Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Megi raforkan verameð þér.
Passat GTE á betra verði. Góð
ástæða til að skipta um orkugjaf
Á Passat GTE kemstu flestra þinna ferða á raf
sparneytin bensínvélin við. Í gegnum Car-Net g j j ý g
fyrir þinn Passat GTE. Komdu í reynsluakstur og upplifðu snerpuna.
www.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
*Passat Variant, station útgáfa +100.000 kr. 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
a.
orkunni einni saman, en í langferðum tekur
appið etur þú notað sn allsímann sem f arst rin u
Til afhendingar strax!
Ragnhildur Þrastardóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Nauðsynlegt er að auka samvinnu
milli heilbrigðisyfirvalda og barna-
verndar til þess að árangur náist í
málefnum barna sem glíma við al-
varlegan vímuefnavanda. Þetta seg-
ir Salvör Nordal, umboðsmaður
barna.
Í gær sendu Olnbogabörn, sam-
tök sem berjast fyrir bættum hags-
munum barna sem glíma við vímu-
efnavanda, frá sér opið bréf til
Barnaverndarstofu þar sem þau
segjast afar ósátt með stöðu mála.
Áætlað var að opna nýtt með-
ferðarúrræði í apríl síðastliðnum
en því hefur nú verið frestað fram í
september. Í bréfinu kemur einnig
fram að skjólstæðingur Stuðla,
meðferðarstöðvar sem ætluð er
börnum, hafi verið vistaður í gæslu-
varðhaldsherbergi ,,meira og
minna frá áramótum“. ,,Það er
grafalvarlegt þegar börn fá ekki
úrræði við hæfi,“ segir Salvör um
málið en bendir á að unnið sé að því
að bæta úrræði fyrir ungmenni í al-
varlegum vanda.
Vinna að úrlausnum
,,Á þriðjudag var haldinn mjög
mikilvægur fundur með aðkomu
fjölmargra þar sem rætt var um
aukna samvinnu á milli kerfa og ég
bind vonir við að sú vinna muni skila
úrræðum sem eru nauðsynleg. Þar
kom fram mikill vilji til þess að
vinna saman að því að finna
lausnir,“ segir Salvör, en niðurstöð-
ur fundarins verða kynntar á næstu
misserum.
Forstöðumaður Stuðla, Funi Sig-
urðsson, segist ekki geta tjáð sig um
langa vistun í gæsluvarðhaldsher-
bergi. ,,Ég get ekki talað um ein-
staka mál eða vistanir. Við höfum
verið að nýta húsið á ýmsa vegu
vegna þess að það hefur ekki verið
mikið annað í boði. Við leggjum okk-
ur fram við að veita sem besta með-
ferð þrátt fyrir að við séum að nota
ýmsa anga hússins í það.“
Funi segir fjölbreytt úrræði fyrir
börn sem glíma við vímuefnavanda
vanta, þau eigi við misjöfn vandamál
að stríða og fíknivandi þeirra sé mis-
stór. ,,Það þarf að bæta við úrræðum
og við þurfum að geta komið í veg
fyrir óæskilega blöndun. Aðalatriðið
er ekki hversu mörg pláss boðið er
upp á, heldur hversu fjölbreytta að-
stoð við getum veitt.“
Fjölbreytni framar plássi
Þegar Funi er spurður hvort boð-
legt sé fyrir börn að vera í gæslu-
varðhaldsherbergjum í lengri tíma
segir hann:
,,Gæsluvarðhaldi er beitt til þess
að tryggja öryggi, alveg sama
hvernig horft er á það. Þetta er flók-
inn vandi og sumir þurfa meiri
gæslu en aðrir. Við fáum bæði gagn-
rýni fyrir að vera með of mikla
gæslu og fyrir að hafa of litla gæslu.
Við reynum alltaf að feta milliveginn
og gera okkar besta í þessum efnum
gagnvart hverjum og einum einstak-
ling.“
Aðskild í hluta hússins
Halldór Hauksson, sviðstjóri fóst-
ur- og meðferðarsviðs Barnavernd-
arstofu (BVS) tekur fyrir það í sam-
tali við mbl.is að á Stuðlum sé
einhvers konar „gæsluvarðhaldsher-
bergi“.
„Þegar sinna þarf sérstökum þörf-
um barna og það þarf að aðskilja þau
í langan tíma frá öðrum börnum í
meðferð þá er það gert í sérstökum
hluta hússins,“ segir Halldór.
Sá hluti hússins sem Halldór vitn-
ar til samanstendur af herbergi,
setustofu og gangi. Hann segir
sjaldgæft að börn séu höfð í gæslu-
varðhaldi á Stuðlum en að þegar það
hafi komið fyrir sé notast við þá
hluta hússins sem þykja hentugir, og
að umrætt svæði hafi einhverntíma
verið notað. „Við reynum að gæta
öryggis barna sem eru í meðferð
með viðeigandi hætti. Þó að einhver
dvelji í ákveðnum hluta hússins þýð-
ir það ekki að hann sæti einhvers
konar gæsluvarðhaldi eða neyðar-
vistun.“
Hann segir það samkvæmt lögum
að ekki megi vista einstaklinga í
neyðarvistun lengur en í 14 daga í
senn. Hins vegar segir hann heim-
ildir fyrir því og ekkert athugavert
við það að ef einstaklingar þurfi
meiri gæslu en aðrir þá fái þeir hana.
Grafalvarlegt úrræðaleysi
Segja barn hafa verið vistað í gæsluvarðhaldsherbergi meira og minna frá áramótum Fundað um sam-
vinnu í málefnum barna með vímuefnavanda Sviðstjóri BVS segir gæsluvarðahald á Stuðlum sjaldgæft
Ljósmynd/aðsend
Gæsluvarðhald Sams konar herbergi og sagt er að barn hafi verið vistað í ,,meira og minna frá áramótum“.