Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 4

Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Deila Borghildar Indriðadóttur við stjórnendur Facebook virðist ekki ætla að taka enda á næstunni. Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrr í vikunni var öllum Facebook-vinum Borghildar, ásamt myndum og ummælum, eytt af síðunni hennar án hennar aðkomu. Málið hófst þegar Borghildur deildi á Facebook vefhlekk á gjörning og sýningu sína Demoncrazy sem er nú á Austurvelli en á myndunum í sýningunni má sjá berbrjósta konur. Slíkt myndefni er bannað á Facebook. Nýjasta útspil stjórnenda Facebook var að eyða að- gangi Borghildar að skilaboðaforrit- inu Messenger en fyrir hafði, eins og áður segir, ýmislegt verið gert við aðgang Borghildar til að forða myndunum frá frekari dreifingu. Borghildur leitar nú svara um réttarstöðu sína og hefur nú leitað til lögfræðings sér til aðstoðar. Undarleg vinnubrögð „Lögfræðingurinn, sem sérhæfir sig meðal annars í persónuverndar- málum, segir að ég hafi hugsanlega brotið einhverja skilmála og Face- book áskilur sér rétt til að eyða að- ganginum mínum. Hins vegar fannst henni þetta undarlegt því þeir eyða venjulega bara ólöglega efninu,“ segir Borghildur, en Facebook hefur ennþá ekki eytt sjálfum aðgangi Borghildar. Hún segir það ansi flókið mál að senda kvörtun til Facebook en það hefur verið stefna hjá Facebook að svara sem fæstum málum persónu- lega. „Ég hef ennþá ekki fengið nein svör til baka við spurningunum mín- um,“ segir Borghildur og bætir við: „Það er auðvitað ekkert símanúmer til að hringja í heldur.“ Fær hvergi skýr svör Borghildur hefur leitað víðsvegar á internetinu að upplýsingum um hvernig hún geti snúið sér í þessu máli en fær hvergi skýr svör. Hún segist hafa komist inn á hjálparsíðuna Better Business Bureau en þar sem hún mun þurfa að veita aðgang að persónuupplýs- ingum sínum hefur hún ekki farið lengra. „Ég þori því ekki án aðstoðar lögfræðings,“ segir Borghildur. Fleiri deilur við Facebook  Borghildur hefur leitað til lögfræðings sér til aðstoðar Borghildur Indriðadóttir www.aman.is Tangarhöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 533 1020 • aman@aman.is er okkar fag Víngerð Nýttu þér frábæra netverslun Ámunnar www.aman.is Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, segir að þó nokkuð af málum sé eftir til afgreiðslu á Alþingi og ekki sjái fyrir þinglok í bili. „Það eru álitamál um það hvaða vilji sé til þess að gera málamiðlanir og ekki endi- lega útaf miklum ágreiningi heldur aðallega málum sem eru enn inni í nefnd. Svo er persónuverndarlög- gjöfin í vinnslu í nefnd og svo bíður ríkisfjármálaáætlun, þannig að það er talsverð umræða eftir og það verður nóg að gera næstu daga,“ segir Steingrímur í samtali við Morgunblaðið en skv. starfsáætlun á að fresta þingi í dag en þingið muni starfa einhverja daga í viðbót. Enn ósamið um veiðigjöld Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra lagði í gær fram tillögu við stjórnarandstöðuna um að fresta af- greiðslu frumvarps um lækkun veiði- gjalda og halda veiðigjöldum óbreyttum til áramóta. Að sögn Steingríms hefur stjórnarandstaðan ekki samþykkt slíkt tilboð en tillagan var lögð fram í von um að hægt væri að ná sátt um önnur þingmál. „Nei, það er tilboð af hálfu forsætisráð- herra og stjórnarinnar. Ef það verð- ur til þess að annað leysist þá eru þau tilbúin að bjóða það fram af sinni hálfu. Það er hluti af því sem er undir í samtölum,“ segir Steingrímur. Oddný G. Harðardóttir, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, sagði við mbl.is í gær að það væri krafa hennar flokks að veiðigjöld yrðu óbreytt fram að áramótum og ef meirihlutinn hygðist ekki semja um málið myndi minnihlutinn „nýta okkar málfrelsi“. Samtal milli allra flokka Stíf fundahöld hafa verið fram eft- ir kvöldi á Alþingi síðustu daga og hafa veiðigjöldin verið stærsta ágreiningsefnið. Steingrímur segir að samtöl gangi til hliðar á milli flokka en fjölmörg frumvörp eru enn í nefndum og fer mikil vinna þar fram. Alþingi gerði hlé á störfum sín- um frá kl. 16 til 20 í gær, meðal ann- ars svo hægt væri að funda í nefnd- um. Þrátt fyrir að ekki sé komin niðurstaða um þingfrestun segir Steingrímur að álitamálum flokk- anna fari fækkandi en það sem skipti mestu máli sé að allir gangi sáttir frá borði að loknu þingi. „Auðvitað er maður áhugasamur um að þetta verði vel heppnuð þinglok og allir geti farið sáttir frá borði og upp- skera vetrarins verði eins og mögu- legt er. Það er alltaf sjónarmið líka að þingið skili góðri vinnu. Miðað við það hvað þetta er stutt þing held ég að það verði niðurstaðan. Þetta þing byrjaði í desember og síðan var sér- stakt aukahlé í maí út af sveitar- stjórnarkosningum þannig þetta hefur verið stutt þing og í því ljósi er það orðið ansi afkastamikið. Ætli þau séu ekki komin á fimmta tug þau mál sem hafa orðið að lögum á þessu tiltölulega stutta þingi.“ Tollalög rædd að loknu hléi Alþingi tók sem fyrr segir fjög- urra tíma hlé til að funda í nefndum og þegar þingfundi var haldið áfram var tekið fyrir frumvarp um breyt- ingu á tollalögum að því er varðar tollfríðindi á vörum sem upprunnar eru í vanþróuðustu ríkjum heims samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna. Með breytingu myndu vörur frá þessum ríkjum njóta sömu tollfríðinda og vörur sem upprunnar eru á Evrópska efnahagssvæðinu. Frumvarpið kom úr efnahags- og viðskiptanefnd og lagði nefndin til að það yrði samþykkt óbreytt en allir þingmenn nefndarinnar eru sam- þykkir afgreiðslu frumvarpsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Alþingi Þingmenn hafa verið að störfum fram eftir kvöldi síðustu daga. Fjölmörg frumvörp eru enn í nefndum og hefur enn ekki verið samið um þinglok. Enn álitamál á Alþingi  Afgreiðsla ríkisfjármálaáætlunar og nýrrar persónuverndarlöggjafar enn eftir  Stjórnarandstaðan hefur ekki samþykkt tillögu forsætisráðherra um veiðigjöld Breytt deili- skipulag vegna Vesturlands- vegar var sam- þykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur- borgar í gær, en það er byggt á tillögu umhverf- is- og skipulags- sviðs borgarinnar og Vegagerðar- innar. „Markmið framkvæmda og skipulagsins er að vegurinn verði endurbættur til að auka umferðar- öryggi og greiða fyrir umferð. Stefnt er að 2+1 vegi á stærstum hluta deiliskipulagsins og fækkun tenginga við þjóðveginn með gerð hliðarvega,“ segir í fundargerð ráðsins. Málinu var vísað til borgarráðs. Öryggi á Vestur- landsvegi verði bætt Umferð Á Vestur- landsvegi Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri- hreyfingin – grænt framboð og óháðir og Samfylkingin og annað félagshyggjufólk hafa gert með sér samkomulag um myndun meiri- hluta í sveitarstjórn Norðurþings kjörtímabilið 2018-2022. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá flokkunum þremur í Norðurþingi, en samkomulag flokkanna byggist á málefnasamn- ingi sem er samkvæmt stefnuskrám framboðanna fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar. Í tilkynningu meiri- hlutans segir að í þessu samstarfi felist ríkur vilji til að ákvarðana- taka sveitarstjórnar miði að því að fjölskyldan verði sett í fyrsta sæti og þjónustan við hana einnig. Ætlar nýr meirihluti að leggja áherslu á uppbyggingu svæða og samveru- staða sem ýta undir útivist og aukna samveru íbúa Norðurþings. Kristján áfram sveitarstjóri Framboðin sammæltust um að sveitarstjóri Norðurþings yrði áfram Kristján Þór Magnússon, en tillögur um skipan í önnur embætti kjörinna fulltrúa yrðu lagðar fram á fyrsta fundi þann 19. júní. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Norðurþing Raufarhöfn er meðal þeirra bæja sem tilheyra Norðurþingi. Nýr meirihluti í Norðurþingi Frumvarp um ætlað samþykki við brottnámi líffæris látins ein- staklings var samþykkt á Al- þingi í gær. Þau Silja Dögg Gunnarsdóttir og Willum Þór Þórsson, þingmenn Fram- sóknarflokksins, voru flutnings- menn frumvarpsins en með ætl- uðu samþykki er gert verði ráð fyrir að hinn látni hafi verið samþykkur brottnámi líffæris að sér látnum, nema tilefni sé til að ætla annað. Ekki má þó nema brott líffæri látins ein- staklings leggist nánasti vanda- maður hins látna gegn því. Frumvarpið hefur áður komið inn á borð Alþingis en ekki hef- ur tekist að koma málinu í gegn. Að þessu sinni var frumvarpið samþykkt með 52 atkvæðum. Tveir greiddu ekki atkvæði. Lög- in taka gildi 1. janúar 2019. Brottnám líf- færa samþykkt 52 ÞINGMENN GREIDDU AT- KVÆÐI MEÐ FRUMVARPINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.