunarpistli
nýjasta tölublaðs
Bautasteins,
tímarits KGSÍ.
Þar fer Þórsteinn
meðal annars yfir
hvernig framlög
til kirkjugarða
hafa um árabil
verið of lág og bendir á hvernig bar-
átta sambandsins við ráðherra og
stjórnvöld hafi verið háð fyrir dauf-
um eyrum, að því er virðist. Nú er
svo komið að veruleg skerðing á
starfsemi kirkjugarðanna er eina
lausnin í sjónmáli en lokun líkhúss-
ins í Fossvogi og athafnaaðstöðunn-
ar þar hefur verið lögð til.
„Við erum í því að kynna þetta. Við
höfum meðal annars óskað eftir við-
tali við dómsmálaráðherra. Hún hef-
ur ekki svarað því ennþá,“ segir Þór-
steinn í samtali við Morgunblaðið en
fulltrúar KGSÍ áttu fund með fjár-
laganefnd síðastliðinn mánudag.
Rýrnað um a.m.k. 40%
„Við lögðum fyrir þá staðreynda-
blað,“ segir Þórsteinn en á umræddu
blaði er raunum KGSÍ í gegnum tíð-
ina lýst og komið inn á næstu skref
sambandsins.
„Þetta er búið að vera meira og
minna frá 2011. Þá kom fyrsta
skýrslan sem sérfræðingur frá
Capacent gerði fyrir okkur,“ segir
Þórsteinn en síðan þá hefur sam-
bandið átt við ramman reip að draga.
Skýrslur voru einnig unnar fyrir
sambandið árið 2013 og 2016 en í öll-
um þremur kom fram að framlög til
kirkjugarða hafi verið verulega
skert. „Skýrslunum ber öllum saman
um það að framlag ríkisins til kirkju-
garða hefur rýrnað um að minnsta
kosti 40 prósent,“ segir Þórsteinn.
Órækt er eina lausnin
Þórsteinn segir að nú sé svo í pott-
inn búið að eitthvað verði undan að
láta. „Þau úrræði sem kirkjugarðar
hafa almennt á landinu er í raun og
veru að draga saman seglin í um-
hirðunni. Auðvitað halda kirkjugarð-
ar áfram að grafa en þar sem hægt
er að skera niður er í umhirðunni og
þá fara garðarnir bara í órækt og
verða öllum til skammar,“ segir Þór-
steinn og bætir við: „Við í Reykjavík
viljum í lengstu lög halda þjónustu
líkhússins og athafnarýmanna í
Fossvogi áfram en auðvitað lætur
eitthvað undan,“ segir hann.
„Við erum líka að hugsa um ef
ekkert gengur að skipta görðunum
niður í aldurshólf og hætta þá að
hirða um elstu hólfin,“ segir Þór-
steinn og bætir við: „Það yrði saga til
næstu landa. Þetta er í lagi í Skand-
inavíu og öðrum menningarríkjum.“
Aðalfundur KGSÍ verður haldinn
næsta laugardag þar sem farið verð-
ur yfir næstu skref í þessum málum.
„Við vorum að vona að við fengjum
einhver skilaboð inn á þann fund.
Það er ekki ennþá,“ segir Þórsteinn
að síðustu.
Brátt ósnyrtilegt umhverfis leiðin
Kirkjugarðar hafa verið undirfjármagnaðir í tæpan áratug Mögulega þarf að loka líkhúsinu í
Fossvogi og athafnaaðstöðu þar Elstu leiðin munu mæta afgangi þegar hirt verður um garðana
Þórsteinn
Ragnarsson
BHM fær
svör frá
MDE í dag
Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE)
hefur tilkynnt Bandalagi háskóla-
manna (BHM) að það megi vænta
svara vegna máls BHM gegn íslenska
ríkinu í dag. Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir, formaður BHM, segir félagið
ekki vita nákvæmlega hverju það eigi
von á frá dómstólnum. „Það er von á
einhverju frá þeim. Við í rauninni vit-
um ekki hvort þeir eru að fara að
dæma eða koma með skriflega niður-
stöðu. Þetta getur þýtt fleira en eitt,“
segir Þórunn.
Spurð segir hún að það gæti verið
dómur en það gæti einnig verið til-
kynning um frávísun. „Okkur fannst
þetta óvenjuleg tilkynning eins og hún
var orðuð en verðum þá nær í fyrra-
málið [í dag]. Það kom okkur á óvart,
við höfðum ekki heyrt frá þeim í tvö og
hálft ár.“ BHM kærði íslenska ríkið til
MDE fyrir hönd átján aðildarfélaga
sinna í desember 2015 og laut kæran
einkum að því að setning laga sem
bannaði verkfall félaganna og vísaði
kjaradeilu þeirra við ríkið í gerðardóm,
hefði farið í bága við ákvæði 11. gr.
MSE um félagafrelsi. mhj@mbl.is
Hafa ekki heyrt
frá MDE í rúm 2 ár
Adrift, nýjasta stórmynd Baltasars Kormáks,
var forsýnd í Smárabíói í gær við fögnuð áhorf-
enda. Myndin var sú þriðja mest sótta í banda-
rískum kvikmyndahúsum um helgina. Adrift er
talin hafa þénað um 11,5 milljónir bandaríkja-
dala fyrstu sýningarhelgina.
Morgunblaðið/Valli
Leikstjórinn bíður eftir fyrstu gestum á Adrift
Kvikmynd Baltasars Kormáks forsýnd í Smárabíói í gær
Fjöldi farþega Icelandair í maí nam
367 þúsundum og fjölgaði þeim um
10% m.v. maí í fyrra. Sætaframboð
jókst um 15% og sætanýting var
77,7% samanborið við 81,2% í maí í
fyrra. Farþegar Air Iceland Connect
voru um 27 þúsund og fækkaði þeim
um 7% á milli ára, að því er fram kem-
ur í nýjum flutningatölum Icelandair.
Um miðjan maí hætti félagið flugi
til Belfast og Aberdeen og einnig á
milli Keflavíkur og Akureyrar og
skýrir það fækkunina hjá Air Iceland
Connect á milli ára.
Sætanýting nam 62,0%. Fjöldi
seldra svonefndra blokktíma í leigu-
flugi jókst um 40% á milli ára vegna
fleiri langtímaverkefna og fraktflutn-
ingar jukust um 11% á milli ára.
Framboðnar gistinætur hjá hótel-
um félagsins jukust um 6% á milli
ára. Er það sagt skýrast að mestu
leyti af opnun Reykjavík Konsúlat
hótelsins í miðbæ Reykjavíkur í mars
sl.
Fram kemur í upplýsingum Ferða-
málastofu og Isavia að brottfarir er-
lendra farþega um Keflavíkurflugvöll
skv. talningum voru um 165 þúsund
talsins í maímánuði sem er fjölgun um
19.200 farþega miðað við sama mánuð
í fyrra.
Frá áramótum hafa 793.500 erlend-
ir farþegar farið úr landi um Kefla-
víkurflugvöll sem er 5,6% fleira en á
sama tímabili í fyrra.
Fjölgunin í maí nemur 13,2% á milli
ára, sem er meiri hlutfallsleg fjölgun
en aðra mánuði ársins.
Farþegum fjölgar í maí
Leiguflug og frakt eykst Fleiri flugsæti og gistirými
Morgunblaðið/Eggert
Icelandair Farþegar voru 367 þús. í maí og fjölgaði um 10% frá maí 2017.