Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Sagt var frá því í fréttum að „inn-an Seðlabanka Íslands er nú til
skoðunar með hvaða hætti skuli
bregðast við kvörtun starfsmanns
um að nektarmálverk sem prýða
veggi bankans séu ósæmileg og
beri að fjarlægja. Fréttablaðið seg-
ir málið hafa vakið nokkurn usla
innan bankans og séu skiptar skoð-
anir um réttmæti kvörtunarinnar.“
Þá segir að í listaverkasafnibankans séu mörg meist-
araverk. „Á einhverjum þeirra,
nánar tiltekið myndum eftir Gunn-
laug Blöndal, er að finna nekt“.
Samkvæmt heimildum Frétta-blaðsins gerði starfsmaður
bankans alvarlega athugasemd við
nektarmyndirnar á vinnustaðnum,
taldi þær ósæmilegar og fór fram á
að þær yrðu fjarlægðar.“ Þá segir
að kvörtunin sem tengist metoo-
umræðunni hafi verið tekin alvar-
lega og endað inni á borði stjórn-
enda þar sem ákveðið var að setja
málið í ákveðið ferli sem enn standi
yfir og örlög nektarverka gamalla
meistara liggi ekki fyrir. Fréttin
vekur þá spurningu hvort rétt sé að
rannsóknarnefnd Alþingis komi
saman og meti hvaða áhrif hin
klámfengnu meistarastykki höfðu á
dómgreind bankans í aðdraganda
„hruns“.
Benda má á að Clement páfiXIII. lét á miðri 18. öld höggva
til laufblöð á styttur og mála önnur
á gamlar myndir. Hér mætti líma
snjáða seðla yfir viðkvæm svæði.
Starfsmenn SÍ ættu að forðast Flór-
ens þar sem stytta Michelangelo
glennir sig framan í viðkvæma. Six-
tusarkapelluloftið eftir sama er æp-
andi og því rétt að glápa þar ofan í
gólfið.
Er að finna nekt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 12 heiðskírt
Akureyri 11 léttskýjað
Nuuk 12 skýjað
Þórshöfn 9 léttskýjað
Ósló 19 heiðskírt
Kaupmannahöfn 19 heiðskírt
Stokkhólmur 14 heiðskírt
Helsinki 5 skúrir
Lúxemborg 26 léttskýjað
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 18 heiðskírt
Glasgow 13 heiðskírt
London 21 léttskýjað
París 22 þoka
Amsterdam 23 léttskýjað
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 23 heiðskírt
Vín 17 skúrir
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 16 skúrir
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 24 heiðskírt
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 18 skýjað
Montreal 13 skúrir
New York 17 alskýjað
Chicago 15 heiðskírt
Orlando 28 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:09 23:46
ÍSAFJÖRÐUR 2:10 24:54
SIGLUFJÖRÐUR 1:48 24:42
DJÚPIVOGUR 2:26 23:27
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Hæst launaði framkvæmdastjóri
minnstu sveitarfélaganna er með allt
að þreföld mánaðarlaun hinna lægst
launuðu hjá minnstu sveitarfélög-
unum, en aðeins tæpur helmingur
sveitarfélaga með færri en 200 íbúa
svaraði könnun á kjörum sveitar-
stjórnarmanna og framkvæmda-
stjóra sveitarfélaga 2018, sem Sam-
band íslenskra sveitarfélaga hefur
nú birt.
Í mars sl. var tölvupóstur sendur
til allra sveitarfélaga á landinu með
rafrænum spurningalista þar sem
óskað var eftir ákveðnum upplýs-
ingum. Beiðnin var ítrekuð nokkrum
sinnum með tölvupósti.
Alls bárust svör frá 63 sveitar-
félögum af 74 og voru þau flokkuð í
sex stærðarflokka eftir íbúafjölda.
Af sveitarfélögum með færri en
200 íbúa svöruðu 6 af 13, sveitarfélög
með 200-499 íbúa svöruðu 12 af 13,
með 500-999 íbúa svöruðu öll 14,
með 1.000-1.999 íbúa svöruðu 11 af
12, með 2.000-4.999 íbúa svöruðu öll
13, utan að eitt þeirra gaf ekki upp
heildarlaun framkvæmdastjóra.
Sveitarfélög með 5.000 íbúa eða
fleiri svöruðu 7 af 9.
Yfir 2 milljónir mánaðarlega
Miðað við svörin sem fengust voru
heildarlaun framkvæmdastjóra
sveitarfélaga hæst yfir 2,1 milljón
króna á mánuði og lægst undir 400
þúsund kr. á mánuði, auk hlunninda
sem eru frá því að vera engin upp í
að geta orðið allt að 250 þúsund
krónur til viðbótar við heildar-
mánaðarlaun.
Hlunnindi eru skilgreind sem
greiddur starfskostnaður fyrir utan
beinar launagreiðslur, s.s. fastur bif-
reiðastyrkur, frír sími, risna og hús-
næðisstyrkur. Biðlaunaréttur fram-
kvæmdastjóranna var frá því að
vera enginn upp í að vera sex mán-
uðir og allt þar á milli.
Í sveitarfélögum með færri en 200
íbúa var einn framkvæmdastjóri
með yfir eina milljón króna í heildar-
mánaðarlaun og allt að því 150 þús-
und króna hlunnindagreiðslu til við-
bótar, á meðan lægst launuðu
framkvæmdastjórarnir voru með
undir 400 þúsund krónur í mán-
aðarlaun og innan við 50 þúsund
krónur í hlunnindagreiðslur til við-
bótar.
Greiðslur til sveitarstjórnar-
manna voru frá því að vera kringum
10 þúsund krónur mánaðarlega í
minnstu sveitarfélögunum upp í að
vera yfir 300 þúsund krónur
mánaðarlega í þeim stærri.
Greiðslur fyrir nefndarfundi voru
frá því að vera innan við 10 þúsund
kr. í minnstu sveitarfélögunum upp í
að vera yfir 50 þúsund kr. í þeim
stærstu.
Ákvarðanir um launagreiðslur til
sveitarstjórnarmanna og nefndar-
manna eru almennt með svipuðum
hætti, þ.e. ýmist ákveðið hlutfall af
þingfararkaupi, föst fjárhæð tengd
launavísitölu eða annað fyrirkomu-
lag sem sveitarstjórnin ákveður.
Greiðslur til nefndarformanna
voru sums staðar 50% hærri en til
annarra nefndarmanna.
Mest með þrefalt hærri laun
Könnun Sambands íslenskra sveitarfélaga á kjörum sveitarstjórnarmanna og
framkvæmdastjóra sveitarfélaga birt Fæst af minnstu sveitarfélögunum svöruðu
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar