Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 44

Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 44
Á þessu vori minn- umst við að 70 ár eru lið- in síðan við lukum kenn- araprófi frá Kennara- skóla Íslands 27. maí 1948. Við vorum 24, sem fögnuðum þessum áfanga og „Lögðum út á lífsins braut um ljósa morgunstund“ vorið 1948 en erum núna fjög- ur eftir. Sérstaklega er eftir- minnilegt það andrúmsloft er var alla tíð í skólanum. Það ríkti ólýsanlega mildur agi yfir öllu, en undirtónninn var bundinn uppeldi, mannrækt og siðferði. Engar almennar skólareglur voru í skólanum og vakti það athygli okkar en þegar að var gáð þá kom sú skýring frá Freysteini Gunnarssyni skólastjóra, að þá yrðu engar reglur brotnar og engum refsað. Hann ætl- aðist til þroska og sjálfsaga hjá nem- endum og taldi að í skólanum væru nemendur sem ættu að bera ábyrgð á sjálfum sér í samræmi við góða lífs- hætti og siðvenjur. Að við skyldum haga störfum okkar og framkomu eins og við vildum að framkoma barnanna yrði þegar við færum að kenna. „Eins og þú vilt aðrir geri athöfn þín í sannleik veri“ Kennaraefnin áttu strax að temja sér þá framkomu sem gæti orðið fyrirmynd barnanna. Svo er það annað mál hvort okkur hafi tekist að nýta þau heilræði sem gefin voru fyrir 70 árum. Hópurinn var mjög samstilltur og mynd- aðist fljótt mikið fé- lagslíf. Við vorum með sjálfstæðan fjórradda kór í bekknum okkar, gott söngfólk og undirleikara. Það var ekki tilviljun ein að við vorum sex sem tókum viðbótarnám og próf í söng- fræði, söng og orgelleik. Ísak Jóns- son, einn kennari okkar, kvaddi með þeim orðum, „að þessi bekkur hefði haft yfir sér aðlaðandi samstilltan blæ“. Þessi blær hélst alla tíð. Oft hittumst við á liðnum árum og rifj- uðum upp samverustundirnar í skól- anum. Síðasta minningarstund okkar var í apríl sl. er við kvöddum ókrýnd- an bekkjarforingja okkar, dr. Þuríði Kristjánsdóttur. Eftir Hjört Þórarinsson Brautskráðir söngkennarar frá KÍ vorið 1948. Myndin er tekin í skrúðgarði Kennaraskólans. Aftari röð: Hjörtur Þórarinsson, Albert Jóhannsson, Magnús Bæringur Kristinsson, Guðmundur Magnússon og Jón Hjörleifur Jónsson. Fremri röð: Guðmundur Matthíasson kennari, Ingiríður Halldórsdóttir, Guðrún Sveinsdóttir, Ólöf Pétursdóttir og Sigurður Birkis kennari. Höfundur er fv. skólastjóri og fram- kvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Hjörtur Þórarinsson Þórunn Lárusdóttir, fram- kvæmdastjóri Ferðafélags Ís- lands, Hjörtur Þórarinsson, skólastjóri á Kleppjárnsreykjum og kennari á Selfossi, Guð- mundur Magnússon, skólastjóri í Reykjavík og fræðslustjóri á Austurlandi og Jón Hjörleifur Jónsson, skólastjóri Í Hlíðardals- skóla og prestur aðventista. » Sérstaklega er eftir- minnilegt það and- rúmsloft er var alla tíð í skólanum. Það ríkti ólýsanlega mildur agi yfir öllu, en undirtónn- inn var bundinn uppeldi, mannrækt og siðferði. 70 ára kennara- afmæli frá Kenn- araskóla Íslands 44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 MIÐNÆTUROPNUN Í SMÁRALIND 20% afsláttur* af öllum vörum *ekki af merktri tilboðsvöru Fríar sjónmælingar Opið til 24:00 Módel: Kolfinna Nikulásdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.