Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Óðinn, sem kom til landsins árið
1960. Hann var einnig gangmeiri en
Óðinn. Ægir var búinn ýmsum nýj-
ungum, svo sem þyrluskýli og að-
stöðu fyrir lækna. Þá var skipið sér-
staklega styrkt til siglinga í ís.
„Helstu kostir Ægis eru þeir að
skipið er afburða sjóskip, sér-
staklega þegar siglt er á móti veðri,
skipið líður áfram og ver sig vel, er
ákaflega „mjúkt“ eins og sagt er. Í
samanburði við t.d. Óðin hefur Ægir
vinninginn en Óðinn var alltaf frek-
ar stífur á móti, átti það til að
höggva í ölduna,“ segir Halldór B.
Nellett, reyndasti skipherra Land-
helgisgæslunnar.
Ægir gat verið ansi „fjörugur“
„Ægir getur síðan verið ansi
„fjörugur“ og oltið mikið sér-
staklega þegar siglt er á lensi og
með sjó aftan á hornin, getur auð-
veldlega tekið veltur upp á 30-40°.
Ég er ekki frá því að skipið hafi
breyst nokkuð hvað sjóhæfni varðar
í áranna rás en því hefur í þrígang
verið breytt í Póllandi eða árin 1997,
2001 og 2005,“ bætir Halldór við.
„Í dag er sorglegt að sjá Ægi
drabbast niður þarna úti á Skarfa-
bakka. Sjálfur er ég búinn að vera
viðloðandi þetta skip ansi lengi eða í
tæp 46 ár. Byrjaði fyrst á Ægi 1972
þegar hann var 4 ára, nánast sem
krakki, 16 ára gamall. Ég er búinn
að gegna ýmsum störfum um borð
og við gæslumenn höfum alltaf lagt
metnað okkar í að viðhalda skipinu
vel í gegnum öll þessi ár og því er
ákaflega sárt að sjá það fara svona,
ryðtaumar og ryð um allt og eykst
með degi hverjum,“ segir Halldór.
„Það er áætlað að það kosti á
bilinu 250 til 300 milljónir að koma
Ægi í viðunandi ástand til að geta
sinnt hlutverki sem eftirlits- og
björgunarskip á Íslandsmiðum.
Mest umleikis er uppfærsla og að
einhverjum hluta endurnýjun á að-
alvélum skipsins. Það eru eins og er
engin áform um að ráðast í það
verkefni og það eru heldur engin
áform um að selja skipið,“ segir Ás-
grímur L. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Gæsl-
unnar.
Er það ekki markmið Landhelg-
isgæslunnar að vera með tvö skip
úti samtímis við gæslustörf?
„Það er rétt. Landhelgisgæslan
hefur sett það í langtímaáætlanir að
tvö skip séu ávallt á sjó eins og var
fyrir 2006, áður en v/s Óðni var að
endingu lagt. Það er ljóst að ef sú
siglingaáætlun á að geta átt sér stað
þurfa þrjú skip að vera í rekstri
hvort sem varðskipinu Ægi væri
komið í viðunandi horf og haffæri
eða annað skip kæmi í staðinn. Það
liggja hinsvegar ekki fyrir neinar
fjárveitingar, hvorki til að koma
Ægi á haffæri, útvega nýtt skip eða
til reksturs þriðja skipsins.“
Við komu Ægis sagði Jóhann
Hafstein dómmálaráðherra m.a:
„Það er ein þýðingarmesta
stjórnsýsla ríkisins að gæta íslensku
landhelginnar, enda landhelgis-
gæslan á ytra borði tákn fullveldis
þess og sjálfstæðis.“
Þessi orð eru í fullu gildi hálfri
öld síðar og þau mættu stjórnmála-
menn dagsins í dag gaumgæfa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varðskipið Ægir Hér má sjá skipið að störfum árið 2009 þegar það var enn í fullri notkun. „Mér hefur alltaf fundist Ægir betra sjóskip en Týr þó að skipin séu nær alveg eins,“ segir Halldór B. Nellett.
Forystuskip í þorskastríðum
Liðin eru 50 ár síðan varðskipið Ægir kom nýtt til landsins Tók þátt í tveimur þorskastríðum
Ekkert varðskip hefur klippt á togvíra jafn margra landhelgisbrjóta Framtíð skipsins óviss
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það var hátíðarstemning í Reykja-
vík miðvikudaginn 12. júní 1968
þegar nýtt varðskip, Ægir, kom til
hafnar í fyrsta skipti. Ægir hefur
reynst afburðavel þá tæpu hálfa öld
sem hann hefur verið í notkun. Til
dæmis hefur ekkert íslenskt varð-
skip klippt á togvíra jafn margra
landhelgisbrjóta í þorskastríðum.
En nú er öldin önnur. Ægir hefur
ekki verið í hefðbundnum rekstri í
þrjú ár og liggur hann nú við
Skarfabakka í Sundahöfn í Reykja-
vík. Það kostar stórfé að koma skip-
inu í nothæft ástand og þeir pen-
ingar eru ekki til reiðu. Alls er óvíst
hver verða örlög skipsins.
Jóhann Hafstein dómsmálaráð-
herra flutti ræðu við komu Ægis
1968. Þar kemur fram að Alþingi og
ríkisstjórn þótti nauðsyn að end-
urnýja og efla skipastól Landhelg-
isgæslunnar. Smíði skipsins var
boðin út og í ágúst 1966 voru undir-
ritaði samningar við skipasmíða-
stöðina Aalborg Værft A.S. í Dan-
mörku, sem átti hagstæðasta
tilboðið. Skipið var svo afhent ís-
lenska ríkinu ytra hinn 30. maí
1968.
Jón Jónsson skipherra sigldi
skipinu heim, Bjarni Helgason var
1. stýrimaður og André Jónsson
yfirvélstjóri.
Ægir var stærsta skip Land-
helgisgæslunnar á þeim tíma, 1.258
brúttótonn, fimm metrum lengri en
„Fimmtíu ár eru bara ansi góður
aldur á skipi. Ægir er búinn að
skila sínu og gott betur og nú eiga
menn að taka þessa ákvörðun á 100
ára fullveldisafmæli Íslands og af-
skrifa Ægi og hefja undirbúning að
því að hanna nýjan arftaka. Týr er
orðinn 43 ára í dag, systurskip
Ægis, sem er ansi hár aldur líka og
stutt í 50 árin. Því bráðnauðsynlegt
að hefja strax undirbúning að
hönnun og smíði á nýju skipi sem
alltaf tekur nokkur ár,“ segir Hall-
dór B. Nellett skipherra.
Halldór segir að ekki megi fara
eins fyrir Ægi og fór fyrir gamla
Þór, því sómaskipi sem eitt sinn var
glæsilegt flaggskip Landhelgis-
gæslunnar í byrjun sjötta ára-
tugarins.
„Þór hraktist í lokin milli við-
legukanta í höfnum hér við Faxa-
flóann í algjörri niðurníðslu, enginn
vildi kannast við að eiga hann. Þór
var löngu farinn úr umsjá Land-
helgisgæslunnar og á tímabili var
hann orðinn afdrep og skjól fyrir
útgangsmenn í Reykjavík, alveg
skelfilegt að koma um borð og sjá
skipið á þeim tíma. Að lokum fór
hann í brotajárn, sem auðvitað átti
að gerast miklu fyrr.“
Um borð í Ægi Halldór B. Nellett skipherra og Guðmundur St. Valdimars-
son bátsmaður sigla varðskipinu að Skarfabakka í Sundahöfn haustið 2016.
Tímabært að huga
að arftaka Ægis
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.